Fréttir - Eyjafréttir - 07.08.1997, Síða 12
FRÉTTIR
Fréttfl- og auglýsingasíminn 481-3310 ' Fax 481-1293
Helga og Árni Óli
íslandsmeistarar
Það gerist ekki á hverj-
um degi að Vest-
niannaeyingar verða
Islandsmeistarar. I síð-
ustu viku urðu tveir
ungir keppendur Ung-
mennafélagsins Oðins,
Helga Eggertsdóttir (í
jjrístökki) og Arni Oli
Ólafsson (spjótkast)
Islandsmeistarar í sín-
um aldursflokkum.
Helga gerði sér einnig
lítið fyrir og sló Islandsmetið í
leiðinni.
Helga keppti í altlursllokknum 15 til
18 ára á Laugardalsvelli. Hún stökk
11.52 m í þrístökki og bætti
Islandsmetið um 7 sm og varð ís-
Iandsmeistari. Þá varð Helga í 2. sæti
í langstökki, stökk 5.15
m. Frábær árangur hjá
Helgu sem hefur lengi
stefnt að því að bæta
Islandsmetið í þessum
aldursflokki.
Ámi Óli Ólafsson
keppti í aldursflokknum
14 ára og yngri á Kópa-
vogsvelli. Hann kastaði
spjótinu 42.58 og varð
Islandsmeistari. Auk
þess varð Ámi Óli í 2.
sæti íkúluvarpi, kastaði 12.42 metra
og var hann nálægt sínum besta
árangri.
Þess má geta að Óttar Jónsson var
fjarri góðu gamni að þessu sinni en
hann átti góða möguleika á gulli í
sínum greinum.
Það var glatt á hjalla í tjaldinu hjá þessum Eyjamönnum og gestum þeirra eins og raunar í flestum tjöldum í Dalnum.
Að þessu sinni voru þó áberandi færri hvít tjöld í Herjólfsdal en oft áður.
Álagning opinberra gjalda 1997 í Vestmannaeyjum:
Gunnlaugur enn á toppnum
- en lækkar saml um meira en helming á milli ára
Álagning opinberra gjalda var
kunngjörð í síðustu viku. Af tíu
hæstu einstaklingum á þeim lista
eru níu skipstjórar og útgerðar-
nienn og aðeins Hanna María
apótekari sem blandar sér í þann
hóp.
Rétt eins og í fyrra er Gunnlaugur
Ólafsson, útgerðarmaður, í efsta sæti
með 6,2 milljónir. í fyrra námu gjöld
hans helmingi hærri upphæð eða 12,5
milljónum. Aðrir á listanum em
skipstjóramir Grímur Jón Grímsson,
með 5,5 milljónir, Gunnar Jónsson,
með 5,3 milljónir, Guðmundur
Sveinbjömsson, með 5,2 milljónir,
Kristbjöm Ámason með 5,2 milljónir
og Eyjólfur Guðjónsson með 5
milljónir. Þá kemur Hanna María
Siggeirsdóttir, apótekari, með 4,9
milljónir, Jóhann Halldórsson, útgerð-
armaður með 4,8 milljónir og síðan
skipstjóramir Snorri Gestsson með 4,8
milljónir og Ólafur Ágúst Einarsson
með 4,6 milljónir.
Eyjólfur, Snorri og Ólafur Ágúst
voru ekki á þessum lista í fyrra, þá
vom þar nöfn Sighvats Bjarnasonar
framkvæmdastjóra, Selmu Guðjóns-
dóttur, hjúkmnarfræðings og Matthí-
asar Óskarssonar, útgerðarmanns.
Fimm hæstu lögaðilarnir eru
Vinnslustöðin með 32,5 milljónir,
ísfélag Vestmannaeyja með 31,7
milljónir, Vestmannaeyjabær með
30,6 milljónir, ísleifur ehf. með 19,3
milliónir og Sparisjóður Vestmanna-
eyja með 15,8 milljónir. ísleifur er
nýr á listanum, allir hinir voru þar í
fyrra en með mun lægri tölur flestir
hverjir.
Eins og undanfarin ár glugga Fréttir
í skattskrána og skoða álögur
einstaklinga og fyrirtækja (sjá bls. 5).
Lenti / átökum við
fíkniefnaneytanda
Á fimmtudagskvöld fyrir þjóðhátíð
lenti lögreglumaður í átökum við
meintan ITkniefnaneytanda við Týs-
heimilið.
Hugðist lögreglumaðurinn handtaka
manninn sem brást illa við og réðst á
hann. Féllu báðir á planið við
Týsheimilið, lenti lögreglumaðurinn
með andlitið á malbikið og meiddist
nokkuð. Mátti hann fara á sjúkrahúsið
þar sem rnu spor vom saumuð í andliti
hans. En fíkniefnamaðurinn fékk að
sjálfsögðu gistingu í fangaklefa.
Edcf eldhúsrúllur 4sftr