Fréttir - Eyjafréttir - 06.05.1999, Qupperneq 4
4
Fréttir
Fimmtudagur 6. maí 1999
Kosningakjúklingur
Kristjana Ingólfsdóttir er Eyjamaður vikunnar
Rúnar Birgisson
var sælkeri síðustu
viku og hann
skoraði á Kristjönu
Ingólfsdóttur að
gefa góð ráð fyrir
kosningahelgina (í
matargerð).
„Eg þakka Rún-
ari, vini mínum,
áskorunina. Eg er viss um að
matmaður eins og hann á eftir að
prófa kjúklingaréttinn sem ég ætla að
bjóða upp á.“
Kjúklingapottréttur fyrir 3-4
1 kjúklingur, (grillaður)
2 dl tómatsósa
2-3 dl rjómi
3 tsk. karrý
3 tsk. paprikukrydd
Grillið kjúklinginn. kryddið hann
eftir smekk. Blandið tómatsósu,
rjóma og kryddi saman í pott og fáið
upp suðu. Rífið kjúklinginn niður í
sósuna.
„Þetta er, eins og sjá má, fljótlegur
réttur og hann er mjög góður. Berið
hann fram með hrísgrjónum og góðu
brairði.
Ég ætla að skora á Ingva
Borgþórsson sem næsta sælkera. Ég
er viss um að hann er klár að elda þó
að fjölskyldulífið heilli hann ekki.“
Kjörklefinn er skemmtilegur
Kosningareru á laugardag, þá erdagurinn
þegar kjósendur hafa það íhendi sér hverjir
komi til með að sitja á alþingi næsta kjör-
tímabil. Nú á tímum skoðanakannana
hefur spenningurinn minnkað, miðað við
það sem áður var þegar fólk sat yfirspennt
að fylgjast með fyrstu tölum og svo úrslit-
um. I tilefni kosninganna fengum við einn
úr hópi kjósenda sem Eyjamann vikunnar.
Fullt nafn? Vit helst ekkigefa það upp, það
gæti valdið misskilningi og flokkast undir
áróður.
Fæðingardagur og ár? Sama hér, það
væri auðvelt að rekja þetta ef ég gæfi upp
fæðingardag og ár.
Fæðingarstaður? Ákveðinn staður í
Suðurlandskjördæmi.
Fjölskylduhagir? Ég er fjölskyldumaður
en gef ekki meira upp.
Menntun og starf? Menntunin er umdeilanleg og
eigum við ekki að segja að ég vinni við eina af
undirstöðugreinum þjóðarinnar.
Laun? Árni segir að það sé hægt að hækka þau um
40-50%.
Bifreið? Átti eina fyrirmörgum árum en hefekki efni
á slíku núna. Fer ferða minna á tveimur jafnfljótum
nema á kjördag, þá vilja allir keyra manni.
Helsti galli? Hægt að Ijúga hverju sem er í mig,
margirsem notfæra sérþað.
Helsti kostur? Frekar umburðar-
lyndur, ekki síst þegar stjórnmáta-
menn eiga í hlut.
Uppáhaldsmatur? Fiskur, hann
er ennþá ódýr.
Versti matur? Ég smakkaði einu
sinni rússneskan kavíar, sem mér
er sagt að sé dýrasti matur í heimi
og fannst hann hundvondur.
Uppáhaldsdrykkur? Vatn er
góður drykkur og ódýr. Stundum er
manni líka boðið eitthvað gott á
kjördag.
Uppáhaldstónlist? Ég get
tæplega gert upp á milli Fram-
sóknarsömbu ísólfs Gylfa og
Stórhöfðasvítu Árna.
Hvað er það skemmtilegasta
sem þú gerir? Að láta hringja í
mig á kjördag, keyra mér á kjör-
stað og láta bjóða mér í
kosningakaffi á eftir.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú gerir? Að bíða
á kjördag eftirþví að síminn hringi.
Hvað myndirðu gera ef þú ynnir milljón í
happdrætti? Sennilega reyna að styrkja einhvern
kosningasjóðinn.
Uppáhaldsstjórnmáiamaður? Tek engan einn fram
yfirannan, ekki enn að minnsta kosti. Talaðu við mig
seinnipartinn á kjördag, þá skal ég svara þessu.
Uppáhaldsíþróttamaður? Mín uppáhaldsíþrótt er
ekki stunduð á íslandi ennþá en sumir stjórn-
málamenn væru ábyggilega góðir íhenni.
Ertu meðlimur íeinhverjum félagsskap? Já, en þá
kemur enn að þessu sama, það væri hægt að rekja
nafnið mitt efég gæfi félagið upp svo að ég sleppi því.
Uppáhaldssjónvarpsefni? Ég hefsetið sem límdur
yfir stjórnmálaútsendingunum.
Uppáhaldsbók? Nokkrir góðir dagar án Guðnýjar,
eftirDavíð Oddsson og svo Saga Sambandsins eftir
einhvern framsóknarmann sem ég man ekki hvað
heitir.
Hvað meturþú mest í fari annarra? Gefin loforð.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í fari annarra?
Svikin ioforð.
Fallegasti staður sem þú hefur komið á? Má ég
ekki snúa þessu aðeins við. Kjörklefinn er kannski
ekki fallegur staður en hann er skemmtilegasti staður
sem ég kem á, það er svo gaman að fá að taka þátt í
að stjórna, verstað það skuli bara vera á fjögurra ára
fresti, ég gæti vel hugsað mér að
kjósa í hverjum mánuði.
Hefur þú alltaf kosið sama
flokkinn? Nei, ég hef mjög oft
skipt um skoðun.
Ertu búinn að ákveða þig núna?
Já, nokkurn veginn en þó er aldrei
að vita, það eru rúmir tveir dagar til
stefnu ennþá.
Viltu spá um úrslit kosning-
anna? Ég er alls ekki viss um
úrslitin. En ég er ákveðinn í því
þegar fyrstu tölur liggja fyrir að
mæta á kosningavökuna hjá þeim
sem sýnilega er að vinna, ég hef
gert það á undanförnum árum.
Það er alltaf langmest gaman þar.
Eitthvað að lokum? Sjáumst í
góðu skapi á kjördag. Megi þeir
bestu vinna.
Systraböm. Þann 16. febrúar eignuðust Ásta Salný Sigurðardóttir og
Viðar Snær Sigurðsson dóttur. Hún vó 14 1/2 mörk og var 53 sm á
lengd. Hún hefur verið skírð Alexandra Rán og er hægra niegin á
myndinni. Þann 5. febrúar eignuðust Sonja Ema Sigurðardóttir og
Tómas Guðmundsson son. Hann vó 14 1/2 mörk og var 52 sm að lengd.
Hann hefur verið skírður Viktor Þór og er hér á myndinni til vinstri. Þau
em langömmu og -afaböm Ástu og Garðars á Túngötu 3.
Þann 3. apríl eignuðust Kristjana Ingólfsdóttir og Júlíus
Hallgrímsson dóttur. Hún vó 19 merkur og var 57 sm að lengd.
Hún hefur verið skírð Ásta Björt. Með henni á myndinni er
Hallgrímur. stóri bróðir. Ljósmóðir var Drífa Bjömsdóttir.
Á döfinni
6. til 8. maí Sprönguskellur
8.til 9. mcd Myndlistarsýning Þorgerðar Sigurðardóttur í Safnaðarheimilinu lieldur áfram
7. maí Vestmannaeyjamót í STAND-UP, haldið íÁsgarði
8. maí Alþingiskosningar og allir á kjörstað
8. til 9. maí Síðasta sýningarhelgi Lóu Sigurðardóttur á myndlistarvoii o íslandsbanka 1999
10. til 14. maí Vortónleikar Tónlistarskóla Vestmannaeyja kl. 17.30 hvern dag
11. maí Lokasprettur Skákþings Vestmannaeyja í Magnúsarbakaríi kl. 19.00
12. maí Tónleikar Samkósrsins í Safnaðarheimilinu kl. 20.30
15. maí Karlakórinn Þrestir með tónleika í Hvítasunnukirkjunni kl. 17.00
22. og 23. maí Hvítasunnumót SJÓVE