Fréttir - Eyjafréttir - 12.12.1996, Page 14
14
Fréttir
Fimmtudagur 12. desember 1996
llf IMIMIMIKP = ISpiff]@8ir f®GD@í?SoDg
Af hverju
Tréspíra-
málið i bók
Sigurjón Magnús Egilsson, blaða-
maður og ritstjóri hefur tekið
saman bók sem hann kallar Sönn
íslensk sakamál. Eins og nafnið
bendir til fjallar bókin um
sakamál sem komið hafa upp hér
á landi. Þau gerast frá því fyrir
miðja öld og fram á okkar daga.
í einum kaflanum er sagt frá
spíramálinu svokallaða í
Vestmannaeyjum. Það kom upp á
þjóðhátíðinni 1943 og er ein mesta
hörmungarsaga sem gerst hefur hér
á landi á þessari öld. Aðdragandinn
var sá að áhöfn á bát fann tunnu á
reki og hafði með sér í land. Hún
innihélt spíra, sem seinna kom í ljós
að var tréspíritus. Tréspirítusinn
komst í umferð á þjóðhátíðinni og
áður en yfir lauk dóu sjö manns og
fjöldi manns veiktist og sumir
varanlega.
I kaflanum, sem Siguijón byggir
greinilega á dómsskjölum um
málið, er atburðarásin rakin mjög
nákvæmlega og greint frá nöfnum
allra sem koma við sögu. Frásögnin
greinir ekki frá því reiðarslagi sem
þessi atburður var fyrir ekki stærra
samfélag en Vestmannaeyjar vom á
þessum árurn. En það má lesa á
milli línanna og hætt er við að
þjóðhátíðin hafi átt sinn þátt í
hvemig fór því þá vill oft verða
skortur á áfengi.
Altarið og Ijósaboginn í Landakirkju.
Um allt land, í litlum bæjarfélögum
sem stórum, eru menn með áhuga
önnum kafnir við að vemda og við-
halda gömlum munum og minjum.
Gömlum húsum er haldið við eða
endumýjuð í upphaflegd mynd.
Gömlum munum er komið fyrir á
sínum upprunalega stað og reynt eftir
megni að forða sérkennum byggð-
arlaganna frá vanhugsuðum gjörðum
misviturra ráðamanna; jarðýtutönnum
og malbiki.
I sumum bæjarfélögum hefur meist-
aralega tekist til við að viðhalda því
gamla en jafnframt fylgjast með nú-
tímaframförum. Hér í Eyjum hefur
margt verið vel gert en líka margt sem
miður hefur farið og mörgu sem
tengist sögu Eyjanna hefur verið
tortímt. Má þar t.d. nefna gamla
Tangahúsið. Einnig hafa sléttlending-
ar og fræðingar með reglustiku fengið
að hafa of mikil áhrif. Við höfum
þannig á mörgum sviðum sætt okkur
við „sæmilegt" þegar sama verkið
gæti hafa verið frábært eða hrein
snilld, ef metnaður, útsjónarsemi,
ofurlítið listrænt auga og tilfinning
fyrir því hvar við búum hefði fengið
að ráða. Þar get ég t.d. nefnt svæðið
austan við Eyjabúð - Snyrtilegt - Já, já
að sumra mati - En steingelt og grátt.
Og nú er komið að ljósboganum í
Landakirkju. Árið 1903 var settur upp
bogi framan og ofan við kórinn í kirkj-
unni. Bogi þessi var lýstur upp með
kertaljósum uns rafmagnið tók við
árið 1916. Þá var komið fyrir á honum
perustæðum og berar pemmar gengdu
hlutverki kertaljósanna fram undir árið
1962. Það ár létu faðir minn, Páll
Scheving og systkini hans gera ljósa-
samstæðu, sem eins og segir í
kirkjubókum: „Var settur yfir kirkjuna
framan við altarið." Gáfu þau Landa-
kirkju búnað þennan til minningar um
foreldra sína Kristólínu og Svein
Scheving en á þessu ári, 1962, vom
hundrað ár frá fæðingu hans. Höfðu
þau hjónin starfað áratugum saman
fyrir og við kirkjuna. Hún sá um
hreingemingar og hann var í sóknar-
nefnd frá árinu 1889 til dánardægurs
1943. Lengst af sem formaður sókn-
amefndar, fjárhaldsmaður og einnig
meðhjálpari.
Ljósabúnaður þessi var gerður eftir
ábendingum og í samráði við Bjöm
Th. Bjömsson listfræðing. Nú fyrir
skömmu, þegar viðgerð fór fram í
kirkjunni var boginn tekinn niður og
ástæðan sögð vera að festingar væm
famar að gefa sig. Hvort sú ástæða var
rétt eða eitthvað annað bjó að baki
veit ég ekki en óróa fór að gæta meðal
ýmissa safnaðarmeðlima vegna orð-
róms um að boginn færi ekki upp
aftur. Eftir áreiðanlegum heimildum
hef ég að órólegastir allra hafi verið
húsfriðunamefndarmenn þegar þeir
fréttu af málinu og vom víst stór orð
látin falla. Endirinn varð sá að tveir
vitringar frá þeim vom sendir til Eyja
í rannsóknarferð. Úrskurður þeirra
kom svo í bréfi skömmu seinna.
Greinilegt var þá að einhver hafði
talað við einhvem og annar kippt í
spotta því nú var komið annað hljóð í
strokkinn; og það var að boginn ætti
að fara - Fellur ekki inn í heildar-
myndina og fjarlægið lfka vinsam-
legast líka parketið sem nýlega var
lagt á „loftið".
Eg er ekki kirkjurækinn maður en
Ljósmynd Sigurgeir Jónasson.
ber þó sterkar taugar til Landakirkju
eins og eflaust flestir Eyjamenn,
búsettir hér og brottfluttir. Eins finnst
mér að mér sé skylt vegna ættmenna
minna að hreyfa við málinu.
Mjög ríka ástæðu hlýtur að þurfa til
að fjarlægja svona hlut eins og ljós-
bogann, sem lýst hefur upp kirkjuna í
níutíu og þrjú ár og er í minningu
margra hluti af gleði- og sorgarstund-
um í gegnum tíðina.
Ástæðuna þarf að opinbera og það
með rökum.
Sigurgeir Scheving.
UNGLINGARI KFUMSfK OG
FORELDRAR ÞEIRRA ATHUGIÐ!
Jólafundurinn sem við auglýstum að væri
sunnudaginn 15. des. færist til LAUQARDAQSINS
14. des. Unglingar mætið kl. 20.00 í
safnaðarheimilin með kökurnar.
Foreldrar mætið upp í kirkju kl. 20.30.
Mætum í jólaskapi
Aldís og Gylfi æskulýðsfulltrúar
Það er einfalt að
tryggja skattaafslátt
Nýþjónusta íboði hjá öllum svæðisskrifstofum VÍS
Svæðisskrifstofur VÍS um land allt bjóða þl þjónustu í dessmber að ganga
frá kaupum á hlutabréfum í traustum hlutabréfasjóði sem veitir réttá
skattendurgreiðslu á næsfa ári.
Verslun tíl sölu
BiIIiardstofan Nova
Af sértökum ástæðum er verslunin til sölu.
Mjög góðir framtíðarmöguleikar.
Upplýsingar hjá
Jóhanni Péturssyni
hdl, sími 481-2622
Hlutabréfin eru í Almenna hlutabréfasjóðnum sem er í vörslu Fjórvangs hf.
Almsnni hlutabréfasjóðurinn er góður kostur fyrir þá sem vilja dreifa áhættu
og njðta góörar ávöxtunar, auk skattendurgreiðslunnar.
Starfsfólk næstu svæðisskrifstDfu VÍS vaitir fúslega allar frekari upplýsingar.
Einnig er hægt að hafa samband við ráögjafa Fjárvangs hf. í síma 5 40 50 60.
vár
VÍmCCWGAftoB
luNiisn
Árniúla 3, sfmi 5BD 50 E
FJÁRVANGUR
Lllllll TUIlKHFYIIiriLI
Lhugavegi 170, sfmi 5 40 50 60