Fréttir - Eyjafréttir - 21.06.2001, Page 11
SPARISJÓÐUR
VESTMANNAEYJA
Hárhúsið
Strandvegi 47 • Sími 481 2500
HÖLUN
RÁÐSTEFNU- OG VEITINGAHUS
Margrét Grétarsdóttir er fædd og uppalin i Vest-
mannaeyjum en hún leit fyrst dagsins Ijós 13. júlí
1983. Foreldrar hennar eru Margrét Áslaug Grétars-
dóttir og Grétar Jónatansson. Kærasti er enginn.
Margrét hefur síðustu tvö ár stundað nám við Fram-
haldsskólann og er á félagsfræðibraut. Núna er hún
að vinna í kirkjugarðinum og í Höllinni.
Þegar kemur að því að spyrja um áhugamálin stóð
ekki á svarinu. „Mín helstu áhugamál eru
ferðalög, tónlist og dans. Hvað aðra hreyfingu
varðar er fótboltinn bæði hollur góður. Er ég að
taka fram skóna eftir nokkuð hlé,“ segir Margrét.
Hvað fékk þig til að taka þátt í Sumarstúlku-
keppninni? „Dagmar hringdi í mig og bauð mér
að vera með. Það er gaman að reyna eitthvað
nýtt og kynnast hinum stelpunum. Þær eru mjög
fínar allar og svo fær maður kannski aukið
sjálfstraust með þessu."
„Ég ætla að byrja á því að klára stúdentinn,"
segir Margrét þegar hún er spurð um sín
framtíðarplön. „Eftir það er stefnan að fara í
ferðamálaskóla og starfa við ferðaþjónustu.“
Hvernig finnst þér að vera unglingur í Vestmanna-
eyjum? „Það er svo sem ágætt en heldur rólegt
kannski. Það er ekki mikið að gerast þegar
maður er á aldrinum 15 til 18 ára. Kosturinn við
að verða 18 ára er að þá kemst maður á böll og
er frábært að Höllin skuli vera risin. En það
vantar að brúa bilið fyrir þá yngri.“
Hvað finnst þér um Framhaldsskólann? „Hann er
fínn. Kennararnir eru góðir og mér finnst fínt að
vera í skólanum."
„Ég er ekki sú virkasta í félagslífinu," segir
Margrét aðspurð. „En ef eitthvað spennandi er að
gerast tek ég þátt í því.“
Hvað með framtíðarbúsetu? „Ég stefni á að klára
skólann hérna og svo í skóla uppi á landi. Þá veit
ég ekki hvar ég kem til með að eiga heima en
þegar kemur að þvf að eiga börn og fjölskyldu
koma Vestmannaeyjar vel til greina. Já, seinna
meir gæti ég vel hugsað mér að búa hér en áður
ætla ég að ferðast eins mikið og ég get.“
Hvað myndir þú gera sem bæjarstjóri í einn mánuð?
„Það er voða lítið hægt að gera á einum mánuði.
Ætli maður reyndi ekki að gera eitthvað fyrir
unglingana og taka upp baráttuna með Adda
frænda og heimta göng milli lands og Eyja.“
Hvaða afstöðu hafa unglingar í Eyjum til búsetu hér?
„Það er rosalega misjafnt. Eins og gengur og
gerist er hér mikið um kjaftasögur og það eru
ekki allir sáttir við það. Én maður verður að líta
fram hjá því og að öðru leyti held ég að flestir
séu jákvæðir."
Hvernig er hinn fullkomni karlmaður? „Hann þarf
bara að vera góður og skemmtilegur. Hann má
líka alveg vera sætur, það skemmir ekki fyrir.
Annars geri ég ekki miklar kröfur og er veik fyrir
svertingjum,“ sagði Margrét og glotti.
Halla Elnarsdóttlr Ijósmyndari UÖuS>
Bárustíg 8
Verslunin 66 . . rJ
Vestmannabraut 30 FLUGFELAG ISLANDS Air Iceland
EYJABLÓM
FLAMINGÓ Reunr/taduf ^ VESTURVEGI10 S 481 1042
Heiðarvegur 6
HrEsÓ
Rúnar Karlsson
umsjón tónlistar
—
—
—
—