Fréttir - Eyjafréttir - 21.06.2001, Síða 4
4
Fréttir
Fimmtudagur 21. júní 2001
Æskudraumurínn rætiist
Eins og fram kemur annars staðar íblaðinu urðu nokkrar
skemmdir á vatnsleiðslunni milli lands og eyja í síðustu
viku. Vaskur hópur manna vinnur að viðgerðum á henni
og einn úrþeirra hópi er Eyjamaður vikunnar.
Fullt nafn? Gunnlaugur Erlendsson.
Fæðingardagur og ár? 30. janúar 1974.
Fæðingarstaður? Reykjavík (gosið sá fyrir því).
Fjölskylda? í sambúð með Drífu Þöll Amardóttur.
Hvert var draumastarfið þegar þú varst lítill?
Flugmaður til að byrja með, síðan var það
kafari og það má því segja að æsku-
draumarnir hafi ræst að því leyti.
Hvernig bíl vildir þú helst eiga? Benz
(McLaren)
Hver er þinn helsti kostur? Að vera rauð-
hærður, það er gífurlegur kostur.
Hvaða eiginleika vildir þú helst vera án?
Þrjóskan mætti stundum vera minni.
Uppáhaldsmatur? Svín.
Versti matur? Svið og annarfornaldarmatur.
Með hvaða aðila vildir þú helst eyða helgi?
Leikaranum Jim Carey.
Aðaláhugamál? Að skemmta mér með
vinum mínum.
Hvar vildir þú eiga heima annars staðar en
í Eyjum? Einhvers staðar í Karabíska hafinu.
Finnst þér einhver íslendingur á toppnum
núna? Mér finnst þeir Simmi og Grímur í
Höllinni hafa staðið sig vel.
Uppáhaldsíþróttamaður eða íþróttafélag? ÍBV og svo
ökuþórinn Miika Hákkinen.
Stundar þú einhverja íþrótt? Ég geng mikið þessa
dagana meðan bíllinn er bilaður. Er það ekki íþrótt?
Ertu hjátrúarfullur? Nei.
Uppáhaldssjónvarpsefni? Simpsons og fréttir.
Besta bíómynd sem þú hefur séð? The Abyss.
Hvað finnst þér gera fólk aðlaðandi? Þegar það kemur
vel fram við mig og aðra.
Hvað finnst þér gera fólk fráhrindandi? Það
gagnstæða.
Hvernig miðar viðgerð á vatnsleiðslunni? Henni miðar
vel, við byrjuðum viðgerðina í gær og ef veður helst
skaplegt þá verður hægt að Ijúka þessu á nokkrum
dögum.
Er köfun áhugavert starf? Það er áhugavert og
skemmtilegt, rétt eins og hver önnur vinna sem maður
hefur áhuga á.
Er köfun hættuleg? Ekki ef farið er að settum reglum,
þetta er svipað og í umferðinni þar er maður í hættu ef
ekkierfarið aðreglum.
Hefurðu komist í kynni við hafmeyjar? Já, margoft.
Eitthvað að lokum? Ég vil þakka fyrir að fá að verða
fyrsti Vestmannaeyingurinn í mínum vinahóp til að verða
Eyjamaður vikunnar. Hinir, sem hafa orðið þess heiðurs
aðnjótandi eru nefnilega báðir Reykvíkingar og það var
tími tii kominn að fá einn alvöru Eyjamann.
Gunnlaugur Erlendsson
er Eyjamaður vikunnar
Matgæðingurinn er Ingibjörg Heiðdal:
Mexíkanskar kótelettur og
kaffibúðingurinn hennar mömmu
Nýfæddir ?cr
Vestmannaeyingar
Þann 6. maí fæddist þeim Elísabet fris Þórsdóttur og Gunnari Má
Hreinssyni dóttir. Hún var 14 merkurog 51,5 sm. Hún hefur verið
skírð og heitir Gyða Kristín. Ljósmóðir var Guðný Bjamadóttir.
Með henni á myndinni er Alexandra, stóra frænka.
Leiðrétting: I síðasta blaði varfarið rangt með föðumafn pabba
hans Eyþórs sem hér er á myndinni með Sigurði stóra bróður. Pabbi
þeirra, Gísli, er Guðnason en ekki Guðlaugsson.
Takk Nanna mín, alltaf jafn sæt í
þér. Hér eru mínar uppskriftir.
Kótelettur
Kótelettur með mexikönsku ívafi
fyrir 4-6 (fer eftir því hvað maður
er gráðugur)
12 kótelettur
1 boxsveppir
1 rauð paprika
1 græn paprika
1 pk. forsoðnar kartöflur
1-1 1/2 mexikanskurostur
1 ferna matvinnslurjómi
Kryddið kótelettur með season all
og sítrónupipar steikið joær í 2-3
mín á hvorri hlið og setjið síðan í
eldfast mót. Skerið sveppi og
papriku og steikið á pönnu, hellið
rjómanum yfir, skerið síðan ostinn
og setjið út i. Látið þetta malla
þangað til osturinn er bráðinn, helli-
ð þá öllu gumsinu yfir kóteletturnar
og dreifið kartöflunum hér og þar
með. Þetta er síðan látið malla við
ca. 200° hita í ofni í um 40 mín.
Gott er að hafa með þessu ferskt
salat með rauðlauk og fetaosti og
ekki skemmir gott rauðvín bragðið.
Kaffibúðingur
Desert kaffibúðingurinn hennar
mömmu
3 egg
100 grsykur
4 dl rjómi
1 dl rótsterkt kaffi
1 pk. Súkkulaðispænir (dökkir)
6 blöð matarlím
Egg og sykur þeytt vel, blandið
súkkulaðinu varlega út í. Linið
matarlímið í köldu vatni og setjið
saman við ylvolgt kaffið.setjið það
svo út í eggjaþeytinginn og hrærið
varlega saman. Þeytið að síðustu
rjómann og blandið saman við.
Látið í fallega skál eða skálar inn í
ísskáp í að minnsta kosti tvo tíma.
(Ath. þessi búðingur er ávana-
bindandi!)
Verði ykkur að góðu. Mig langar
að skora á Friðrik Orn Sæ-
björnsson matgæðing í
Hrauntúninu.
Á döfinni 4*
Júní
21. Vöruvalsmótið í knattspyrnu fyrir stúlkur
22. KFS ■ Ægir kl. 20.00 ó Helgafellsvelli.
22. Jónsmessugleði í Skvísusundi.
22. Hjóna■ og parakeppnin í golfi.
23. Golfmót, Jónsmessumótið, snærisleikur og „límonoði."
24. Klúbtakeppnin í golfi, Akóges ■ Kiwanfs ■ Oddfellow.
24. Símadeild karla ÍBV-Keflavík kl. 20.00.
26. Símadeild kvenna ÍBV-KR kl. 20.00.
27. Shellmófið í knottspyrnu fyrir drengi.
28. Landsmót 35 óra og eldri í golfi
JÚlí
1. Símadeild karla ÍBV-Valur kl. 20.00
2. Golfævintýrið, golfmót fyrir unga kylfinga
6. Golfmót, Volcano open
6. KFS ■ Reynir Sandgerði kl. 20.00 ó Helgafellsvelli.
7. Midnight Sun Fashion Show, alþjóðleg tískusýning í Fyjum
7. Menningordagur ■ Hótíð í bæ ■ Gosloko minnst.
7. Fjölskyldudagur Sparisjóðs Vestmannaeyja