Fréttir - Eyjafréttir - 21.06.2001, Page 10
Iðunn Gunnarsdóttir er fædd í Vestmannaeyjum
þann 15. júní 1981. Foreldrar hennar eru Birna
Hilmisdóttir og Gunnar Ingi Einarsson. Iðunn lauk
stúdentsprófi af félagsfræðibraut frá Framhalds-
skólanum í Vestmannaeyjum á haustönn 2000 sem
teygðist fram á þetta ár vegna kennaraverkfalls.
Núna er hún að vinna á Leikskólanum Sóla og í
Tvistinum. Aðspurð um kærasta var svarið stutt og
laggott, hann er enginn.
„Eg stefni á að læra hönnun, annað hvort í
Iðnskólanum í Reykjavík eða í Listaháskólanum.
Jafnframt hef ég áhuga á grafískri hönnun," segir
Iðunn þegar hún er spurð um framtíðarplön. „Ég er
búin að sækja um að komast í hönnunardeildina
í Iðnskólanum í haust og mig langar til að hanna
húsgögn og eða fara í innanhússarkitektúr. Til
að byrja með held ég að Iðnskólinn henti mér
betur þar sem hann er praktískari að mínu mati.
Eftir nám þar stefni ég á framhaldsnám og það
verður að koma í Ijós hvort það verður hér á
landi eða erlendis."
Hvernig datt þér til hugar að taka þátt í
Sumarstúlkukeppninni? „Af því að Dagmar bað
mig um að taka þátt í keppninni og ég sé ekki
eftir því. Það er búið að vera rosalega gaman og
svo þekkir maður allar stelpurnar sem taka þátt í
keppninni. Þátttakan á líka örugglega eftir að
auka sjálfstraustið."
Hvað finnst þér um Framhaldsskólann þegar þú lítur
yfir farinn veg eftir fjögurra ára nám?
„Framhaldsskólinn var fínn fyrir mig en mér finst
að hann mætti vera metnaðarfyllri á sumum
sviðum. Ég var eina önn í Fjölbrautaskóla
Suðurlands á Selfossi sem er stór skóli. Þar fann
maður að það er ekkert verra að vera í litlum
skóla sem er persónulegri um leið.“
Hver eru helstu áhugamálin? „Líkamsrækt og að
—
hafa nóg fyrir stafni. Svo er það að sjálfsögðu
félagslífið og vinirnir en mér líður best þegar ég
hef nóg að gera.“
Hvernig fannst þér að vera unglingur í Vestmanna-
eyjum? „Það var allt í lagi, en aðstöðuleysið er
mikið og lítið hægt að gera. Það verður að ná til
fleiri en eins hóps því ekki eru allir í íþróttum.
Þegar maður verður 16 ára er ekkert hægt að
gera nema vera í íþróttum."
Það stóð ekki á svarinu þegar Iðunn var spurð að því
hvað hún myndi gera sem bæjarstjóri í einn mánuð.
„Ég myndi gera eitthvað mikið fyrir unglingana,"
svarar hún að bragði. „Já, eitthvað mikið. Koma
upp góðri félagsaðstöðu fyrir krakkana og
kaffihúsi eins og Apótekinu á ísafirði. Það er
opið öllum og var ekki að sjá að fullorðið fólk léti
unglingana aftra sér frá að kíkja þar inn.
Apótekið er vímulaust kaffihús en þar eru m.a.
tölvur fyrir þá sem vilja."
Hvað með búsetu í framtíðinni? „í dag vildi ég
koma til afturtil Vestmannaeyja eftir að hafa
lokið námi ef atvinna væri í boði. En ég sé mig
ekki stofna fjölskyldu í Reykjavík."
Hverjir eru að þínu mati helstu kostimir við að búa í
Vestmannaeyjum? „Það er það sem við höfum í
allt kringum okkur, náttúran og allt fólkið. Núna
er ég hérna og er ekki að sækjast eftir nokkru í
Reykjavík nema náminu þegar að því kemur. Það
eru Ifka forréttindi að fá að ala börn upp í
Vestmannaeyjum."
En ókostimir? „Litlir atvinnumöguleikar og það er
ekki úr miklu að velja fyrir fólk sem er að koma
úr námi. Maður á að læra það sem mann langar
til og vera svo bjartsýnn á framtíðina. Það er
kannski ekki öll þjónusta fyrir hendi en ég sætti
mig við hana eins og hún er,“ sagði Iðunn að
lokum.
Betsý Ágústsdóttir er fædd í Vestmannaeyjum 2.
mars 1981 og foreldrarnir eru Ágúst Karlsson og
Jenna Guðjónsdóttir. Kærastinn er Gunnar
Friðfinnsson. Betsý útskrifaðist frá Framhalds-
skólanum í vor og var hún á félagsfræðibraut.
„Mín helstu áhugamál eru að vera með vinum og
ferðast. Ég hef líka gaman af því að sauma en ég
er lítið fyrir íþróttir og tónlist," segir Betsý.
En af hverju datt henni í hug að taka þátt í
Sumarstúlkukeppninni? „Dagmar hringdi í mig og
bauð mér að vera með. Mér var boðið að vera
með fyrir tveimur árum en þá hef ég sennilega
ekki verið tilbúin. Þá taka tvær æskuvinkonur
mína þátt í keppninni núna og það skemmir ekki
fyrir.“
Hvað með framtíðina? „Það er ennþá frekar
óákveðið en ég er að spá í fatahönnun við
Iðnskólann í Reykjavík. Annars er svo margt í
boði og ég er ekkert farin að ákveða ennþá.“
Hvernig fannst þér að vera unglingur í
Vestmannaeyjum? „Mér fannst það mjög fínt. Það
er nóg að gera ef maður ber sig eftir því. En það
mætti gera betur og koma hér upp einhverri
frístundaaðstöðu og kaffihúsi fyrir krakkana."
Hvað með framtíðarbúsetu? „Líklega verða það
Vestmannaeyjar en allt óráðið á meðan maður er
í námi. Mig langar til að búa hér og Gunnar fer
ekki fet.“
Hvernig finnst þér Framhaldsskólinn. „Mér finnst
hann mjög góður. Ég var í Ármúlaskóla í tvö ár
en þar er agi meiri og allt mikið stærra. Hér
þekkja allir alla og allt mikið frjálsara.
Starfsfólkið er gott en það mættu vera fleiri
námsbrautir sem opna nemendum fleiri leiðir.“
Hvað með félagslíf í skólanum? „Ég var dugleg
fyrst en þátttakan minnkaði þegar maður fór að
komast inn á aðrar skemmtanir.“
Hvernig finnst þér aðstaða vera fyrir unglinga í Vest-
mannaeyjum? „Félagsmiðstöðin í Félags-
heimilinu er fyrir þá yngri en þegar maður er 15,
16 og 17 ára vantar stað eða einhverjar skemmt-
anir. Hvort þær yrðu svo sóttar er svo annað
mál. Það er mikið kvartað en þegar eitthvað á að
gera mæta fáir.“
Hver er afstaða unglinga til búsetu í Vestmanna-
eyjum? „Hún er ekki nógu góð. Á vissum aldri er
reyndar allt ómögulegt og ekkert hægt að gera.
Námsmöguleikar mættu vera meiri en það er
gott að fá fjarnám hingað. Annars er grasið oft
grænna hinum megin við lækinn. Ef það kæmu
göng yrði þetta allt léttara því þá gætum við
skotist hvenær sem og það yrði auðveldara fyrir
þá sem vilja heimsækja okkur.“
Hvað myndir þú gera sem bæjarstjóri í einn mánuð?
„Það er lítið hægt að gera á einum mánuði. Ég
myndi þrýsta á göng hérna á milli en að öðru
leyti hef ég ekki mikið pælt í þessum hlutum.
Ætli maður myndi ekki bara njóta þess.“
Hvernig er hinn fullkomni karlmaður? „Hann þarf að
hafa eitthvað í kollinum, vera myndarlegur, hress
og skemmtilegur, tillitssamur og góður vinur.
Það er aðalatriðið," sagði Betsý að lokum.