Fréttir - Eyjafréttir - 06.05.1999, Side 24
24
Fréttir
Fimmtudagur 6. maí 1999
fCosHÍPtgatiaffið vcpöm í
_____
á ÍMÖpdag
Staðhingsmenn DmClStlUí& cpt4 ávattir tiú að Cíta
við gq fá sér ffaffi og ntcðúœti af áúaðGorðina
Asókn í túnfiskveiðar:
Nýr Ófeigur VE smíðaður í Kína
og verður tilbúinn næsta sumar
ÓFEIGUR VE eins og hann kemur til með að líta út fúllbúinn.
Fiskurinn, sem íslendingar hafa
hingað til aðcins þekkt sem inn-
fluttan dósamat, túnfiskur, er nú
meðal þess sem menn renna vonar-
augum til í framtíðinni. Sýnt er að
hinir gömiu nytjafiskar okkar á
borð við þorsk, ýsu og ufsa, þola
ekki á næstunni öllu meiri veiði og
því þarf að ieita hófanna annars
staðar.
Vestmannaeyingar hafa verið hvað
sneggstir að taka við sér í þessum
málum og nú þegar er eitt sérútbúið
túnfiskveiðiskip í eigu Vestmanna-
eyinga, Byr VE. Byr er nú að veiðum
suður í höfum, ekki fjarri Kanarí-
eyjum og hefur gengið þokkalega,
fengið 300 - 400 kg í lögn. En því
meir sem líður á árið færir fiskurinn
sig norðar og kemur inn í íslensku
lögsöguna síðla sumars. Eru þá vonir
bundnar við enn betri árangur.
En fleiri eru á leiðinni í túnfiskinn.
Útgerð Sæhamars er í hópi níu aðila
sem hafa í huga að láta smíða nýtt
túnfiskveiðiskip í Kína. Að öllum lík-
indum verður skrifað undir samninga
í þessari viku.
Og útgerðarfélagið Stígandi, sem
gerir út Ófeig VE, hefur gengið frá
samningum um smíði á nýju skipi í
Kína. Nýja skipið verður talsvert
stærra en gamli Ófeigur og útbúið til
togveiða og sömuleiðis hannað til
túnfískveiða með tilheyrandi frysti-
búnaði en túnfiskurinn er frystur við
- 65°. Skipið er 42 m að lengd og
mjög áþekkt að lengd og togarinn
Bergey en bæði breiðara og dýpra.
Það er íjögurra rnílna skip, sem kallað
er, má veiða að fjögurra sjómflna
mörkunum en hægt er að breyta því í
öflugra skip með litlum tilkostnaði.
Viktor Helgason, útgerðarmaður,
segir að skrifað hafi verið undir samn-
inga sl. laugardag og reiknað sé með
að skipið verði afhent næsta sumar,
afgreiðslufrestur sé 13 mánuðir.
Fyrirhugað sé að stunda botnfisk-
veiðar í 8 - 9 mánuði en svo sé ætlunin
að reyna við túnfiskinn þegar fer að
síga á seinni hluta ársins. Verð á
kvóta sé komið svo upp úr öllu valdi
að ekki sé lengur gmndvöllur fyrir að
leigja hann eða kaupa varanlega og
því hugsi þeir sér að reyna við tun-
fiskinn. Viktor segir að ástæða þess
að skipið verði smíðað í Kína sé sú að
Kínverjamir séu með miklu hag-
stæðari tilboð en aðrir og þar muni
miklu. Reiknað sé með að skipið
muni fullbúið kosta um 450 milljónir
króna og það sé langtum lægri tala en
aðrir hafi getað boðið. Viktor segir
ennfremur að gæði eigi að vera sam-
bærileg við það sem aðrir bjóða ef
ekki meiri enda standi Kínveijar mjög
framarlega í skipasmíðum og hafi
langa reynslu að baki.
Nlál Eggerts
afgreitt
Eggert Björgvinsson hefur
staðið í nokkru stappi við bæjar-
yfirvöld vegna verðlagningar á
þjónustu Ahaldahússins sem
Eggert hefur talið brjóta í bága
við samkeppnislög.
Nú hefur Samkeppnisstofnun
kveðið upp úrskurð sinn og segir
þar að ekki sé ástæða til að að-
hafast meira í málinu nema ný
gögn komi fram í því. í bréfi Sam-
keppnisstofnunar kemur m.a. ffam
að viðskipti Áhaldahússins við
aðra en bæjarsjóð séu 4,67% af
heildarútleigu á tækjum en þar af
teljast einnig stofnanir sem bærinn
er ábyrgur fyrir rekstrarlega séð,
svo sem Bæjarveitur, Hafnarsjóð-
ur, Sorpeyðingarstöð, Náttúrustofa
og Leikskólinn Betel.
Forkaups-
réttur að
GullbergiVE
Útgerð Guilbergs VE hefur
keypt nýtt skip í Noregi, eins og
fram hefur komið í fréttum, og
er því gamla Gullberg til sölu.
Nokkur botnfiskkvóti fylgir
skipinu og er því skylda, lögum
samkvæmt, að bjóða viðkomandi
bæjarfélagi forkaupsrétt. Bæjar-
ráði hefur borist bréf frá Friðriki J.
Amgrímssyni hdl. þar sem bænum
er boðinn þessi réttur. Bæjarstjóra
hefur verið falið að afla nánari
upplýsinga.