Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 16.07.1998, Page 8

Fréttir - Eyjafréttir - 16.07.1998, Page 8
8 Fréttir Fimmtudagur 16. júlí 1998 Helga Hauksdóttir var fulltrúi hjá sýslu- manninum í Vestmannaeyjum í fjögur ár og settur sýslumaður í tvo mánuði frá því að Georg Kr. Lárusson var skipaður lögreglustjóri í Reykjavík. Helga lét af störfum sýslumanns 30. júní síðastliðinn og hóf störf hjá vamarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins í Reykjavík 1. júlí. Foreldrar Helgu eru Haukur Pálmason aðstoðarrafmagnsstjóri í Reykjavík, en móðir hennar heitin var Aðalheiður Jóhannesdóttir og var lengst af ritari hjá Orkustofnun. Helga er gift Hafþóri Þorleifssyni þjónustu- og verðbréfafulltrúa íslandsbanka í Eyjum Þegar Helga var spurð að því hvort hún vildi líta yfir farinn veg æskunnar og ferðalagið með Vestmannaeyingum undanfarin fjögur ár, tekur hún því ljúfmannlega, en segist þó ekki vera mikið fyrir að tala. Henni láti þögnin ágætlega, þó sé hún til í að láta reyna á málið. Á hvað ertu að glápa Við setjumst inn á skrifstofu em- bættisins við Heiðarveginn og stórt og mikið skrifborð á milli. Ég lít á tölvuskjáinn hjá henni og spyr hana út í skjámyndina (screen saverinn), sem er hið fjölbreytilegasta röraverk að raðast upp á nýjan hátt með ákveðnu millibili og spyr hvort þessi mynd sé á einhvem hátt lýsandi fyrir hana. „Mér finnst hún bara flott og gaman að horfa á hana. Þetta er mikil óreiða en um leið mikil regla. Þetta er kannski martröð tengdapabba, en hann er pípari," segir hún og hlær. "Hins vegar var ég með aðra skjá- mynd sem fulltrúi sýslumanns, en það var texti sem rann yfir skjáinn, hvar stóð: „Á hvað ertu að glápa". Þetta var ekki hugsað sem orðsending til mfn, heldur frekar til annarra." Ég spyr hana hvort umhverfið á skrifstofunni verði ekki til þess að yfirvaldið verði persónunni Helgu Hauksdóttur yfirsterkari. „Það skiptir engu máli. Ég get alveg kúplað mig út úr sýslumanninum þó að ég sitji á skrifstofunni í viðtali." Góð ár í Breiðholtinu Helga er fædd og uppalin í Reykja- vík, en fluttist snemma í Breiðholtið eftir að hafa búið í Hlíðunum. „Ég er Breiðhoitsvillingur," segir hún og hlær, en dregur svo í land. „Reyndar voru þessi ár mjög góð hjá mér. Ég segi þetta vegna þess að Breiðholtið hafði þetta orð á sér á sínum tíma. Ég er yngst af þremur systkinum og fjölskyldan flutti í Breiðholtið þegar ég var fimm ára. Þá er hverfíð að byggjast upp og er meira og minna fokhelt og umhverfið ekkert sérlega aðlaðandi. Það flutti mikið af barnafólki þama upp eftir og mikið um félagslegar íbúðir og fólk með alls konar bakgrunn. Við fluttum inn í raðhús sem lengi var verið að klára. Ég var í Fellaskóla sem var þá fjölmennasti bama- og gmnnskóli landsins með um fjórtán hundruð nemendur. Ég segi þetta núna vegna þess að ég veit hvemig í pottinn er búið og skýrir hvers vegna var svo mikið líf og tjör í hverfinu. Ég var hins vegar ekkert að spá í það á þeim tíma. I dag er þetta mjög gróið hverfi eins og hvert annað í Reykjavík. Breiðholtið fyrir mér var bara hverfi sem ég bjó f og var kannski ævin- týraheimur, en ég minnist þess ekki að hafa upplifað það sem slíkt." Tílbúið undir tréverk Hvemig upplifðir þú þessi æskuár? „Það sem ég man einna best eftir er að við fluttum inn í húsið tilbúið undir tréverk. Það vantaði allt inn í það og við borðuðum í þvottahúsinu um tíma. Mér leiddist þetta allt frekar mikið og leiddist að fara með foreldrum mínum í búðir að kaupa flísar, teppi og parket og guð má vita hvað. Fyrir utan það að á þessum árum 1974 og þar á eftir vom búðir ekki opnar á laugardögum eða frameftir svo að þetta varð að gerast á milli fimm og sex á virkum dögum. Þá er fimm ára krakki orðinn þreyttur." Helga segist samt ekki hafa verið erfiður krakki, heldur frekar róleg að eðlisfari og viðráðanleg. „Mamma var líka vön að segja það að ég hafi verið besta bamið hennar. Nei ég segi þetta bara til að stríða systkinum mínum. En það er nokkur aldurs- munur á okkur. Bróðir minn er sex ámm eldri og systir mín er ellefu ámm eldri. Hins vegar höfum við færst miklu nær efrir því sem árin hafa liðið. Þannig að við eigum miklu meira sameiginlegt ntina." Varstu svolítil dekurrófa samt? „Já frá þeim sjónarhóli að ég var langyngst, en það var ekkert gerí upp á milli okkar systkinanna. Ég var hins vegar lengi vel ein heima hjá þeim en hafði vit á því að láta ekki ofdekra mig eða nýta mér það til framdráttar að foreldrar mínir voru orðin fullorðnir og ég ein eftir heima. Ég var með- vituð um þetta og hefði kannski getað vafið þeim um fingur mér, en ég gerði það ekki." Ge! alveg þagað með fólki Helga fór í Menntaskólann í Reykja- vík, þrátt fyrir að Fjölbrautaskólinn væri í nágrenninu og Menntskólinn við Sund miðja vegu. Hún segir hins vegar að hana hafi ekki langað í áfangakerfið og hafi ekki litist á MS. „Pabbi var í MR og það getur verið að það hafi haft áhrif á ntig." Ertu þá svolítil pabbastelpa? „Ég er pabba og mömmu bam og hef alltaf verið mjög nátengd þeim, en þau tömdu okkur systkinunum sjálfstæði. Ég er töluvert fyrir það að vera ein og var það oft sem krakki og kunni því ágætlega. Ég er ekki týpa sem tala og tala endalaust um ekki neitt. Ég get alveg þagað með fólki og oft í hópi get ég alveg hlustað. Að sjálfsögðu legg ég líka til málanna, en ég er ekki málglöð að eðlisfari. En ef mér finnst ég þurfa að segja eitthvað þá geri ég það. Ég hef yfirleitt skoð- anir á hlutum, en oft finnst mér það takmarka ntig mikið, ef ég ætla að rnynda mér skoðun á einhverju og hef ekki allar upplýsingar sem sem liggja fyrir. Þá vil ég heldur þegja en að mynda mér skoðanir sem ekki eru á rökum reistar. Ég held að það sem veldur þessu sé kannski lögfræðing- urinn því þetta er eitthvað sem hefur komið á seinni árum. Þetta hangir hins vegar ágætlega sarnan við ró- lyndið og sjálfstæðið. Ég er hins vegar ekki ófélagslynd, en líkar hins vegar ágætlega að geta verið ein með sjálfri mér, eða ein með einhverjum sem ég get þagað með." Praktísk í hugsun Helga segist hafa valið lögfræðina af handahófi þó hafi verið ofarlega í huga hennar að fara í eitthvað praktískt nám svo að hún gæti séð vel fyrir sér og sínum í framtíðinnni. Hún segist hafa fallið á fyrsta ári í lögfræðinni, eins og svo margir, en eitthvað sat þó í henni að þetta gæti verið áhugavert fag, svo hún fór aftur, en með allt öðru hugarfari. „Ég er praktískt þenkjandi og tók námið föstum tökum og lagði mjög mikla vinnu á mig og það var allt þess virði. Það var alltaf óttinn við þessa fallgrýlu í almennu lögfræðinni á fyrsta ári og vitneskjan um að þetta væri allt svo leiðinlegt. Ég held að það hafi hamlað mér í byijun. Hins vegar er ég mjög samviskusöm að eðlisfari og það hjálpaði mér mikið. Ég er ekki ánægð með sjálfa mig öðru vísi." Er eitthvað mótvægi í persónuleika þínum við þessa praktísku konu? ,Jú öiugglega en ég hef bara aldrei hugsað út í það. Ég hugsa að það séu andstæðir pólar í öllum. Ég er mikill ruslasafnari eins og ég kalla það. Það er að segja ég hendi ekki því sem ég er hætt að nota, en kannski er það bara praktískt líka. Ég hef reyndar öðlast nokkra leikni í því á þessum árum í Eyjum að henda hlutum, vegna þess að ég flutti fjórum sinnum á þessum tíma og þá hefur maður tilhneigingu til þess að henda hlutum." Er mjög heimakær Helga segist ekki eiga mörg áhugamál. ,Lg stunda þolfimi, sem er líka ntjög praktískt og hlusta á tónlist. Ég lærði líka á píanó og fiðlu þegar ég var krakki, en hef ekkert haldið því við, en lærði að meta tónlist fyrir vikið. Mér finnst gantan að horfa á bíómyndir og vídeó. Ég er líka mjög heimakær og ef ég vil slappa af, vil ég

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.