Fréttir - Eyjafréttir - 07.08.1997, Síða 6
6
Fréttir
Fimmtudagur 7. ágúst 1997
Þjóðhátíð Vestmannaeyja 1997tókst með miklum ágætum.
Sú rólegasta i mórg ár
Aðsókn í meðallagi þrátt fyrir þoku. Ein nauðgun var kærð og nokkur fíkniefnamál
Milli 300 og 400 gestir fylgdust með setningu þjóðhátíðarinnar og voru flestir uppáklæddir.
Á að giska 300-400 manns voru við
setningu Þjóðhátíðarinnar, flestir
prúðbúnir.
Þór Vilhjálmsson formaður ÍBV
íþróttafélags setti hátíðina, Kirkjukór
Landakirkju söng nokkur lög og
prestarnir sr. Jóna Hrönn Bolladóttir
og sr. Bjarni Karlsson tluttu stutta
hugvekju í leikrænu formi. Þar gerðu
þau innihald þjóðhátíðarinnar að
umtalsefni. Hátíðarræðuna flutti
Stefán Runólfsson. Hann sagði m.a. í
sinni ræðu að sú kenning að fyrsta
þjóðhátíðin árið 1874 hefði verið
haldin vegna þess að Vestmanna-
eyingar komust ekki til fastalandsins
vegna sjógangs við Landeyjasand,
væri röng. Því til sönnunar sagði hann
að þessi fyrsta þjóðhátíð Vestmanna-
eyinga hefði verið haldin þremur
dögunr fyrir þjóðhátíðina á Þing-
völlum. Þá sagði hann að næsta
þjóðhátíðin hefði verið haldin árið
1901 og sfðan óslitið að árinu 1914
undanskildu, en þá var henni sleppt
vegna heimsstyijaldarinnar fyrri. Árið
2000 yrði því 100. þjóðhátfðin haldin.
Hvatti hann IBV og bæjaryfirvöld að
skipa nefnd sem hefði það hlutverk að
minnast afmælisins á veglegan hátt.
Formaður ÍBV íþróttafélags Þór Vil-
hjálmsson og formaður þjóðhátíðar-
nefndar, Birgir Guðjónsson drógu
síðan íslenska fánann og fána
Vestmannaeyjabæjar að húni og þrír
lögreglumenn stóðu heiðursvörð.
Hin seinni ár hefur setningin verið
færðtil kl. 15.00 en varáður kl. 14.00.
Hefur þessi breyting verið til hins
betra, því fleira fólk hefur séð sér fært
að vera viðstatt. Þá hefur sú hvatning
þjóðhátfðarnefndar. að fólk mæti
prúðbúið til setningarinnar gert hana
mun hátíðlegri og skemmtilegri.
Stundum hefur heimilisfólki af
Hraunbúðum sérstaklega verið boðið
til athafnarinnar, slíkt varekki gert nú
og er það ntiður. Ekki heldur stóð allt
lögreglulið Eyjanna heiðursvörð eins
og stundum hefur verið gert, heldur
einungis þrír.
Skipulag
gæslu
var gott
„Það er sanieiginlegt álit okkar í
lögreglunni, gæslumanna og að-
standenda þjóðhátíðar að þjóð-
hátíðin hafi farið vel fram.
Fíkniefnamál sem komu upp og
nauðgun sem var kærð eru
reyndar svartir blettir á
hátíðinni en miðað við fjölda
erum við nokkuð sáttir,“ sagði
Jóhannes Olafsson yfirlögreglu-
þjónn í samtali við Fréttir.
Hann er sammála öðrttm sem
blaðið liefur rætt við um að upp til
Itópa hafi þjóðhátíðargestir verið til
mikillar fyrirmyndar. „Auðvitað er
misjafn sauður í mörgu fé og
fíkniefnaneytendur eru hluti af
þjóðfélaginu. Eitthvað var um
pústra en áverkar vegna þeirra voru
minniháttar."
Alls var 21 lögreglumaður að
störfum á þjóðhátíðinni, 11 úr
Eyjum og tíu ofan af landi. Auk
þeirra voru 70 hjálparsveitarmenn
Lögreglan átti náðuga stund inn á milli og á myndinni sjást
nokkrir lögreglumenn fylgjast með brekkusöngnum.
við gæslu og læknavakt var alla
þjóðhátíðina í Dalnum. Jóhannes
segist sannfærður um að öflug
gæsla hafi skilað sér. „Á mestu
álagspunktunum voru um 60
manns á vakt. Skipulagið á gæslu
var gott og það skilaði sér í betri
þjóðhátíð.“
Ekki vildi Jóhannes slá tölu á
fjölda gesta á hátíðinni en sagði að
aðsókn hefði verið í meðallagi.
Merki ÍBV var í fyrsta skipti í öndvegi á Þjóðhátíðinni í ár enda
hefur ÍBV tekið við af Þór og Tý. Lúðrasveit Vestmannaeyja
hefur verið einn af föstu punktunum við setningu þjóðhátíðar
og hún brást ekki að þessu sinni.
Birgir Guðjónsson, form. þjóðhátíðarnefndar:
Cestirnir voru
tíl fyrirmyndar
■ og^ ég get ekki veríð annað en
ánægður hverng til tókst
Birgir Guðjónsson, formaður
þjóðhátíðarnefndar ÍBV, er
ánægður með hvernig til tókst á
þessari fyrstu þjóðhátíð sem ÍBV
stendur fyrir. Hann segir gesti hafa
verið til fyrirmyndar og untgjörð
hátíðarinnar hafi staðist væntingar
þó ýmislegt megi Iagfæra innan
hins hefðbundna ramrna. Veður
segir hann hafa verið ótrúlega gott
niiðað við spár en flesta dagana
spáði 6 og 7 vindstigum.
Ófært var með flugi fyrri part
fimmtudags og föstudags og þá segir
Birgir að frekar lágt ris haft verið á
þjóðhátíðamefndinni. ,,En það léttist
á mönnum brúnin þegar þokunni létti
og þjóðhátíðargestir byrjuðu að
streyma til okkar. Þrátt fyrir einn og
einn skúr var aldrei vindur að ráði
þannig að þegar upp var staðið var
besta veðrið í Vestmannaeyjum á
Suður- og Vesturlandi. Ég get því
ekki verið annað en ánægður. Það
var greinilega einhver sem hélt
vemdarhendi yfir okkur,“ sagði
Birgir.
Birgir er ánægður með
aldurssamsetningu gestanna, segir
hann aðkomufólkið hafa verið mikið
á aldrinum 20 til 30 ára og
unglingamir hafi því leitað eitthvað
annað. „Þetta er myndarlegt fólk sem
var hingað komið til að skemmta sér.
Það var vel búið og tilbúið í slaginn
hvemig sem viðraði. Þetta hefur
verið að færast til betri vegar á
undanfömum ámm. Það er líka
ótrúlegt hvað Dalurinn lítur vel út
miðað við bleytuna. Teppin, sem fólk
er að leggja í götumar, konta í veg
fyrir að svæðið verði eitt svað þegar
svona stendur á.“
Birgir segir gæslu hafa verið góða á
þjóðhátíð og umgengni hafi verið til
sóma en hvað finnst honum um
gagnrýni á skemmtidagskrána?
„Brennan, flugeldasýningin,
brekkusöngurinn og tjöldin gera
þjóðhátíð að því sem hún er.
Þjóðhátíðin er gömul en hún líka
síung og auðvitað er margt að skoða.
Skemmtidagskráin hlýtur að vera
meðal þeirra atriða,“ sagði Birgir.