Fréttir - Eyjafréttir - 21.06.2001, Blaðsíða 1
MIKIÐ var um dýrðir í Herjólfsdal þar sem hátíðahöld þjóðhátíðardagsins fóru
fram að þessu sinni. Veður var þokkalegt og samkoman vel sótt.
Lending nr. 1000 á
sama degi í þrjú ár
á Bakkafluvelli - Endurbótum á honum á að Ijúka fyrir þjóðhátíð
Á þriðjudag, þann 19. júní, var
1000. lendingin á Bakkaflugvelli
á árinu. Svo skemmtilega hittist á
að þetta er þriðja árið í röð sem
lending nr. 1000 er þann 19. júní.
„Ef ailt hefði verið með felldu þá
hefði 1000. lendingin nú átt að vera
á mánudag en þann dag kipptu
veðurguðirnir í spottann, þannig að
þriðja árið í röð ber þetta upp á 19.
júní,“ segir Einar Jónsson, umsjón-
armaður á Bakkaflugvelli. „Hér er
alltaf boðið upp á tertu við lendingu
nr. 1000 og var að sjálfsögðu einnig
gert núna,“ sagði Einar.
Nú er unnið á fullu við endurbætur
á flugvellinum á Bakka. Einar segir
að búið sé að ýta upp grasrótinni og
verið að koma fyrir malarpúðum
undir slitlagið sem verður lagt á
brautina í sumar. Samkvæmt
áætlun á verkinu að vera lokið þann
1. ágúst og Einar segir allt útlit fyrir
að það muni standast og völlurinn
klár fyrir þjóðhátíðartraffíkina.
Einar segir að þetta komi til með að
breyta miklu í öryggismálum, með
þessu verði Bakkaflugvöllur heils
árs völlur en á vorin hafi oft verið
erfitt með flug á Bakka vegna
leysinga.
Midnight Sun Fashion Show:
Undirbúningur gengur vel
Fjölbreyttasta fjölmiðlaflóra frá leiðtogafundi
Undirbúningur fyrir sýninguna
Midnight Sun Fashion Show,
sem haida á í Vestmannaeyjum
dagana 6. til 8. júlí er á lokastigi.
Búist er við að hingað komi á
bilinu 120 til 140 manns í
tengslum við sýninguna þar af er
fjölmiðlafólk alls staðar að úr
heiminum.
Fatahönnuðir koma frá tíu
löndum auk Islands og er Selma
Ragnarsdóttir meðal fulltrúa
Islands. Hinir koma frá Japan,
Englandi, Italíu,
Svíþjóð,Frakklandi, Finnlandi,
Danmörku, Noregi, Færeyjum
og Bandaríkjum, nánar tiltekið
New York.
Sjónvarpsfólk, blaðamenn og
ljósmyndarar koma frá mörgum
fjölmiðlum, meðal annarra koma
fulltrúar frá MTV, ljósmyndari
ásamt aðstoðarmanni frá
Swedish Elle og framkvæmda-
stjóri EUe á Norðurlöndum.
Ljósmyndari kemur frá Dutch
Magazine og Sunday Times
ásamt fulltrúum frá
Dazed&Confused magazine.
Tískublaðamaður verður frá
Harpers&Bazaar, Hong Kong og
Vogue Japan ásamt Taiwan
Vogue senda fulltrúa svo ein-
hverjir séu nefndir.
Kolbrún Aðalsteinsdóttir, sem
vinnur að undirbúningi
sýningarinnar ásamt Selmu og
Onnu Svölu Árnadóttur frá
Suðurgarði, segir að fjölbreyttari
fjölmiðlaflóra hafi ekki sótt
Island heim síðan á leiðtogafundi
Reagans og Gorbatjovs 1986.
„Það er óvænt og yndislegt að fá
allt þetta fjölmiðlafólk hingað.
Auk þeirra koma m.a. 20
fyrirsætur frá Mflanó gagngert
til að taka þátt í sýningunni,“
sagði Kolla sem er ánægð með
samstarfið við Eyjamenn.
Uppstokkun í Heimaey
Fyrir dyrum standa breytingar
á rekstri Kertaverksmiðjunnar
Heimaeyjar.
Aðgerðimar miða að því að ná
endum saman í rekstrinum, um
leið og faglegt starf með fötluðum
er aukið. I þessum tilgangi hefur
stjórn kertaverksmiðjunnar lagt til
breytingar sem fela m.a. í sér að
ófötluðum starfsmönnum verður
sagt upp störfum, störfm auglýst á
ný og þrír ráðnir í stað fjögurra.
Ekki er þó um að ræða fækkun
stöðugilda heldur hefur stjómin
ráðið til starfa þroskaþjálfa sem
þegar hefur tekið til starfa.
Jafnframt hefur stjómin lagt til að
launakerfi fatlaðra starfsmanna
verði endurskipulagt. I því felst að
tengd verði saman vinnugeta fat-
laðra og launakjör. Markmiðið er
að reksturinn standi undir sér með
þeim sértekjum sem verksmiðjan
hefur, ásamt ríkisframlagi.
Arnar Péturs til ÍBV næsta vetur
Ákveðið er að Eyjamaðurinn, Amar Pétursson, sem leikið hefur með
Stjömunni í handboltanum síðustu ár leiki með IBV næsta vetur. Magnús
Bragason hjá ÍBV staðfesti þetta og sagði að Arnar, sem er við nám í
Reykjavík, muni æfa þar.
Ellefu stúlkur taka þátt í Sumarstúlkukeppninni
Sumarstúlkukeppnin fer fram í
Höllinni laugardaginn 14. júlí nk.
og verður til hennar vandað eins
og kostur er.
Alls taka 11 stúlkur þátt í keppnin-
ni og verða þær kynntar í þessu og
tveimur næstu blöðum Frétta. Eins
og alltaf koma margir að Sumar-
stúlkukeppninni og er Dagmar
Skúladóttir framkvæmdastjóri
hennar eins og nokkur undanfarin
ár. Hárhúsið sér um að greiða
stúlkunum, Ragnheiður í Farðanum
snyrtir stúlkumar og Halla Einars-
dóttir er ljósmyndari keppninnar.
Tónlistarstjóri er Rúnar Karlsson og
kynnir Bjarni Olafur Guð-
mundsson.
Helstu styrktaraðilar eru Fréttir,
Höllin, Sparisjóðurinn og Flug-
félag Islands.
Dagmar, sem er framkvæmdastjóri
keppninnar fjórða skiptið, segir að
stúlkurnar hafi aldrei verið fleiri.
„Við byrjuðum æfingar fyrir um
mánuði en ekki af fullum krafti.
Núna eru fjórar vikur fram að
keppninni og þá fer að færast meiri
alvara í þetta. Við emm að æfa fyrir
tískusýningar, dansa og framkomu.
Stelpumar standa sig mjög vel og er
þetta léttara heldur en ég hélt af því
að þær em þetta margar. Einnig æfa
fimm strákar með okkur en þeir
taka þátt í sýningunni. Þeir hafa
staðið sig frábærlega og gera
sýninguna ennþá skemmtilegri,“
sagði Dagmar.
Hún segir að það auðveldi allan
undirbúning að Sumarstúlku-
keppnin fer nú fram í Höllinni. „Það
er mikil framför frá því sem verið
hefur og býður upp á mikla
möguleika. Höllin er fallegt hús og
fyrsta flokks skemmtistaður þar
sem allt er til staðar. Maður hefur
því meiri tíma til að undirbúa sjálft
kvöldið."
Þema kvöldsins kemur fram í
opnunaratriðinu og er fyrirmyndin
sótt til bannáranna í Banda-
ríkjunum þegar Capone og hans
menn óðu uppi. „Meðal annarra
skemmtiatriða eru söngur, grín,
litlar hnátur frá Fimleikafélaginu
Rán mæta og svo leikur hljóm-
sveitin Sóldögg fyrir dansi. Áuð-
vitað verða stelpumar í aðalhlut-
verki þetta kvöld og aðalstjörn-
umar. Ég held að allir eigi að geta
skemmt sér þetta kvöld sem hefst
með kvöldverði að hætti Gríms
kokks,“ sagði Dagmar að lokum.
Sjú miðopnu.
TM-ÖRYGGI
BÍLAVERKSTÆÐIÐ
Bragginn s.f.
fyrir fjölskylduna
sameinar öll tryggingamálin
á einfaldan og hagkvæman hátt
Flötum 20
Viðgerðir og smurstöð
Sími 481 3235
Réttingar og sprautun
Sími 481 1535
SUMARÁÆTLUN HERJÓLFS
Jum “ september Vestmannaeyjum Frá Þorlákshöfn
Alla daga. 8.15 12.00
Aukaferð fim., fös. og sun. 15.30 19.00
Aukaferð món. (hefjast 11. júní). 15.30 19.00
H ERJÓLFUR
Nónarí upplýsingar: Vestmannaeyiar; Sími 481-2800 • Fax 481 2991 sndjkarmgar
| Þoriáicshöfn: Sími 483-3413 *Fax 483 3924