Fréttir - Eyjafréttir - 12.12.1996, Síða 8
8
Fréttir
Fimmtudagur 12. desember 1996
Ljósmyndaverslunin Foto:
Fullkomnustu fram-
köllunariæki í landinu
Guðmundur að störfum við nýju framköllunarvélina.
í átta ár hefur Fuji Photo Film í
Japan ásamt öðrum helstu
framleiðendum i ijósmyndaiðnaði
unnið að endurbótum á ljós-
myndatækni og er útkoman algjör-
lega nýtt ljósmyndakerfi sem kall-
ast APS og hafa móttökurnar verið
frábærar.
Nú getur ljósmyndaverslunin Foto
boðið upp á þessar myndavélar, filmur
og framköllun á þeim. Til þess þarf
sérstök framköllunartæki og þann 3.
desember, á 13 ára afmæli verslun-
arinnar, voru teknar í notkun nýjar
framköllunarvélar frá Fuji. „Eru þetta
fullkomnustu tæki sem völ er á í
framköllun í dag. Tækin eru framleidd
eftir ströngustu gæðakröfum og hafa
hlotið gæðastimpil ISO 9001,“ sagði
Guðmundur Sigfússon kaupmaður í
Foto um nýju tækin.
Auk þess að geta framkallað nýju
APS fihnumar, sem eru algjör bylting,
verður boðið upp á nokkrar nýjungar í
35 mm framköllun. „Nú prentast
númerið á myndinni aftan á myndina
sem er til rnikils hægðarauka þegar
panta á myndir eftir filmunni eftir á.
Hægt er að stækka út úr myndum og
fá hvítan ramma utan um myndina.
Að auki er skjár á vélinni sem hjálpar
við að fá sem bestar myndir út úr
framkölluninni. Það hefur alltaf verið
kappsmál okkar að skila viðskipta-
vinum okkar sem bestum myndum og
nýja vélin mun hjálpa okkur í þeirri
viðleitni," sagði Guðmundur að
lokum.
Nada Borosak
listmálari:
Opnar
sýningu í
Akóges næsta
fimmtudag
Nada Borosak heldur sína
aðra málverkasýningu í Akó-
geshúsinu í næstu viku. Þar
sýnir hún um 40 myndir,
mest vatnslitamyndir sem
hún hefur málað í Vest-
mannaeyjum og víðar á ís-
landi á undanförnum mán-
uðum.
Nada opnar sýninguna
klukkan 20:30 fimmtudaginn 19.
desember nk. og
verður hún opin
fram á sunnu-
daginn 22. des-
ember.
„Ég hugsa þetta
sem jólasýningu
og verður gestum
boðið upp á pip-
arkökur og jóla-
glögg," sagði
Nada.
Nada með eina
af vatns-
litamyndina
sem hún
sýnir í Akóg-
es í næstu
viku.
| NJÓTTU LÍFSINS í REYKJAVÍK |
! Við höfum fjölgað ibúðum okkar að Skálholtsstíg 2a í Reykjavík, við hliðina á Listasafni íslands. Þetta eru !
! litlar 2ja herbergja íbúðir á besta stað í Rvík. í hverri íbúð er lítið en fullkomið eldhús með öllum búnaði, stofa !
j með leðurhúsgögnum, svefnherbergi með bestu gerð hótelrúma. Sjónvarp, sími og fax. Daglega eru j
j íbúðirnar þrifnar, skipt um handklæði, vaskað upp.
! Fullkomin aðstaða fyrir rómantísk hjón sem hafa sloppið frá börnunum.
j Hausttilboð til 15. desember:
j Til þess að kynna þessa frábæru gistingu í Reykjavík bjóðum við nú gestum okkar að greiða allt að 3000 kr. j
i á dag með nótum frá veitingahúsum í ReykjavíklMI! en afganginn með Visa eða Eurocard. Einu skilyrðin eru i
j þau að gist sé í a.m.k. 3 nætur og að nóturnar séu nýjar.
J Þitt annað heimili í Reykjavík.
Sími: 562 5622 Fax: 562-9165
Smáar
Sjónvarpstæki óskast
Vil kaupa 14 tommu sjónvarp
eða minna.
Uppl. í s. 481-2736 á kvöldin.
Bíll til sölu
Til sölu Mitsubishi 1200 Double
Cap 4x4 árgerð 1991 með
lengdum palli. (Vsk. bíll) m/ húsi
og 31 tommu dekkjum.
Upplýsingar í s. 481 -1187.
Þakkir
Innilegar þakkir til þeirra fjölmörgu
sem glöddu mig á einn eða annan
hátt á 75 ára afmæli mínu, 6.
desember sl.
Alfreð Einarsson.
j Kœru Vestmannaeyingar 1
Veríð hjartanlega velkomnir á
| AAÁLVERKASÝNINGU |
mína ÍAkóges
19. desember kl. 20:30.
Sýningin verðursíðan opin
dagana 20. og 21. desember
frákl.iaOOtil 21:30 ogá
■ sunnudaginn 22. fráiaOOtil 24:00. i
! Nada Borosak \
i___________________________i
íþróttir fyrir alla:
Vel heppnaðir
fjördagarí Eyjum
-Gestum boðið að láta kanna heilsufarslegt ástand sitt
Á laugardaginn var efnt til átaks á
vegum samtakanna Iþróttir fyrir
alla og var dagskráin mjög fjöl-
breytt. Boðið var upp á þolmæl-
ingu, líkamsfitumælingu, blóðfltu-
mælingu, blóðþrýstingsmælingar,
vatnsleikfimi og leiðbeiningar með
sundlagi. Hugmyndir eru uppi um
að hleypa af stokkunum hlaupi í
Vestmannaeyjum sem gæti haft
aðdráttarafl fyrir fólk af fasta-
landinu.
Þorsteinn G. Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri ÍFA, mætti til Eyja við
þriðja mann en hann segir að hingað
hafi þau komið að frumkvæði
Eyjamanna. Ólöf Heiða Elíasdóttir
íþróttakennari sá um leiðbeiningar
með sundlagi, hjúkrunarfræðingar í
Eyjum mældu bióðþrýsting og
blóðfitu, og fólk frá ÍFA mældi þol og
líkamsfitu.
„Þátttaka var ágæt. Við hefðum í
raun og veru ekki getað annað fleirum
í mælingar. Hins vegar hefðu fleiri
mátt synda og taka þátt í
sundleikfiminni." sagði Þorsteinn í
samtali við Fréttir en hann taldi að
ýmsar ytri aðstæður hefðu ráðið því.
Hann sagði að átak eins og þetta sé af
hinu góða. „Þeir sem komu höfðu
mikinn áhuga á að fylgjast með
líkamlegu ástandi sínu og ekki er
nokkur vafi á því að þetta fólk mun
temja sér hreyfingu og holla lífshætti í
framtíðinni. Arangurinn var það góður
að ákveðið er að við komum aftur eftir
þrjá mánuði og þá verðum við betur
tækjum búin til að getamælt fleiri.“
Áhugi er á því innan ÍFA að koma á
laggimar deild í Vestmannaeyjum.
.T’að kom upp hugmynd að koma upp
nokkuð stóru og eftirsóttu hlaupi í
Vestmannaeyjum. Vignir Guðnason,
forstöðumaður íþróttamiðstöðvar-
innar, benti á að rétt væri að ræða
þetta mál við ferðamálafulltrúann í
Eyjum en IFA sér um forvinnu þessa
máís,“ sagði Þorsteinn að lokum.
Hildur Magnúsdóttir stígur þrekhjólið af miklum móð en það
var liður í þolprófinu.