Fréttir - Eyjafréttir

Eksemplar

Fréttir - Eyjafréttir - 12.12.1996, Side 15

Fréttir - Eyjafréttir - 12.12.1996, Side 15
Fimmtudagur 12. desember 1996 Fréttir Árni Johnsen og Ósvaldur Freyr á gíturunum. Fjögur hundruð manns d bjórkvöldi ÁTVR Kolla og Biggi og Bói og Gógó. Hið árlega bjórkvöld Átthagafélags Vestmannaeyinga í Reykjavík og nágrenni (ÁTVR) var haldið á Rauða ljóninu 29. nóvember síðastliðinn. Aðsókn fór fram úr björtustu vonum því hvorki fleiri né færri en 400 manns mættu á bjórkvöldið, takk fyrir. Geri aðrir betur. Að sjálfsögðu var glaumur og gleði ásamt glóandi glösum þar sem lagið var tekið undir stjóm gítarleikaranna Áma Johnsen, Osvalds Freys Guðjónssonar og síðast en ekki síst Hafsteins Ragnarssonar. Stemmning á Rauða Ijóninu var frábær, eins og Eyjamanna er von og vísa. Athygli vakti hve góð mæting var í árgangi ‘52. Þessi frábæra aðsókn sýnir svo ekki verður um villst hve sterkar taugar brottfluttir Eyja- menn hafa til sinnar heimabyggðar og er í mun að halda tengslum við aðra brottflutta Eyjamenn. Myndir: Ragnar Sigurjónsson. Kristinn Egilsson og hjónin Gunnar Guðnason og Erna Ólsen. Elín Birgitta Minning þín er mér ei gleymd, mína sál þú gladdir. Innst i hjarta er hún geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. Þessi vísa eftir Káin, minnir mig á Elínu Birgittu, elskaða vinkonu mína, sem lést aðfaranótt laugardagsins 7. des. sl. Blessuð sé minning þín. Þinn vinur Eyvar FRÁ BRIDS- FÉLAGINU Þriðja umferð hraðsveitakeppninnar var s.l. fimmtudag. Efstir eftir kvöldið varð sveit Friðþjófs með 462 stig, í öðru sæti varð sveit BPL með 455 stig. Staðan eftir þrjár umferðir er því svona: 1. Sveit Friðþjófs (Friðþjófur, Þórður, Hjölli, Rúnar)....... 1357 stig 2. Sveit BPL ( Daniel, Guðbjöm, Magnea, Guðmundur) ........... 1335 stig 3. Sveit Benna (Benni, Sævar, Einar, Óli H., Óli Týr)..... 1325 stig 4. Sveit Siggu (Sigga, Ásdís, Samba, Hjálmfríður)......... 1296 stig 5. Sveit Villu (Villa, Hanna B., Steini, Björgvin)............ 1167 stig Eins og sjá má er keppnin mjög jöfn og spennandi. Aðeins munar 22 stigum á fyrsta og öðm sæti, og 10 stigum á öðru og þriðja sæti. Síðasta umferð hraðsvejtakeppninnar verður spiluð í kvöld. Á föstudaginn var spi- laður „Landstvímenningur" með þátttöku 8 para. Ekki höfum við fengið úrslit keppninnar yfir landið, en vonandi getum við sagt frá þeim í næstu Fréttum. Efstir hér urðu í N-S Magnea og Guðmundur með 66 stig, og í A-V Sigga og Ásdís með 55 stig. Fimmtudaginn 19. desember verður jólasveinakeppni félagsins, og þá em allir bridsspilarar velkomnir. Stjórnin. Jólaþjónusta Linsunnar verður í versluninni Ninju í dag FIMMTUDAG. Sparigleraugu fyrir jólin Viðgerðaþjónusta Góð gleraugu - Gott verð LINSAIM

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.