Fréttir - Eyjafréttir - 06.05.1999, Page 15
Fimmtudagur 6. maí 1999
Fréttir
15
fimmtán mínútum til þess að verja,
útskýra og kynna málefni. Svona
fundir em í raun bara fyrir froðusnakk-
arana.“
Vilja bjóða upp 40% af afla
Eyjamanna á fjórum árum
Nú fékkstu áskorun um að mœta
Lúðvík Bergvinssyni í kapprceðu í
Bajarleikhúsinu ?
„Eg fékk áskomn um að mæta á
fund vegna þess að ég hefði snúið út
úr stefnumiðum Samfylkingarinnar.
Ég hef hvergi gert það. Ég hef rakið
þau lið fyrir lið og Samfylkingin er
með stefnu sem hún getur ekki boðið
upp á á landsbyggðinni og er í mestu
og örgustu vandræðum með. Sam-
fylkingin hefur mótað stefnu sína í
hjarta Hafnarfjarðar og þeim er
andskotans sama um landsbyggðina
og sjávarplássin. Það kom til að
mynda fram í sjónvarpsþættinum sem
þið nefnduð áðan hjá Lúðvíki
Bergvinssyni að það væri alger þvæla
að Samfylkingin hefði boðað uppboð
á kvóta sjávarplássanna. Þegar ég
gekk eftir þessu við hann síðar í þætt-
inum, þá dró hann í land og sagði þetta
fimm til tíu prósent á einhverjum
árum og viðbótaraflaheimildir, en það
er nákvæmlega það sem ég hafði sagt.
Tíu prósent á fjórum árum er fjörutíu
prósent. Hann gaf hins vegar þá
skýringu að á tímabilinu fyrir 2003,
ætluðu þeir að ná sáttum í
þjóðfélaginu, en þeir hafa enga tillögu
eða skýringar á hvern hátt, nema að
setja öryggi sjávarplássins í voða með
uppboði á stórum hluta aflans sem á er
treyst til vinnslu."
Lagfæra þarf margt í
fiskveiðistjómunarkerfmu
En livaða stefnu hefur Sjálfstœðis-
flokkurinn. Nú hefur í raun ekkert
komið meira fram hjá ykkur. Þið
viljið halda í núveraridi ketfi en ná
sáttum um ákveðin atriðið?
„Sjálfstæðisflokkurinn telur að þetta
kerfi sem nú er sé sú leið sem er
ásættanlegust á heildina. Það er á-
greiningur innan Sjálfstæðisflokksins,
eins og innan allra flokka og reyndar
er enginn annar fiokkur sem vill
gjörbreyta þessu kerfi. Það hefur
enginn komið með tillögu um að
leggja kerfið af, hvað þá að hafa aðra
tillögu í staðinn. Samfylkingin vill
bara bæta uppboðinu við, enn þá
meira braski og setja í enn þá færri
hendur. Við teljum að það þurfi að
laga marga þætti kerfisins og að því er
unnið. Það þarf að freista þess að
eyða tortryggninni í því og tryggja á
einhvem hátt forkaupsrétt til að
mynda í byggðunum eins og hefur
verið á bátunum. Einnig þarf að eyða
misgenginu milli skerðingar á ferskan
útfluttan fisk og frystitogarafisk. Þessi
skerðing á Vestmannaeyjar kostar
fimmhundruð milljónir á ári, sem
útgerðarmenn í Vestmannaeyjum og
skattgreiðendur eru að bíða skaða af.“
Stefna Samfylkingarinnar er
árás á sjávarplássin
Þarna ertu að tala um kvótaálagið.
Muntu berjast hart gegn því á
komandi kjörtímabili?
, Já, ég tel að á næstunni, ef Sjálf-
stæðismenn fá umboð til að gegna
forystu í ríkistjóm landsins, muni þetta
lemjast út. I stefnuskrá sinni segja
Samfylkingarmenn að þeir vilji setja á
auðlindaskatt. Auðlindaskattur er
fyrst og fremst skattur á landsbyggð-
ina. Það er skattur sem færður er inn í
ríkishítina, en áttatíu prósent af henni
em á Stórreykjavíkursvæðinu, eins og
þeir hafa lagt þetta upp vora þeir að
tala um sautján milljarða skatt sem
þýddi tvö loðnuskip burt frá Vest-
mannaeyjum á ári. Nú eru þeir
komnir niður í þrjá milljarða. Ut-
gerðin í landinu er að borga margs
konar gjöld umfram venjulegar skatt-
greiðslur í ríkissjóð. Ég get tekið
dæmi af Þórunni Sveinsdóttur VE.
Hún borgar í Þróunarsjóð sjávarút-
vegsins þrjár milljónir á ári sem fer í
nýtt hafrannsóknarskip, þetta er bara
hluti af auðlindagjaldi og skattheimtu.
Þannig að auðlindagjald hefur verið
lengi og er kannski um tólf til
þrettánhundrað milljónir í dag. hvort
sátt náist um að hækka það í tvo eða
þrjá milljarða kann að vera, en það er
allt annað dæmi heldur en falsvonir
um auðlindagjald sem átli að gefa
fimmtán til tuttugu milljarða í ríkis-
sjóð. í öðru lagi boðar Samfylkingin
hærri fjármagnstekjuskatt. Hann
bitnar sérstaklega á plássi eins og
Vestmannaeyjum, þar sem tekjur eru
háar fyrir mjög mikla vinnu, hvort
sem um er að ræða sjómenn eða
fiskvinnslutölk. Þeir lofa einnig, eða
hóta eftir því hvemig á það er litið,
hærri tekjuskatti hjá tekjuhærri
einstaklingum. Þar yrðu Vestmanna-
eyingar líka í gildrunni. Samfylk-
ingarmenn segjast ætla að setja hærra
tryggingagjald á fyrirtækin, það er nú
ekki björgulegt fyrir landsbyggðar-
fyrirtækin í heild, sem eru að berjast
við að byggja upp atvinnu og halda
atvinnu í tiltölulega veiku umhverfi,
þar sem menn sækja inn í þéttbýlið á
Reykjavíkursvæðinu. Það er ekki trú-
verðugt að hækka alls konar skatt-
heimtur á þessum fyrirtækjum."
Ami segir að núverandi ríkisstjóm
undir forystu sjálfstæðismanna hafi
lækkað skatta á fyrirtækjum úr
fimmtíu prósentum niður í þrjátíu
prósent á þessu ári. Þetta hefur skapað
aukna atvinnu um allt land, meira
svigrúm fyrirtækjanna til þess að
endumýja sig og styrkja, auka atvinnu
og hækka laun um leið. Þetta er spor
á réttri leið. Hvað er stefna Sam-
fylkingarinnar annað en árás á
landsbyggðina, þar sem fábreytni er í
atvinnulífinu og erfitt fyrir fólk að
finna sér aðra vinnu, en í þessum
þröngu atvinnugreinum."
Vinnslustöðvarmenn hljóta
að hafa metnað fyrir hönd
starfsfólks síns
Vinnslustöðin hefur verið mikið í
umrœðunni nú vegna vcegast sagt
bágborinnar stöðu. Það eru tvœr
spumingar sem vakna vegna hennar.
Er Vinnslustöðin fómarlamb kvóta-
ketftsins og í öðru lagi hafa menn
spáð því að efalltfœri á versta veg
með Vinnslustöðina, til dcemis að
lenda í klónum á Samherja og kvótinn
fceri norður, þá yrðu það endalok
kvótakerfisins?
„Vinnslustöðin er ekkert fómar-
lamb kvótakerfisins. Vinnslustöðin er
eitt kvótahæsta fyrirtæki landsins.
Fulltrúar fyrirtækisins hafa sagt að
menn hafi góð tök á öllum þáttum
rekstursins, nema landvinnslunni. Það
er auðvitað mjög alvarlegt mál, því að
þar koma margir launþegar til sögu. A
hinn bóginn er fullt af landvinnslu-
fyrirtækjum sem hafa góða stöðu í
landvinnslunni, af hveiju ætti Vinnslu-
stöðin ekki að geta það eins og önnur
fyrirtæki, ef þeir brjóta til mergjar það
sem veldur þeim eríiðleikum. Auðvit-
að hefur Vinnslustöðin styrk og bol-
magn til þess að bregðast við ein-
hverjum skekkjum og áföllum.
Vinnslustöðin er fyrirtæki upp á
einhverja fimm milljarða króna í
upplausn, en hundrað milljóna tap er
mikið áfall. Víða um land era
fyrirtæki sem hafa séð það svartara,
eins og ÚA fyrir tveimur áram, sem
var nánast í sömu stöðu, en gengur
vel í dag. Það er því óþarfi að mála
skrattann á vegginn fyrir fram, þó að
þetta sé vissulega mikið áhyggjuefni
og óþolandi óvissa, en ég geri kröfu til
þess að eigendur Vinnslustöðvarinnar
vinni sitt verk eins og þeir era ugglaust
menn til og hafa metnað til. Ef hlutir
færa á versta veg er náttúrulega
stríðsástand, svo einfalt er það, ef
hlutir myndu þróast þannig í þessari
öflugustu verstöð Islands. Ef fyrir-
tækið ætlar að gera breytingar á þeim
forsendum að það gæti ekki gert sömu
hluti og aðrir, þá er eitthvað mikið að.“
Nú er Olíufélagið stcersti hluthafi í
Vinnslustöðinni og iðulega sett sama
sem merki milli Olíufélagsins og
Framsóknarflokksins. Telur þú að lé-
legt gengi Framsóknarflokksins í
skoðanakönnuninni sem birt var á
laugardaginn um stöðuna á Suður-
landi endurspeglist að einhverju leyti
í stöðu Vinnslustöðvarinnar?
„Nei, ég tel það ekki tengt, enda
kemur það mál upp eftir að skoð-
anakönnunin er gerð og engan veginn
hægt að tengja það saman. Það er
ekkert sama sem merki í þessum
hlutum í dag að mínu mati milli 01-
íufélagsins og Framsóknarflokksins."
Fólk fer ekki í hrossakaup
með atkvæði sitt
Nú heyrir maður að sjálfstœðismenn
séu mjög áncegðir með þessa
ríkisstjóm og telja að hún hafi unnið
gott staif. Davíð hefur sjálfur sagt að
samstarfið við framsóknarmenn hafi
gengið mjög vel. Nú sagði Halldór
Asgrímsson á fundi í Eyjum um
daginn að forsendan fyrir veru þeirra
í ríkissjórn vœri að þeir kœmu
þokkalega út úr kosningunum. Er ekki
orðið nauðsynlegt að sjálfstceðismenn
fari að hvetja fólk til þess að kjósa
Framsókn?
„Þetta er náttúralega dónaleg
spuming.“
Attuekki dónalegt svar?
„I raun ætti maður ekki að svara
þessu, vegna jtess að maður ætlar fólki
aldrei að fara í hrossakaup með
atkvæði sitt. Það er ósköp eðlilegt í
pólitískri baráttu að menn stilli upp
ákveðnum hlutum og valkostum og
ógni jafnvel svolítið. Eg held að menn
verði þó að gera slíkt í hófi. Þegar
kemur bakslag í skoðanakönnunum á
fylgi Framsóknarflokksins, hljóta þeir
að hafa áhyggjur af því. En að ætla
mönnum að fara að færa atkvæði milli
flokka til að bjarga mönnum eða
stjómum, er algerlega óraunhæft. Það
er hægt að treysta fólki miklu betur en
svo að það láti móta sig þannig. Þetta
er kannski gott dæmi eins og ég hef
heyrt hér í Eyjum að kratamir hafi
verið að reyna að koma því á flot af
því að ég væri öraggur, þá væri allt í
lagi að kjósa Lúðvík, vegna þess að
betra væri að hafa tvo þingmenn úr
Vestmannaeyjum á þingi. Það sem
málið snýst um er að nýta það
sóknarfæri sem við fáum ef 3 þing-
menn af D-lista ná kjöri undir forystu
Eyjamanns. Þá komum við geysilega
sterkir inn til myndunar landsstjómar.
Lykillinn að sigri í þeim bikarleik er
öfiugt fylgi við D-listann, því það er
allt sem bendir til þess að Sjálf-
stæðisflokkurinn verði áfram í ríkis-
stjóm. Það er nú svo að ég hef séð um
málefni Vestmannaeyja á Alþingi.
Það væri og gaman ef einhver gæti
bent mér á annað. Ég set hins vegar
allt mitt traust á Vestmannaeyinga í
þessum kosningum. Ég sit í þeirri
ábyrgðarmiklu stöðu nú að leiða lista
Sjálfstæðisflokkins á Suðurlandi, sem
er forystuafl þar. Þetta er eins og
bikarleikur hjá IBV, ef ég kem
flokknum ekki sterkum út úr þessari
kosningu, þá geng ég ekki sem
fyrirliði. Þá er einnig búið að afsanna
að hægt sé að treysta mér að minnsta
kosti mér sem Vestmannaeyingi fyrir
forystunni og um leið myndi það
valda því að við næðum ekki þeim
áhrifum innan þessa mikla afls sem
Sjálfstæðisflokkurinn er, afli sem er
tryggt er með kjöri þriggja þing-
manna. Þess vegna skiptir miklu máli
að velja þann kost sem skilar okkur
væntanlega mestum árangri."
Heijólfsdalsverkefnið er
mjög spennandi
Hvemig metur þú stöðu Eggerts
Haukdal, sem er nú garnall flokks-
bróðirþinn, íþessum kosningum?
„Ég hef ekki séð neina ástæðu til
þess að meta hana. Hann skemmir
eitthvað fyrir okkur og til þess er
leikurinn gerður.“
Þú átt sœti í Herjólfsdalsnefnd og
framkvcemdir í Herjólsdal hafa verið
gagnrýndar, hvað viltu segja um þá
gagnrýni?
„Samstarfið í Herjólfsdalsnefnd
hefur verið mjög gott með einróma
niðurstöðu. Það era nokkrir kverúl-
antar sem hafa gefið sér upp forsendur
án þess að setja sig nokkuð inn í
málin. I einhverri grein um daginn var
talað um að óðlilegt væri að ég stýrði
Herjólfsdalsnefnd. Ég var hins vegar
valinn til þess af íþróttafélögunum.
Einhver vildi meina að það væri
óeðlilegt að ég stýrði nefndinni þar
sem ég hefði hagsmuna að gæta af
Þjóðhátíð, það er hefði tekjur af
Þjóðhátíð. Alli sem vilja geta fengið
það staðfest að ég hef aldrei fengið
eina einustu krónu fyrir störf mín á
Þjóðhátíð. Ég sit alltaf uppi með
svona skítkast og tek því eins og
hverju öðra hundsbiti og það verður
að hafa sinn gang. Það dregur ekkert
kjarkinn úr mér til þess að vinna að
góðum málum fyrir Vestmannaeyjar.
Ég er tekinn á beinið uppi á fasta-
landinu fyrir að vera harður
málfylgjumaður fyrir Vestmannaeyj-
ar. Ég hrekk ekkert undan því. En
það era margir sem öfundast út í
Vestmannaeyjar. Það era Iíka gerðar
meiri kröfur til okkar en margra
annarra byggðarlaga, ég held mínu
striki og ver hag Vestmannaeyja kalt
og rólega og læt ekki haggast frekar en
Heimaklettur þó að pusi. Lagfæring
hátíðarsvæðisins í Herjólfsdal er stór-
kostlegt verkefni og metnaðarfullt.“
Kerftð vill að Eyjamenn sjái
um sig sjálftr
Af hverju eru þessar kröfur meiri til
Vestmannaeyja en annarra byggðar-
laga?
„Ég held að það sé einfalt mál.
Vestmannaeyjar hafa alltaf verið
öflugt byggðarlag og öflugasta verstöð
Islands alla þessa öld. Vestmanna-
eyjar hafa alltaf haft sjálfstætt
atvinnulíf og menningarlíf. Við sjáum
þetta líka í íþróttunum, þar sem mun
meiri kröfur hafa verið gerðar til
leikmanna IBV heldur en leikmanna
annarra liða, þetta hefur aðeins jafnast
eftir að Vestmannaeyingar urðu
íslandsmeistarar. Það er eins og menn
leggi ekki alveg eins í risann. Menn
hafa hugsað þannig í íslenska
ríkiskerfinu að Vestmannaeyingar sjái
um sig sjálfir. Ég get bent á dæmi að
þegar ég kom inn á þing fyrir 16 áram
var ekki til vegakerfi í Vest-
mannaeyjum og Flugmálastjóm ekki
heldur og margt fleira mætti nefna.
Forsenda þess að ég fór út í pólitík er
sú að ég þoldi ekki hversu Vest-
mannaeyingar komu illa út úr gosinu
Ijárhagslega. Þegar menn skoða hvað
hefur áunnist síðan er augljóst að það
hefur náðst að krafsa í bakkann í ansi
mörgu.“
Ámi segir að stjómarsamstarfið
undir forystu Davíðs Oddssonar, sem
staðið hafi í Ijögur ár, hafi gengið af-
burða vel. „Það er byggt á gagn-
kvæmu trausti og marksækni til ár-
angurs. Við höfum ekkert þurft að
kvarta undan Framsóknarflokknum.
Menn greinir eðlilega á í ýmsum
þáttum, en það er þannig í öllu þar
sem menn vinna saman, það verður að
ná samkomulagi og það hefur tekist
farsællega."
Þurfum að færa út kvíamar
og auka möguleikana
Byggðamálin hafa verið mál málanna
í kosningabaráttunni og kannski ekki
að ósekju. Það eru breyttarforsendur
í fiskveiðum og vinnslu og störfum í
þessum greinum hefur fœkkað á
landsbyggðinni, auk þess sem fólki
hefurfœkkað þar. Hvaða atriði sérðu
fyrir fólk í Vestmannaeyjum og
kjördœmið sem snúið gcetu þessari
þróun við?
„Reyndar er Suðurlandskjördæmi
eina landsbyggðarkjördæmið þar sem
íbúum hefur fjölgað. I Vestmanna-
eyjum hefur íbúum fækkað á fjórum
árum um 240 manns, það er um 60 á
ári og það er 60 of mikið. Hins vegar
getur enginn valið nákvæmlega hvar
fólk skuli setjast að. Staða Vest-
mannaeyja og Suðurlandskjördæmis
er mjög sterk að mörgu leyti. Ég er til
að mynda sannfærður um það að
stofnun Rannsóknaseturs Háskóla
íslands hefur gjörbreytt viðhorfum
margra ungmenna til möguleika á
atvinnu í heimabyggð í framtíðinni.
Fyrir tíu árum vora kannski tveir
háskólamenntaðir menn starfandi í
Vestmannaeyjum. Nú era þeir
fimmtán sem starfa í tengslum við
Rannsóknasetrið. Við þurfum að ná
meira sviði í þessum efnum, fjar-
kennslan gefur góða möguleika,
lykilatriðið er þó að hinn efnahagslegi
ávinningur og stöðugleiki haldi áfram
og í 50 ára sögu lýðveldisins er
stöðugleiki í íslensku efnahagslífi bara
til í höndum Sjálfstæðismanna."
Lykillinn að áframhaldandi
árangri er forysta Davíðs
Oddssonar
Hvað um þá kenningu að stöðugleiki
undanfarinna ára sé fyrst og fremst
vegna ytri skilyrða?
„Samfylkingin hefur gefið í skyn að
best sé að kjósa Veðurstofuna til þess
að stjóma landinu. Það er ágætis
hugmynd út af fyrir sig. Veikleiki
Samfylkingarinnar er hins vegar
margþættur. I fyrsta lagi er hún
partasala og viðbrenndur bixímatur,
því þetta er 70 ára landburður af kjaft-
æði sem stendur að baki þessum
sameiningartilraunum. Þetta era
ekkert nema tilraunir, því þeir vakna
alltaf við martröð áður en leiknum er
lokið. Martröðin í þessu tilviki núna
er að Alþýðubandalagið hefur
klofnað. Formaðurinn situr uppi sem
gísl Alþýðuflokksins og búinn að tapa
flokknum, fylginu og forystunni og
notaður sem blaðafulltrúi Sighvats
Björgvinssonar. Þetta er ótrúlegt
hlutskipti formanns Alþýðubanda-
lagsins. Kjaminn er búinn að stofna
nýjan flokk, Vinstri græna og það er
hægt að skilja það sem þeir segja, en
hinir hafa verið svo uppteknir af því
að hópa sig saman, para sig undan-
farin ár að þeir hafa í rauninni ekki
verið með í íslenskri þjóðmálabaráttu.
Það hefur allt snúist um það hvað það
hefur verið gaman að vera saman, en
því miður fór það svo að þeir fóra í
fleiri parta eins og venjulega. Þetta
sést best á prófkjörinu í Norðurlandi
eystra, þar sem þeir gátu ekki virt
leikreglurnar. Fyrst likaði þeim ekki
frambjóðandinn, svo ekki niðurstaðan
og þá var bara sagt að ekkert væri að
marka. Þetta era auðvitað engin
vinnubrögð, heldur sýndarmennska."
Eyjamaður leiðir lista
Sjálfstæðisflokksins á
Suðurlandi í fyrsta sinn
Ámi segir að honum finnist
skemmtilegt að Vestmannaeyingar fái
nú tækifæri til þess að leiða lista
Sjálfstæðisflokkins á Suðurlandi.
„Það hefur oft verið skotið á mig og
ég gagnrýndur, talað niður til mfn og
meira að segja tveir samframbjóð-
endur mínir gerðu það á fundinum í
sjónvarpinu sl. sunnudag, bæði Lúð-
vík Bergvinsson og Guðni Ágústsson.
Þeir sögðu að það gæti nú ekki verið
að Sunnlendingar væra að kjósa menn
eins og Áma Johnsen. En mér finnst
þeir ekki síður vera að skjóta á fólkið
sem kýs mig, ekki síður en mig
sjálfan, að það sé fífl eins og ég. Ég
reyni nú að vinna mína vinnu þrátt
fyrir svona og vona bara að Eyjamenn
standi við bakið á mér, því annars næ
ég ekki þeim árangri sem ég vil ná
fyrir umbjóðendur mína í Eyjum,
fastalandinu og miðunum."
BG/ÓG