Fréttir - Eyjafréttir - 12.12.1996, Síða 19
Fimmtudagur 12. desember 1996
ÍPRÓTTIR
19
Ovæiti fjárútiát
fyrir sundlaugina
Ovænt reglugerð skyldar allar
stærri sundlaugar landsins til að
setja upp sjálfvirkan klór- og
sýrumælingabúnað. Reglugerð
þessi hefur komið flestum sveitar-
félögum í opna skjöldu, enda
höfðu þau ekki gert ráð fyrir
þessum aukakostnaði í fjárhags-
áætlun þessa árs. Sigmar Hjart-
arson, heilbrigðisfulltrúi, hefur af
þessum sökum sent frá sér bréf
þar sem bent er á að sundlaug
Vestmannaeyja verði að festa
kaup á slíkum búnaði.
Sigmar segir að hingað til hafi
klór- og sýrumagn laugarinnai' verið
í eðlilegu horfi en þar sem þessar
kröfúr séu nú fyrir hendi beri að
verða við þeim, enda sé þetta af hinu
góða og bæti sóttvamir.
Vignir Guðnason, forstöðumaður
íþróttamiðstöðvarinnar, segir að
skjótt hafi verið brugðist við og nú
þegar standi yfir viðræður við ýmsa
aðiia vegna tilboða. Aætlaður kostn-
aður er á bilinu 1 til 2 milljónir og
því er ljóst að ef búnaðurinn á að
vera kominn upp fyrir gefinn frest.
sem er 1. janúar 1997, verður að slá á
frest einhverju af fyrirhuguðunt
breytingum á sundlaugarsvæðinu.
Búnaðurinn, sem kemur frá
Bretlandi eða Þýskalandi, mun mæla
við inntak hversu mikið magn klór
og sýru er í lauginni og pottunum og
bæta við eftir þörfum þannig að alltaf
verður visst magn í vatninu.
Tækjunum verður komið íyrir í kjall-
ara laugarinnar, eitt við hvert af þeim
fimm kerfum sem þar eru, og tengd
hússtjómarkerfi þannig að á tveimur
tölvum verður hægt að fylgjast
nákvæmlega með mælingunum.
Búnaður þessi er þegar fyrir hendi
við þrjár sundlaugar, í Árbæjarlaug-
inni í Reykjavík, Kópavogslaug og
Suðurbæjarlaug í Hafnarfirði og
hefur hann gefið góða raun.
TX-210 og Vinstri bræðingur efstir
Það er frekar lágt, risið
á tippurum þessa vik-
una því árangur sfðustu
helgar var í hreinskilni
sagt hræðilegur. Sem
dæmi um hremmingar
tippara, þá vann ekkert
af toppliðunum þessa
helgina, nema Wimble-
don sem aldrei ætlar að hætta þessari
sigurgöngu sinni. A þessu voru þó
nokkrar undantekningar og náði Heiðar
öryggisvörður 8 réttum. Tveir hópar
náðu 7 réttum, en það voru hinir eitil-
hörðu félagar í Vinstri bræðingnum og
Borgarbömin. Þessir tveir hópar eiga
það sameiginlegt að helmingur þeirra er
búsettur í Reykjavík. Guðmundur Jens-
son í Vinstri bræðingnum og Stefán
Erlendsson í Borgarbömunum. Þrír
hópar vom með 2 rétta og vom það
Handriðið, Tveir á toppnum og loks
Hinir geðgóðu bræður Frikki og Oðin
Sæbjömssynir meistarar frá síðustu
keppni. Þetta þótti öðmm tippurum
mjög leiðinlegt. (not)
Staðan í A-riðli er þannig að TX-210 er
efstur með 19 stig, Asinn, Svarti Pétur
og Babar fflakonungur í 2.-3. sæti með
18 stig og í 5.-6. sæti með 17 stig em
Cantona og Flug-eldur.
I B-riðli situr Vinstri bræðingurinn sem
fastast í efsta sæti með 23 stig, 4 stigum
meira en efsti hópur f A-riðli. Heiðar
öryggisvörður er í 2. sæti með 21 stig,
Bæjarins bestu í 3ja sæti með 20 stig.
Rommaramir em í 4. sæti með 19 stig
og Borgarbömin í 5. með 18 stig.
B-riðill ber nú höfuð og herðar yfir A-
riðil ef tekið er meðaltalsárangur í þeim
þremur umferðum sem búnar em.
Meðaltalið í B-riðli er 16,95 stig og í A-
riðli 14,91. Það em því rúmlega tveir
heilir sem skilja riðlana að.
Athyglisvert er að skoða árangur
hópsins Hnerr til þessa. Hann er nú
með 10 rétta og hvorki gengur né rekur.
Hópinn skipa þeir félagar Ragnar
Oskarsson og Einar Friðþjófsson fyrmm
meistarar. Ragnar er staddur erlendis,
en nýtir sér tæknina og sendir raðimar
með faxi til Einars. Verið er að
endurskipuleggja aðferðafræðina á bak
við tipp þeirra félaga og verður fróðlegt
að sjá hverju fram vindur, en ekki fæst
gefið upp í hveiju hún er falin.
Tippari vikunnar í síðustu Fréttum,
Jóshúa Steinar Oskarsson var með 3
rétta og þykir bara nokkuð gott. Eggert
Garðarsson verður við áskomn Steinars
um að gera betur og við skulum sjá
hvað hann leggur til.
Tippari vikunnar
Eggert Garðarsson
Ég byija á að óska Donda til hamingju
með frábæran árangur í sfðasta pistli þar
sem honum tókst að giska á 3 rétta af 13
semernýtinguppá23%. Honumerþví
að fara fram. Hér á eftir kemur röðin
mín fyrir næsta laugardag og svo er bara
að sjá hvað setur.
1X1-121-211-1X11
Ég skora á félaga mmn í knattspyrnu-
ráðinu, Jóhannes Ólafsson, heiðar-
legasta mann fþróttahreyfingarinnar og
besta vin Gunnars bakara á Skaganum.
Þrettándafundur
rík. sunnudag, 15. des kl.
17.00 (fimm) verður
haldinn í ÍBV-heimilinu við
Hástein þrettándafundur.
Álfar, tröll, jólasveinar og
allir þeir sem hafa starfað
við þrettándahátíðahöldin,
svo og þeir sem hug hafa
á að starfa, mætið og takið þátt í að móta
þrettándann.
Þrettándanefhdin
1 ■ deild karla • IBV í sviðsljósinu enn eina ferðina
HK tiI skammar
ÍBV átti að spila gegn HK í gær-
kvöldi í 1. deild karla. Leikurinn
átti fyrst að fara fram sl. sunnudag
en var frestað vegna veðurs. Næsta
tilraun var gerð sl. mánudag en þá
komust Eyjamenn heldur ekki til
leiks. Þá gerðist sá fáheyrði
atburður að leikurinn var flautaður
af, þ.e. þar sem Eyjamenn mættu
ekki til leiks að þá var HK dæmdur
sigurinn.
Samkvæmt upplýsingum frá hand-
knattleiksráði ÍB V beið IB V liðið úti á
flugvelli á mánudaginn vel á annan
tíma eftir flugvélinni. Vegna veðurs
gat hún ekki lent og var henni snúið
við. Eyjamenn tilkynntu hálftíma fyrir
leik að þeir hefðu ekki komst upp á
land með flugi en þrátt fyrir það var
leikurinn flautaður af. Þeir viðurkenna
að það hefði getað tilkynnt þetta
hálftíma fyrr. Fulltrúi ÍBV sem stadd-
ur var í Kópavigi var látinn vita um að
Eyjamenn kæmust ekki til leiks. Hann
lék HK-menn vita hálf tíma fyrir leik
en þeir létu ekki dómara leiksins vita
sem flautuðu í framhaldi af því leikinn
af. Handboltaforystan er mjög ósátt
við framkomu HK-manna og skrif
Morgunblaðsins unt þetta mál, að hafa
ekki kynnt sér báðar hliðar málsins, og
finnst þetta blaðinu til háborinnar
skammar.
„Þetta var með ólíkindum. Þeir
ályktuðu sem svo að þar sem flugvélin
fór í Ioftið að þar með væri öruggt að
leikurinn yrði. Vélin þarf auðvitað að
lenda í Eyjum. Svona uppákoma er
handboltanum ekki til framdráttar
heldur til skammar," sagði Þorbergur
Aðalsteinsson, þjálfari IBV.
HSI fundaði svo um málið á þriðju-
daginn og var ákveðið að Eyjamenn
þyrftu ekki að skila inn skýrslu um
málið þar sem það lá alveg hreint
fyrir. Leikurinn skyldi endurtekinn og
átti hann að fara fram í gærkvöldi.
Burstuðu KA
Eins og kunnugt er burstaði ÍBV
bikarmeistara KA í síðustu viku, 34-
23 eftir að staðan í hálfleik var 19-8.
„Við tökum KA í bakaríið," sagði
Amar Pétorsson í Fréttom fyrir leikinn
og stóð við stóru orðin. Eyjamenn
fóru á kostum og spiluðum einn sinn
besta frá upphafi. Gunnar Berg og
Belanyi áttu stjörnuleik líkt og allir
leikmenn liðsins.
Mörk ÍBV: Gunnar Berg Viktorsson
8, Zoltan Belanyi 8/3, Guðfinnur
Kristmannsson 4, Sigurður
Friðriksson 3, Haraldur Hannesson 3,
Davíð Þór Hallgrímsson 2, Svavar
Vignisson 2, Daði Pálsson 1/1,
Erlingur Richardsson 1, Amar
Pétorsson 1/1, Sigmar Þröstor Óskars-
son 1. Sigmar Þröstur varði 18 skot,
þaraf 2 víki.
Aðalfundur GV • 25 millj. kr. skuld
Meginverkefnið
að grynnka á
skuldunum
IBV fékk
Dragostyttuna
Á ársþingi KSÍ um þar síðustu
helgi var afhent svokölluð Drago-
stytta til prúðasta knattspyrnuliðs
landsins. Dragostyttona fær það lið
sem fékk fæst gulu og rauðu
spjöldin. Þau undur og stórmerki
gerðust að ÍBV fékk Dragostyttuna
að þessu sinni, í fyrsta sinn í
sögunni í 1. deild. Hins vegarhefur
ÍBV fengið Dragostyttuna sem
prúðasta lið 2. deildar. ÍBV var
langsamlegasta prúðasta liðið, var
með 24 punkta en næsta lið fyrir
ofan var með 32 punkta.
Frá Framherjum
Gunnar K. Gunnarsson var kjör-
inn nýr formaður á aðalfundi
Golfklúbbs Vestmannaeyja fyrir
skömmu. Helstu verkefni nýrrar
stjórnar verða að koma skuldum
GV í lag eftir gífurlegt uppbygging-
arstarf undanfarin ár þar sem
völlurinn var stækkaður úr 9
holum í 18. Skuldir GV eru nú um
25 millj. króna.
Nýja stjóm GV skipa Gunnar K.
Gunnarsson formaður, Sigurður Þór
Sveinsson varaformaður, Sigurgeir
Jónsson ritari, Sigríður Þórsdóttir
gjaldkeri og Atli Elíasson meðstjóm-
andi. Varamenn em Leifur Gunnars-
son og Sigurður Guðmundsson.
Að sögn nýkjörins formanns er
mjög viðburðarfkt sumar að baki þar
sem hæst bar Landsmótið í golfi sem
tókst með miklum glæsibrag.
.Meginverkefni nýrrar stjómar verður
að taka á skuldamálunum eftir miklar
framkvæmdir undanfarin ár. Þær eru
ekki við hættumörk. Á þremur árum
hefur verið framkvæmt fyrir 32
milljónir og standa 25 eftir. Ekki
verður framkvæmt meira næstu árin
heldur stefnt að því að halda vellinum
góðum áfram og borga niður skuldir.”
Um 200 félagar em skráðir í GV og
segir Gunnar að stefnt verði að því að
fjölga þeim enda lumi margir á golf-
settom í kjallaranum. Þá stendur til að
markaðssetja völlinn enn meira til
þess að fá golfara til Eyja í ríkari mæli
en hingað til. Þess má geta að nýliða-
gjald fyrsto tvö árin er 15.000 kr.
„Það er ljóst að við verðum að gæta
ítrasta aðhalds í rekstri næstu árin og
vera með allar klær úti til að afla fjár,”
segir Gunnar.
Yngrí fíokkamir
Stelpurnar í 3. og 4. flokki ÍBV hafa
tekið þátt í tveimur fjölliðamótum í
vetur og hefur þeim gengið mjög
vel.
4. fl. ÍBV lék í 2. deild og gerði sér
lítið fyrir og vann með fullt hús stiga.
ÍBV sigraði Fjölni 18-10, Fram 21-14,
HK 23-5 og UBK 23-3. Kolbrún
Ingólfsdóttir skoraði 24 mörk í
leikjunum fjórum, Eyrún Sigurjóns-
dóttir 19, Hind Hannesdóttir 13, Anna
Rós Hallgrímsdóttir 6, Freydís
Vigfúsdóttir 4, Jóna H. Sigurlásdóttir
2, Lilja Amgrímsdóttir 2 og Hjördís
Jóhannesdóttir 1.
3. fl. ÍBV lék einnig í 2. deild.
Stelpumar lentu í 2. sæti, töpuðu
aðeins einum leik, og komust því ekki
upp í 1. deild. ÍBV vann Fjölni 12-12,
UMFA 13-11 og Stjömuna(B) 12-10.
Hins vegar tapaði IBV fyrir Fram 8-
17. Guðmörg Guðmannsdóttir skoraði
14 mörk fyrir ÍBV, Þómnn Pálsdóttir
8, Eyrún Sigurjónsdóttir 7, Guðrún
Haraldsdóttir 5, Sigríður Ása 4, Aníta
Ársælsdóttir 5 og Freydís Vigfúsdóttir
2.
Þjálfari þessara flokka er Unnur
Sigmarsdóttir.
3. flokkur karla lék í fjölliðamóti
um þar síðustu helgi. Nokkrar vonir
eru bundnar við þennan flokk því
þama em margir efnilegir leikmenn.
En þeir vom eitthvað annars hugar í
þessu móti því ÍBV féll úr 2. deild og
niður íþá þriðju.
ÍB V gerði jafntefli við Aftoreldingu
17-17 en tapaði hinum leikjunum,
gegn KR 15-24, gegn Víkingi 17-23
og gegn Stjömunni 18-19. Óskar
Jósúason var markahæstur ÍBV með
samtals 17 mörk, Jóhann Halldórsson
með 14, Jón Helgi Gíslason 9,
Gottskálk Ágústsson 7 og Andri
Sigurðsson 7.
Blaðinu hefur borist eftirfaraldi
fréttatilkynning frá Framherjum:
„Hjalti Kristjánsson, þjálfari
Framherja, flutti tillögu á ársþingi
KSÍ unt þar síðustu helgi. Stjóm
KSÍ útvíkkaði tillöguna og mega
héraðsdómarar í fyrsta sinn dæma í
bikarkeppni KSÍ á næsta ád, með
vissum formerkjum. Munu
Framherjar, Smástund og mfl.
kvenna líklega öll græða tugi/
hundmð þúsunda á næsta ári vegna
þessarar tilllögu. Ekki sáu
Smástundarmenn ástæðu til að
mæta og styðja þetta þjóðþrifamál.
Þetta var í fyrsta sinn sem 4.
deildarfélögin (heitir nú reyndar 3.
deild) máttu senda fulltrúa. Var góð
samvinna við aðra fulltrúa ÍBV um
ýmis hagsmunamál ÍBV en aðrir
geta rætt um málefni KH-ÍBV.
Tækifæri gafst til að ræða mörg
veigamikil mál við stjóm KSÍ svo
sem leikmannatryggingar og sam-
bandssamninga sem nú voru
samþykktir. Mun þetta breyta
verulega uppsetningu starfsins hjá
félögunum í 3. deild og gera þeim
erfiðara fyrir fjárhagslega.
Stjórn Framherja“
Tvisturinn
Einn með
öllu