Fréttir - Eyjafréttir

Eksemplar

Fréttir - Eyjafréttir - 12.12.1996, Side 17

Fréttir - Eyjafréttir - 12.12.1996, Side 17
Fréttir 17 Fimmtudagur 12. desember 1996 Lúðvík Bergvinsson, alþingsmaður, skrifar: Hugleiðingar um stjórn fiskveiða Undanfamar vikur og mánuði hefur mikil umræða átt sér stað í fjölmiðlum um núverandi fiskveiðistjómunar- kerfi. Kerfið hefur einkum verið gagnrýnt vegna meints kvótabrasks og það að sjómenn skuli hafa verið þvingaðir til þáttöku í braskinu. Þá hefur kvótakerfinu verið kennt um sinn þátt í því að fiski sé hent í stað þess að komið sé með hann að landi. Forsvarsmenn útgerðarmanna hafa því miður lítið látið til sín taka í þess- ari umræðu. Það vakti því athygli þegar framkvæmdastjóri Vinnslu- stöðvarinnar, Sighvatur Bjamason, ritaði grein í Morgunblaðið nú nýverið undir fyrirsögninni „Hugleiðingar um veiðileyfagjald." Greinin er athyglis- verð fyrir margra hluta sakir þó hún marki ekki straumhvörf í umræðunni um fiskveiðistjómun. Það sem vakti sérstaka athygli mína var hversu dómharður höfundur er um skoðanir þeirra, sem eru honum ekki sammála, auk fjölda þversagna sem þar er að finna. Sérstaklega virðist höfundi uppsigað við Alþýðuflokkinn. en þar telur hann að ekki sé finna nokkum þingmann, sem greini kjam- ann frá hisminu, eins og hann kemst svo skemmtilega að orði. Því vakti það eftirtekt að í nefndri grein skuli höfundur gera tillögur hins úthrópaða flokks, um að sjávarútvegurinn standi undir kostnaði við rekstur þjónus- tustofnana sinna, að sínum. En í tillögum flokksins við fjárlagagerð fyrir árið 1996 lagði hann til að lagt yrði á veiðileyfagjald 1,65 kr./kg. á landaðan afla umreiknuðum í þorsk- ígildi. Þessum fjámiunum átti að verja til reksturs þessara stofnana. Það getur verið erfitt að greina kjamann frá hisminu. Þá vekur það ekki síður eftirtekt að í umræddri grein er goldinn varhugur við álagningu veiðileyfagjalds „vegna þess að það muni leiða til samþjöpp- unar á aflaheimildum, vemlegrar byggðaröskunar og stöðvunar á fram- þróun sjávarútvegsins." A hinn bóginn em í greininni lagðar til breytingar á núverandi kerfi, sem á að leiða til þess að skip með takmarkaðar aflaheimildir „leggi upp laupana," eins og höfundur kemst að orði. Varla leiddi sú leið til frekari byggðaröskunar en orðið er og samþjöppunar aflaheimilda, eða hvað? Þrátt fyrir að kvótakerfið sé tákn- rænt fyrir ofstjómun, skömmtun og miðstýringu; þar sem fáum útvöldum er heimilaður aðgangur að auð- lindinni; þar sem stjómvöld breyta reglum um rekstrarumhverfi frá ári til árs, er hvergi að finna hugleiðingar um það hjá höfundi að afnema kerfið þrátt fyrir að hann telji, reyndar með réttu, að miðstýring eigi að heyra fortíðinni til og að frelsi og einkafram- tak sé það sem mestum árangri skili í atvinnurekstri. Þar er því væntanlega átt við frelsi og einkaframtak hinna útvöldu, eða hvað? Þó grein höfundar gangi ekki að öllu leyti upp í röklegu samhengi og höfundur gerir sig sekan um að tína til röksemdir af handahófi eftir því hverra hagsmuna verið er að ganga. Þá gerir höfundur því skóna að sendi- boði hinna válegu tíðinda, Morgun- blaðið, eigi sök á því hvemig um- ræðan hefur þróast, en telur ekki ástæðu til að nefna að hugsanlega er frjór jarðvegur fyrir skoðunum blaðs- ins. Á hinn bóginn er að finna hugleiðingar og hugmyndir í um- ræddri grein, sem undirritaður getur vel tekið undir, en af skrifum höfúndar má ráða að það geti vart talist hug- myndunum til tekna. Stjórn fiskveiða Þegar núverandi kvótakerfi var tekið upp um miðjan síðasta áratug var sú ákvörðun rökstudd; að þannig mætti takmarka heildarafla og stunda veiðar á hagkvæmari hátt en áður. Þetta hefur að nokkm reynst rétt. Því sjávarútvegsfyrirtæki em farin að skila arði, þrátt fyrir talsverðan samdrátt í aflaheimildum sumra tegunda undan- farin ár. Enn fremur virðast fiski- stofnamir vera famir að rétta úr kútnum, hvort sem það er kvóta- kerfmu að þakka eður ei. Á hinn bóginn hafa komið í ljós ýmsir ágallar á kerfinu. I fyrsta lagi hefur sú gríðarlega eignatilfærsla sem kerfið hefur leitt af sér sært réttlætis- vitund fólks, þar sem ekkert gagngjald hefitr komið í staðinn. I öðm lagi hefur ekkert verið gert til að takast á við þann hvata að henda fiski eða landa honum framhjá vigt, sem er innbyggður í kerfið. Undir- ritaður hefur áður sett fram hugmyndir um að skipum verði heimilað að landa einhverju hlutfalli af sínum aflaheim- ildum, án þess að það telji í kvóta. Slíkur afli yrði seldur á markaði og andvirði hans rynni að stærstum hluta í ríkissjóð, en einhverjar krónur fæm til útgerðarmanna og sjómanna til að vega upp á móti kostnaði og vinnu. Núverandi sjávarútvegsráðherra hefur ekki viljað taka á þessum vanda. I ræðu sem hann flutti á Fiskiþingi nýverið kemur glöggt fram sú ofurtrú sem ráðherra hefur á þeirri leið að lagfæra galla kerfisins með auknum refsingum, auk hugmynda um upp- setningu einhverskonar njósnanets, eða eins og ráðherra orðaði það í um- ræddri ræðu: „Mér finnst mjög mikilvægt að þeir, sem á sjónum em, komi fram með upplýsingar sem þessar og geri það mögulegt að taka á afbrotum eins og þessum. Það fyrirtæki sem á í hlut getur, ef þessar ásakanir reynast réttar, átt vemlegar refsingar í vændum, háar sektir og jafnvel sviptingu veiðileyfis." Sú hug- myndafræði sem þama birtist er að mínu mati hvorki vænleg til árangurs né gott innlegg í þá umræðu að takast megi að ná nauðsynlegri sátt í sam- félaginu um stjóm fiskveiða. í þriðja lagi er erfitt að finna rök fyrir gildandi úreldingarreglum. Stjóm fiskveiða, sem byggir á útdeilingu veiðiheimilda á hvert skip, þarf ekki samhliða að hafa hönd í bagga um það á hvers konar skipum veiðar em stundaðar. í íjórða lagi hlýtur það að koma til skoðunar hvort ekki geti reynst nauðsynlegt að setja hámark á þá aflahlutdeild, sem einstakt fyrirtæki getur fengið úthlutað. f fimmta lagi hljóta að koma til skoðunar hugmyndir eins og hvort æskilegt sé að öll verðmyndun á fiski eigi sér stað á markaði. Hvort hækka eigi það hlutfall sem skip, sem fær úthlutað aflaheimildum, þarf að veiða á tveggja ára tímabili án þess að komi til skerðingar, í því skyni að spoma gegn kvótabraski. í dag er þetta hlut- fall 50%. Ennfremur er það umhugs- unarefni, þegar afrakstursgeta fiski- stofna er meiri en veiði- og vinnslu- geta, sbr. loðnustofninn undanfarin ár, að fleirum skuli ekki gert kleift að stunda veiðamar en þeim sem fá út- hlutað aflaheimildum. Veiðileyfagjald Umræðan um veiðileyfagjald hefur ekki verið nægilega aðgreind umræð- unni um fiskveiðistjómunarkerfi. Veiðleyfagjald getur gengið í hvaða fiskveiðistjómunarkerfi sem er og umræðan um það er því sjálfstæð án tillits til þess við hvers konar fiskveiðistjómunarkerfi er búið. Rökin fyrir veiðileyfagjaldi era margvísleg. f íyrsta lagi eru nefnd rétt- lætisrök. Grundvöllur veiðileyfa- gjaldsins er sú staðreynd að fiskistofn- amir kringum landið em eign allrar þjóðarinnar. Þessum verðmætum var upphaflega úthlutað án þess að greiðsla hafi komið íyrir. Kerfið hefur því haft í för með sér eignatilfærslu til þeirra sem fengu úthlutað aflaheimil- dum. 1 öðm lagi hefur verið bent á veiði- leyfagjald sem hagstjómartæki sem grípa megi til, sem leið til sveiflujöfn- unar í sjávarútvegi. Fjölmörg fleiri rök má nefna íyrir veiðileyfagjaldi, má í því sambandi nefna að greiðsla sem kemur fyrir sölu veiðiheimilda er ekkert annað en veiðleyfagjald. Sú greiðsla rennur í vasa þeirra sem fengu úthlutað aflaheimildum. Þau rök sem einkum hafa verið notuð gegn upptöku gjaldsins, er að það sé sérstakur skattur á landsbyggð- ina. Því má halda fram að í núverandi kerfi séu staðir, sem ráða yfir litlum aflaheimildum, skattlagðir sérstaklega því að þeir þurfa að greiða vemlegar íjárhæðir til handhafa veiðiheimilda. Þá má geta þess að þegar Reykja- víkur- og Reykjanesssvæðið em lögð saman kemur út stærsta sjávarútvegs- svæði landsins, og því öfugmæli að halda því fram að upptaka veiði- leyfagjalds sé sérstakur skattur á landsbyggðina. Þá hafa verið sett fram rök um að upptaka slíks gjalds leiddi til þess að veiðiheimildir söfnuðust á færri hendur, sem hefði í för með sér byg- gðaröskun. Þvi er til að svara að núverandi kerfi hefur leitt til þessarar þróunar. Samantekt Það að taka upp stjómkerfi við fiskveiðar þýðir að aðgangur að auð- lindum sjávar er takmarkaður. Þessi takmarkaði aðgangur yrði að verð- mætum, (aflaheimildir), sem stjóm- málamenn ákváðu að yrðu framseljan- leg ein og sér. Eg tel að ekki hefði skipt máli hvaða stjómkerfi hefði verið tekið upp, öll hefðu þau á einn eða annan hátt leitt til þessarar. Það er því krafan um viðurkenningu á þeirri hugmynd að þeir sem fengu úthlutað þessum verðmætum greiddu fyrir það eitthvert gjald. Hvert það gjald eigi að vera er síðari tíma ákvörðun. Þar koma ýmis sjónarmið til skoðunar. Hugmynd framkvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar um að gera langtímasamning milli aðila í sjáv- arútvegi og stjómvalda, um aðgang að auðlindinni, er að mínu mati allrar athygli verð. Ef áframhaldandi uppbygging á að eiga sér stað í sjávarútvegi þarf greinin að gera það af eigin rammleik. Slík fyrirkomulag veiðanna. uppbygging mun ekki eiga sér stað Lúðvík Bergvinsson nema stjórnvöldum takist að tryggja Höfundur erþingmaður Alþýðu- greininni eins ömggt rekstrarumhverfi flokksins í Suðurlandskjördæmi og á og mögulegt er. Til þess að svo geti sœti í sjávarútvegsnefnd. orðið þarf að ná nauðsynlegri sátt um íbúð aldraðra Eyjahrauni 3 Laus ertil umsóknar leiguíbúð að Eyjahrauni 3. Um er að ræða 57,3 fm hjónaíbúð, tvö herbergi og eldhús. Almenn skilyrði umsækjenda er að viðkom- andi hafi náð 67 ára aldri á árinu og átt lögheimili í Vestmannaeyjum sl. 5 ár. Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu félagsmálastofnunar í kjallara Ráðhússins. Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar. Nánari upplýsingar veitir félagsmálastjóri ísíma 481- 1092 milli kl. 10.00-12.00. Félagsmálastjóri Atvinna Starfsfólk vantar í afleysingar á Hraunbúðum frá áramótum. Nánari upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri Hraunbúð eða ísíma 48-1087 Frá Félags- málaskrifstofu Óskum eftir litlu eldhúsborði og stólum. Upplýsingar í síma 481-1092

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.