Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 12.12.1996, Page 11

Fréttir - Eyjafréttir - 12.12.1996, Page 11
FréTTIR Fimmtudagur 12. desember 1996 ur 50 ára ' á sunnudaginn. 1980 en tækjahúsið reis á síðasta ári. Það er algjör bylting fyrir Didda og Ingiberg. Þar koma þeir öllum tækjum inn og aðstaða til viðgerða er eins og best er á kosið. Þar verður einnig starfsmannaaðstaða. Tækjabúnaður Nýr vörubíll með 5 m tönn og sóp, Oshkosh bifreið árgerð 1952 með 3,5 m tönn, tveir slökkvibílar og Volvo 1947 með blásara. tækjahúsið var byggt gat verið kuldalegt að koma snjóruðningstækjunum af stað. Diddi og Ingibergur hafa í mörg horn að líta á flugveliinum enda fara um 80 þúsund farþegarþar um á hverju ári. rann allt saman í gráma. Óhjá- kvæmilega læddist sú hugsun að mér að hreinasta vitfirring væri að ætla sér að lenda í Eyjum í þessum veðurham og fann ég fyrir kvíða. Þó að ekki væri mikil ókyrrð þama úti yfir hafinu var ég ekki í vafa um að breyting yrði á þegar við nálguðumst þessa klettadranga sem stóðu upp úr veðurbörðum sjónum og nefndir voru Vestmannaeyjar. Barnslegt traust á flugstjóranum Toni sat þegjandi í hægra sætinu og púaði sígarettu án afláts. Hvemig skyldi honum vera innanbrjósts? Var hann eins kvíðinn og ég? Ekki virtist Oddgeir hafa neinar áhyggjur þar sem hann stóð þama brosandi fyrir aftan okkur. Ég gat ekki annað en dáðst að þessu bamslega trausti sem hann virtist bera til mín og óskaði þess af heilum hug að ég sjálfur hefði sömu tröllatrú á flugmannshæfileikum mínum. Hann klappaði mér á hægri öxl og sagði hlæjandi: „Jæja, strákar, við verðum á undan Loftleiðum í þetta sinn.“ Ég er ekki svo viss um það, hugsaði ég með sjálfum mér, en bætti við upphátt: „Jú ef við lendum." „Svona, ekkert svartsýniskjaftæði," sagði Oddgeir. „Auðvitað lendum við.“ Mér fannst eilífð líða þar til Þrí- drangamir, þessir tignarlegu útverðir Eyjanna, komu loksins í ljós í suddanum framundan. Þeir voru hrífandi þar sem þeir teygðu sig kolsvartir hátt upp úr mjallhvftu brimlöðrinu. Hægt og sígandi hurfu þeir síðan aftur fyrir og tók þá að grilla í Heimay. Þegar ég kom auga á flugbrautina gaf ég Tona merki um að skella niður hjólunum og lesa gátlistann fyrir lendingu. Mér til undrunar var ekki farið að bóla á þeirri miklu ókyrrð sem ég átti von á í nánd við eyjamar, en ég ákvað að halda hæð eins lengi og unnt væri og lenda síðan úr bröttu aðflugi til þess að reyna að vera sem lengst laus við sviptivindana sem ég taldi vísa í nánd viðjörð. í tröllahöndum Ég herti sætisólina vel, beit á jaxl og Sigurgeir Jónasson tók myndina í nóvember 1970 af Douglas flugvél frá Flugfélagi íslands aö lenda. Til vinstri er gamla flugskýlið. Á innfelldu myndinni er Þorsteinn Jónsson flugstjóri sem komst í hann krappann í flugi til Eyja. ýtti trjónunni niður og hæðarmælirinn byrjaði að vinda niður af sér:-600 - 500 - 400 - 300 - 200 fet - enn var allt í stakasta lagi - aðeins ósköp venjuleg og viðráðanleg ókyrrð. Kannski yrði þetta ekki svo djöfullegt eftir allt saman... BAMM! BAMM! Það var engu líkara en en flugvélin væri slegin með tröllauknum tennisspaða og hún hentist snöggt upp á við, en næstum í sömu andrá sló annar spaði hana niður aftur. Og nú uphófst sá mesti djöflagangur af náttúmvöldum sem ég hefi þurft að glíma við. Flugvélin kastaðist upp og niður, út á hlið, upp á vinstri kant, hentist svo yfir til hægri, upp, niður. upp aftur - allt virtist hringsnúast - stjómvölurinn slóst til í höndum mér og fékk við ekkert ráðið. Vísirinn á hraðamælinum hagaði sér eins og hann væri tekinn að æfa leik- ftmisæfingar af kappi og ekki var nokkur leið að lesa á hann. Ýmist starði ég upp til himins eða niður á jörðina, sem nú var orðin ískyggilega nærri. Auðvitað er ófært að muna allar þær sviptingar sem þama áttu sér stað, en eitt man ég eins greinilega og það hefði gerst í gær: Allt í einu stóðu vængimir næstum lóðrétt og vinstri vængbroddurinn var aðeins fáein fet ofan við hraunið utan við brautina. Viðbrögð mín vom ósjálfráð - vafalaust grundvölluð á margra ára reynslu omstuflugmanns í að fljúga flugvélum í annarlegum stellingum - og ég gaf fullt afl á báða hreyfla til að reyna að komast út úr þessu víti. En þá var eins og tröllsleg hönd tæki flugvélina og þrýsti henni harkalega niður á flugbrautina, en á réttum kili! Ég dró strax úr afli hreyflanna, vélin skoppaði einu sinni og rúllaði síðan rólega eitt til tvö hundmð metra eftir brautinni unz hún nam staðar. Guð minn góður! Ég trúði þessu varla - við vomm lentir. Eitt var þó víst: Ekki hafði ég lent vélinni. Verndarenglar mínir höfðu verið að æfa lendingar á Douglas DC-3! Titraði og var máttlaus Ég titraði og varð máttlaus af geðshræringu og svitinn bogaði af mér. Flugvélinni ók ég svo hægt og rólega inn á stæðið nálægt austurenda flugbrautarinnar, en þar beið Kalli Kriss með fulla rútu af farþegum. En nú hlaut að verða mitt fyrsta verka að avara Kidda Olsen sem líklega væri á þessari stundu að nálgast Þrídranga. Ég náði honum í talstöðina og sagði að það væri ekkert vit í því fyrir hann að reyna lendingu og sjálfur myndi ég ekki hreyfa mig héðan fyrr en lægði til muna. Hann þakkaði fyrir viðvömnina, bað okkur vel að lifa og sneri heim aftur. Flugvélin hristist og skókst í ofsaveðrinu þar sem hún stóð á planinu, og eftir mikil átök tókst Kalla og aðstoðarmanni hans að opna dyrnar á farþegarýminu, en til þess þurfti að spyma hurðinni af alefli upp á móti rokinu. Ég var ennþá svo máttfarinn að ég kiknaði í hnjáliðunum þegar ég stökk niður úr flugvélinni. Farþegi okkar kom skælbrosandi út og sagði: „Jæja, strákar, þetta var bara indælisferð. Ég þakka ykkur fyrir.“ Lofaði sjálfum sér að gera þetta aldrei aftur Lánsami maður, varð mér hugsað. Hann hafði enga hugmynd um hversu nærri hann hafði verið að mæta skapara sínum fyrir nokkrum mínútum. En nú lofaði ég sjálfum mér því að aldrei aftur skyldi ég reyna að lenda í Vestmannaeyjum í meiri vindi en sem næmi stinningskalda og einnig að ég skyldi berjast fyrir því að reglur yrðu settar um lág- marksveðurskilyrði fyrir flug til áfangastaða úti á landi. Reyndin varð samt sú að langur tími leið áður en slíkar reglur sáu dagsins Ijós og er mér ekki grunlaust um að dráttur þessi hafi kostað nokkur mannslíf. Sem betur fer eru mál þessi nú komin í fastar skorður og reglum um veðurskilyrði fyrir flug stranglega framfylgt. Nú er liðin sú tíð þegar flugmenn gátu freistazt til að sanna hversu klárir karlar þeir væru. Nú verða allir að fara eftir ákvæðum sem tryggja það að jafnvel þeir flugstjórar sem búa við lágmarksreynslu séu vel færir um að leysa verkefni sín vel af hendi án þess að stofna lífí sínu og farþeganna í hættu. Miklar framfarir hafa átt sér stað varðandi stjórnun á undanfömum árum um leið og tækjabúnaði og þjálfun flugmanna hefur einnig fleygt gífurlega fram. Kaflinn er birtur með leyfi útgefanda en millifyrirsagnir eru blaðsins.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.