Fréttir - Eyjafréttir - 12.12.1996, Síða 12
Lægrí hitunarkostnaður
upp úr aUamótum
Hitunarkostnaður í Vestmanna-
eyjum er yfir meðallagi þegar born-
ar eru saman gjaldskrár hitaveitna
á landinu öllu. Veitustjóri Bæjar-
veitna Vestmannaeyja segir slíkan
samanburð óraunhæfan þar sem
gjöldin séu reiknuð út frá
gjörólíkum forsendum.
Ibúafjöldi, nálægð við jarðhita,
nýting orku og fjárhagsstaða og aldur
veitu eru þeir þættir sem hafa mest
áhrif á gjafdskrár hitaveitna að sögn
Friðriks Friðrikssonar veitustjóra. A
móti því koma jöfnunargreiðslur
stjórnvalda sem niðurgreiða upp að
vissu marki hitunarkostnað heimila
þar sem aðstæður til hitaveitu eru
slæmar.
Vegna skorts á jarðhita hafa
Vestmannaeyingar rétt á kaupum á
svokallaðtri „ótryggðri orku“ frá
Landsvirkjun til að hita vatn. Þetta
felur í sér að ef vatnsstaða Lands-
virkjunar fer undir ákveðin mörk er
hægt að hefta rafmagnsflutning til
Eyja. Skilyrði fyrir samningnum er
því að hafa varaorku sem er svartolía.
Orka frá Landsvirkjun er notuð til
hitunar 90% vatns í Eyjum en 10%
eru hituð með varmaorku frá
Sorpbrennslunni.
Sé tekið mið af landinu öllu er
hitaveita í Eyjum mjög ung. Friðrik
segir það skipta máli í sambandi við
hitaveitugjöld. Hann segir að
Bæjarveitur séu enn mjög skuldugar
vegna stofnkoslnaðar sem hljóti að
leiða til hærra verðs hitaveilu. Friðrik
telur að sérstaða Bæjarveitna felist
einnig í því hversu erfltt sé að auka
tekjur fyrirtækisins. Svæðið sé lítið og
fólki fækki frekar en fjölgi.
Friðrik bendir einnig á að hitastig
vatnsins sem berst til húsanna sé mjög
mismunandi eftir hitaveitum. Lágt
hitastig leiðir til aukinnar notkunar þar
sem ofnar þurfa að vera stærri segir
hann. Hitastig í Eyjum er 78 gráður
við húsvegg en á jarðhitasvæðum fer
það allt upp í 95 gráður, t.d. í
Hveragerði. I Reykjavík er hitastigið
80 gráður.
Beinn samanburður á rúmmetra-
verði er því ekki raunhæfur að mati
Friðriks. Fastagjöld séu einnig mjög
mismunandi og að baki þessara talna
liggi mjög mismunandi útreikningar.
Hann neitar því ekki að hitaveita í
Vestmannaeyjum sé með þeim dýrari
á landinu en aðstæður leyfi ekki lægri
gjöld eins og er. Hann bendir á að í
samanburði t.d. við Akureyri, þar sem
nýleg uppbygging hitaveitu var mjög
kostnaðarsöm, standi Vestmannaey-
ingar vel að vígi.
Veitustjóri segir það stefnu
Bæjarveitna að lækka gjöldin í
nánustu framtíð, m.a. með því að
borga skuldir veitunnar hratt niður.
Hann telur raunhæft að hægt verði að
skapa grundvöll fyrir fægri gjöldum á
næstu fjómm ámm.
Elsa Ævarsdóttir
Hin árlega spurningakeppni grunnskólanna í Eyjum fór fram í síðustu viku. Lið nemenda Barnaskólans og
Hamarsskólans öttu kappi sem og kennaralið úr báðum skólum. Leikar fóru þannig að Barnaskólinn vann með yfir-
burðum hjá nemendum þar sem Jón Kristinn Sverrisson fór á kostum. Hjá kennurum snerist dæmið við og
Hamarsskólinn vann öruggan sigur. Á myndinni er nemendalið Barnaskólans með bikarinn góða. F.v. Jóna Heiða
Sigurlásdótör, Jón Kristinn Sverrisson og Davíð Egilsson.
*#
Eintn Orn
hrmnður
Eyverjn
Aðalfundur Eyverja, félags ungra
sjálfstæðismanna í Eyjum, var
haldinn fyrir skömmu. Kosin var
ný stjórn og í aðrar trúnað-
arstöður félagsins.
Nýja stjórn Eyverja skipa Einar
Öm Amarsson formaður, Kristín
Inga Grímsdóttir varaformaður,
Guðmundur Ólafsson gjaldkeri,
Jóhann Örn Friðsteinsson ritari og
Birkir Ivar Guðmundsson, Birgir
Stefánsson og Gottskálk Ágústsson
meðstjómendur.
Eyverjar vilja nota tækifærið til
að minna fólk á að skila inn
breytingum á símanúmerum og
heimilisföngum í Upplýsingaritið
til Frétta/Eyjaprents ehf. Upp-lýsin-
garitið mun koma út fljótlega á
næsta ári.
Listaskóli í Vestmannaeyjum:
Starfsemin hefjist L sept.
Það stendur til að stofna list-
askóla í Eyjum eins og komið hefur
fram. í honum sameinast Tónlistar-
skólinn, leiklistar- og myndlistar-
kennsla. Tilgangurinn sem liggur
að baki er að eíla núverandi starf á
þessu sviði og eru væntingar að
slíkur skóli myndi auka og efla
lista- og menningarlíf í Eyjum segir
Arnar Sigurmundsson formaður
skólamálaráðs.
Tónlistarskólinn verður stærsta
eining nýs skóla en leiklistar- og
myndlistamámskeið verða einnig
kennd í hinum nýja skóla. Nú er verið
að athuga hvemig hefur verið staðið
að svipuðum málum í öðmm sveitar-
félögum. Stendur til að gera
kostnaðaráætlun en ljóst er að nýtt
húsnæði þarf undir listaskólann enda
Tónlistarskólinn nú þegar í hús-
næðiskröggum. Stefnt er að því að
starfsemi skólans hefjist 1. september
á næsta ári.
Sjálfshjálpnrhópur um
sorg býður lil funJar
Laugardaginn 14.12. kl. 18:00 mun
Sjálfshjálparhópur um sorg halda fund
í safnaðarheimilinu. Þar mun
Sigtryggur Þrastarson tala og greina
frá reynslu sinni af missi og sorg.
Áður hafa tveir slíkir fundir verið
haldnir, þar sem syrgjendur hafa deilt
reynslu sinni með öðmm. Gafst það
einkar vel og varð mörgum til
styrkingar á göngu sorgarinnar, því er
nú enn efnt til fundar af þessu tagi.
Hvetjum við alla syrgjendur til að nýta
sér þetta tilboð með okkur. Heitt
verður á könnunni og kertaljós á
borðum.
Fimmtudagur 12. desember 1996
sina í kirkjunni sunnudaginn
15. desember nk. kl. 20.50
Flutt verður fjölbreytt efnisskrá
með aðstoð hljóðfæraleikara úr
Tónlistarskóla Vestmannaeyja og
einsöngvari með kórnum verður
Sigrún Hjálmtýsdóttir
sópransöngkona
Stjórnandi kórsins er
Quðmundur H. Quðjónsson.
Aðgöngumiðar verða seldir við
innganginn og kosta 800 kr.
ór Landakirkju
ARSHATIÐ
Árshátíð Sjómannafélagsins Jötuns verður í
Alþýðuhúsinu laugardaginn 28. desember nk. og
hefst með borðhaldi kl. 19.30. Dansað til kl.
03.00.
Hljómsveitin Dans á rósum
leikur fyrir dansi.
Miða og borðapantanir á skrif-
stofu félagsins og í síma
481 -2017 (Valmundur).
Miðaverð kr. 2.500.
Stjórnin
Bæjarbúar
athugið
Öll útsend sorpeyðingargjöld eru nú gjaldfallin.
Þeir sem enn eiga ógreitt, vinsamlegast greiði nú
þegar.
Að gefnu tilefni vilja Bæjarveitur minna á að sorp-
eyðingargjöld njóta lögveðsréttar í fasteign þar sem
rekstur fer fram, án tillits til þess hvort rekstraraðili sé
eigandi fasteignarinnar.
Bæjarveitur mæla með því að eigendurfasteigna geri
ráð fyrir sorpeyðingargjöldum við gerð leigusamn-
inga.
BÆJARVEITUR
VESTMANNAEYJA
Starfsnefndin