Fréttir - Eyjafréttir - 07.08.1997, Qupperneq 2
2
Fréttir
Fimmtudagur 7. júlí 1997
Fréttir
Rólegt og gott
Lögreglumenn í Vestmannaeyjum
em sammála um að þjóðhátíðin í ár
hafi verið með ágætum. „Sú
rólegasta, sem ég man eftir í þau tíu
ár sem ég hef staifað í lögreglunni,”
sagði einn þeirra. Alls voru 245
bókanir í dagbók lögreglunnar frá
miðvikudegi í síðustu viku til
mánudags í þessari viku og hafa oft
fleiri mál komið til kasta lögreglu á
þessum annasama tíma.
Sjö fíkniefnamól
Þrátt fyrir þessi rólegheit, eins og
lögreglumenn nefna það, voru
nokkur atvik sem settu ljótan blett á
hátíðina. Þar á meðal nauðgunar-
málið, sem sagt er frá annars staðar
í blaðinu, og svo þau fíkniefnamál
sem upp komu. Alls voru það sjö
tilfelli og ellefu aðilar sem þeint
tengdust sem neytendur og
söluaðilar. Lögregla lagði hald á 27
grömm af amfetamíni og 5,5
grömm af hassi.
36 gistu fangaklefa
lögreglunnar
Alls voru 36 sem gistu fangaklefa
ýmissa hluta vegna. Og tíu manns
gistu þar að eigin ósk en alltaf
koma upp nokkur tilfelli þar sem
menn eru í húsnæðishraki og hafa
ekki í önnur hús að venda en að
snúa sér til lögreglunnar.
Fjórir stútar
Ölvun er fastur fylgifiskur þjóð-
hátíðar og þarf ævinlega að hafa
afskipti af fólki sem ekki kann
fótum sínum forráð í þeini málum.
Alls þurfti lögregla að hafa afskipti
af ellefu manns vegna ölvunar og
voru flestir þeirra færðir í
fangaklefa þar sem þeir sváfu úr sér
vímuna. Þá voru fjórir teknir fyrir
ölvun við akstur og þrír sem voru
teknir fyrir að aka réttindalausir.
Fjórtón líkamsárásir
Alls voru fjórtán líkamsárásir
kærðar til lögreglu á þjóðhátíð.
Flest voru það minniháttar mál,
tennur höfðu brotnað og þess
háttar. Þá voru fjórtán þjófnaðir
kærðir og hafði þá verið stolið úr
tjöldum. Átta skemmdarverk voru
kærð til lögreglu, ýmist voru þau
unnin í dalnum eða í bænum. Og
fjórum sinnum kom upp eldur í
tjöldum en í öllum tilvikum tókst
að slökkva hann áður en tjón varð
af.
Pysjutíminn fer
í hönd
Nú er hafinn hinn sérstæði pysju-
tími í Vestmannaeyjum, tími sem á
sér enga hliðstæðu annars staðar í
veröldinni. Pysjur eru þegar byrj-
aðar að fljúga, eins og greint er frá
annars staðar í blaðinu fengum við
þá fyrstu í heimsókn á blaðið í
gærdag. Það eru tilmæli frá lög-
reglu að foreldrar sjái til þess að
börn þeirra séu með endurskins-
merki við pysjuleit eftir að skyggja
tekur. Sömuleiðis beinir lögregla
því til ökumanna að þeir taki tillit til
pysjusafnara og sýni aðgát í akstri.
Hingað til hefur pysjutíminn farið
fram stórslysalaust og vonandi að
svo verði áfram.
Að sögn lundaveiðimanna hefur
verið mikið um pysjudauða í sumar
og talið að það stafi af ætisskorti.
Því má búast við færri fugium í
bænum nú í ágúst en endranær.
Eyiamaður í
sjóhrakningum
- Bátur hans sökk við Akranes og komst í land við illan leik
Gunnar Árnason, trillusjóniaður úr
Vestmannaeyjum lenti í hrakning-
um á aðfaranótt laugardags í
síðustu viku þegar bátur hans sökk
við Akranes.
Forsaga málsins var sú að hann
hugðist sigla bátnum frá Ólafsvík til
Eyja. Veðurspá var hagstæð um
morguninn þegar lagt var af stað og
gekk ferðin vel fram yfir hádegi en þá
var hann kominn frarn hjá Malarrifi
með stefnu á Reykjanes. í
Faxaflóanum byrjaði að kula á
suðvestan og ákvað hann því að sigla
inn til Akraness. Rétt utan við
Akranes bilaði vélin og rak bátinn
hratt að landi. Ekki tókst honum að
koma vélinni í gang og steytti hann á
skeri við svonefnda Vesturflös og
síðan lagðist liann á hliðina og
hálffyllti. Engin talstöð var unt borð,
aftur á móti var farsími en sá galli á
gjöf Njarðar að rafhlöður í honum
voru tómar. Því gat Gunnar ekki
kallað eftir aðstoð né heldur gafst tími
til þess. Honum tókst að komast í land
og þar lagði hann land undir fót og
komst kaldur og hrakinn upp í bæ þar
sem hann gat gert vart við sig. Haft
var samband við lögreglustöðina á
Akranesi þar sem hann skýrði frá
málavöxtum og fékk síðan
aðhlynningu á sjúkrahúsinu. Honum
varð ekki alvarlega meint af volkinu.
Strax unt morguninn var geftn ítarleg
skýrsla til Sjóslysanefndar.
Þessi atburður er litinn alvarlegum
augum þar sem ýmislegt er talið hafa
verið vanbúið fyrir sjóferðina. Til að
mynda kom fram í fréttum af atvikinu
að báturinn hefði ekki verið skráður
og reglurum tilkynningaskyldu hefðu
verið brotnar. Gunnar hafði haft
samband við sína nánustu gegnum
farsímann en eftir að raflilöðumar
tæmdust var slíkt úr sögunni og var
farið að óttast um hann. Búið var að
kalla út björgunarsveitir til að hetja leit
en þegar fréttist af honum á Akranesi
var það afturkallað.
í samtali við Fréttir á þriðjudag
sagðist Gunnar hafa haft samband við
tjölskyldu sína gegnum farsímann og
liann teldi að það hefði verið nóg. , jrg
hringdi heim um morguninn og
tilkynnti nákvæma ferðaáætlun. Svo
gerðist það eins og oft vill verða á sjó
að veðrið setti strik í reikninginn og ég
varð að breyta minni áætlun. Við
Öndverðames datt líka síminn út sem
var ekki til að bæta ástandið," sagði
Gunnar. „Svo er það ekki rétt að
báturinn hafi ekki verið skráður.
Hann var skráður hjá Siglinga-
málastofnun sem Ósk SH 132, með
skipaskrámúmer 5328 og búið var að
greiða öll gjöld af honum. En það
stóð ekki til að gera hann út, þetta átti
að vera snattbátur fyrir úteyjaferðir og
það sem ég var að gera var einfaldlega
að færa hann milli hafna og átti ekki
að vera neinn eftirmáli af því. En svo
endaði þetta bara svona slysalega. Ég
er svona hálfsjokkeraður ennþá og
dálítið marinn um skrokkinn en það
hlýtur að jafna sig,” sagði Gunnar.
„Ég vil bæta því við að mér fmnst
fréttaflutningurinn hjá DV af þessunt
atburði ekki til fyrirmyndar. Ekkert
samband var haft við mig vegna þessa
þó svo að ég einn vissi hvemig þetta
bar að og ekki mun heldur hafa verið
haft samband við Sjóslysanefnd sem
hafði þó fengið ítarlega skýrslu um
málið. Svona fréttaflutningur dæmir
sig sjálfur. Kannnski má virða
fréttamönnunum til vorkunnar að
verslunarmannahelgin var heldur rýr.
slysalega séð,” sagði Gunnar.
Báturinn Ósk var tæp tjögur tonn að
stærð og var ótryggður þannig að
eigandinn ber sjálfur allt tjónið.
Listaverka-
fíöskuskeyti
fínnst í Höfð
Flöskuskeyti sem kastað var í sjóinn
við Islandsstrendur í mars 1997
fannst í ströndinni í Höfðavík sl.
mánudag af 7 ára pilti. Flaskan var
vel innpökkuð í plast en á miða í
flöskunni, sem er á nokkrum
tungumálum, m.a. rússnesku og
kínversku, segir að þetta sé ein af
180 flöskum sem kastað var í hafið
við Island.
í flöskunni er jafnframt málverk
sem finnandi flöskuskeytisins má
eiga. Sendandi er The Reykjavik
Municipal Art (Kjarvalsstaðir),
Flókagötu 15 í Reykjavík og jafnframt
geftð upp faxnúmer.
Finnandinn, hinn 7 ára gamli Daníel
Þórisson, var í heimsókn í Eyjunt hjá
ömmu og afa, Ólafi Sveinbjömssyni
og Kristínu Georgsdóttur.
„Ég sá einhvem poka í klettunum.
Ég vissi ekki hvað þetta var en ég hélt
fyrst að þetta væri sprengja. Svo var
þetta bara flöskuskeyti. Flaskan er
rosalega stór og flott en það er erfitt að
má málverkinu úr henni,” sagði
Daníel.
Að sögn Eiríks Þorlákssonar,
forstöðumanns Kjarvalsstaða, er
flöskuskeytið eitt af 180 sem eru hluti
af listaverkefni sem kallast „Mánuðir,
ár.”.
„Hugmyndin sem býr að baki snýr
að hafinu, sem lengi hefur heillað
listamenn; hafið gefur af sér efnivið til
listarinnar og því er rétt að listin skili
listaverkum til baka - gjafir til hafsins,
sem síðan ráðstafar þeim að vild á
mánuðum eða ámm - tíminn er einnig
virkur þáttur í þeirri heild, sem þannig
verður til,” segir Eiríkur.
Hugmyndasmiðurinn er Philippe
Richard (f. 1963) en hann er franskur
myndlistarmaður sem kynntist fslandi
fyrst sem unglingur þegar hann dvaldi
á ísafirði sem skiptinemi 1980-81.
Verkefnið sem Philippe Richard
þróaði er þvíþætt að sögn Eiríks.
Annars vegar safnaði listamaðurinn
saman rekavið og málaði á hann ýmis
mynstur. Hins vegar fólst verkefnið í
180 myndverkum á pappír sem voru
fyrst sýnd á Kjarvalsstöðum í febrúar-
mars 1996. Myndimar voru síðan
settar í vel merktar flöskur og þessum
180 listrænu flöskuskeytum var loks
kastað í hafið með skipulegum
hætti á 18 stöðum umhverfis
fsland í leiðangri hafrann-
sóknaskipsins Bjama Sæ-
mundssonar 16. maí til 9.
júní 1997. Þannig hefur
hafinu verið skilað til baka
einstökum listaverkum
fyrir þann efnivið sem það
hafði áður lagt listamann-
inum til.
Fregnir hafa borist af
8-9 flöskum en þetta er
sú fyrsta sem finnst hér
sunnanlands.
Daníel Þórisson meö listaverkaflöskuskeytiö
og umbúðirnar sem hann fann í klettunum í Höfðavík
\
FRÉTTIR
Útgefandi: Eyjaprent hf. Vestmannaeyjum. Ritstjóri; Ómar Garðarsson. Fréttastjóri: Þorsteinn
Gunnarsson. Abyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson. Prentvinnæ Eyjaprent hf.
Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47II. hæð. Sími: 481-3310. Myndriti: 481-
1293. Netfang/rafpóstur: frettir@eyjar.is. FRETTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í
áskrift og einnig í lausasölu í Turninum, Kletti, Novu, Skýlinu, Tvistinum, Amigo, Kránni, Búrinu,
Vöruval, Herjólfi, Flugvallarversluninni, Tanganum, Söluskálanum. I Reykjavík: hjá Esso Stóragerði
og í Flugteríunni á Reykjavíkurflugvelli. FRÉTTIR eru prentaðar í 2000 eintökum. FRÉTTIR eru
aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og
annað er óheimilt nema heimilda sé getið.