Fréttir - Eyjafréttir - 21.06.2001, Side 14
14
Fréttir
Fimmtudagur 21. júní 2001
/
Þeir Bogi Sigurðsson, Garðar Asbjörnsson, Sigurður Georgsson
Fjórir heiðursmenn kvaddir
Það var mikið um dýrðir í
Höllinni á laugardaginn
þegar Isfélagið efndi til
samsætis þar sem fjórir
af elstu starfsmönnum
félagsins, sem látið hafa
af störfum, voru kvaddir.
Þetta voru þeir Bogi Sig-
urðsson forstöðumaður
loðnubræðslu Isfélagsins,
Garðar Ásbjörnsson út-
gerðarstjóri, Sigurður
Georgsson skipstjóri og
Tryggvi Sigurðsson vél-
stjóri.
Um 100 manns voru í
veislunni, fjórmenning-
arnir og fjölskyldur þeirra
og starfsfólk og eigendur
Isfélagsins. Voru þeir
leystir út með gjöfum
sem voru málverk eftir
Jóa listó.
UM 100 manns voru í veislunni sem haldin var þeim félögum til heiðurs og fór hún fram í Höllinni.
Fjórfaldur aflakóngur
SIGRÍÐUR Ólafsdóttir eiginkona Tryggva Sigurðssonar sem
heldur á mvndinni ásamt Guðbjörgu Matthíasdóttur.
Einn og sami
launagreið-
andinn alla tíð
l>að kom í hlut Þórarins Sig-
urðssonar, stjórnarmanns í Isfélag-
inu, að ávarpa Sigurð Georgsson og
byrjaði hann að minnast atviks frá
árinu 1963 þegar þeir voru saman á
Sindra VE með Grétari Þorgilssyni.
„Ég man eftir því að I. apríl þessa
vertíð fæddist Bára, elsta dóttir Fríðu
og Sigga og mér er minnisstætt þegar
Grétar fékk skilaboðin í gegnum
Vestmannaeyjaradíó um að dóttir væri
fædd. Auðvitað var ekki möguleiki á
að Siggi legði trúnað á skilaboðin,
enda 1. apríl,“ sagði Þórarinn og ekki
dugðu fortölur Grétars sem sór og sárt
við lagði að fréttin væri rétt. „Þegar
við komum að landi um kvöldið ætla
ég ekki að lýsa því hvað ég öfundaði
Sigga mikið þegar hann fékk frí frá
löndun."
Næst rakti Þórarinn starfsferil Sig-
urðar sem á að baki 40 ára starfsferil
hjá Hraðfrystistöðinni og ísfélaginu
sem sameinuðust 1. janúar 1992.
„Siggi byrjaði að vinna í Hraðinu í
páskahrotu árið 1952, þá ellefu ára
gamall, ásamt Sigurði Jónssyni. Þeir
voru settir niður í kjallara og í saltfisk.
Þar voru þeir í rúma 24 klukkutíma,
fóru ekki í mat eða kaffi, hvað þá
heim því þeir einfaldlega gleymdust
og þorðu ekki að yfirgefa vinnu-
staðinn. Þeir væru þar sjálfsagt enn ef
þeir hefðu ekki fundist um síðir,
syfjaðir og matarlausir," sagði Þór-
arinn.
Sigurður byrjaði til sjós á Tý með
Magga á Felli árið 1957. Næst var
hann á Gammi með Gvendi Eyja en
báðir voru bátarnir í eigu Hrað-
frystistöðvarinnar. Hann var á Engey
1964 til 1967 með Jóni Valgarð
Guðjónssyni, Gæsa, sem háseti og
síðar stýrimaður en þama hafði hann
náð sér í 120 tonna skipstjómar-
réttindi. Árið 1968 verður hann
skipstjóri á Bjamarey þar sem hann er
í tvö ár svo tók hann við Hannesi lóðs
í eitt ár og jafnlengi var hann með
Hellisey.
„Nú verða kaflaskipti hjá Sigga
þegar hann gerðist meðeigandi Einars
Sigurðssonar, föður Sigurðar Einars-
sonar, á Heimaey, sem var fyrsta
nýsmíðin af fimm sem Einar lét smíða
á Akureyri 1972. Siggi var með
Heimaey til ársins 1978 en þá seldi
Siggi Einars hlut sinn í Heimaey og
keypti Siggi hlutinn ásamt Gæsa.
Síðan seldu þeir hann eftir að hafa gert
hann út í tvö ár.“
Þá fer Sigurður í land og ætlar að
gerast iðnaðarmaður en þá kom nafni
hans Sigurðsson til sögunnar og fékk
hann til að ná sér í fiskimannsréttindi.
Áður en hann lauk skólanum var hann
ráðinn skipstjóri á Suðurey.
Sigurður var með Suðurey í níu ár.
Hann varð fjórum sinnum aflakóngur
og þar af þrjú ár í röð. Mest komst
hann í að fá um 1700 tonn á vertíð.
Árið 1991 tekur Sigurður við
Heimaey sem gerð er út á troll og nót.
Bestum árangri náði hann á nótinni
1996 þegar hann og hans menn
veiddu 15.000
tonn al'loðnu sem
er athyglisvert í
ljósi þess að
Heimaey ber ekki
nema 500 tonn.
Að lokum þakk-
aði Þórarinn Sig-
urði fyrir gott
starf í 40 ár hjá
félaginu og sagði
ekki síður ástæðu
til að þakka Fríðu
konu hans sem
staðið hefur við
hlið hans alla tíð.
Guðbjörg Matthíasdóttir ávarpaði
Tryggva Sigurðsson og þakkaði
honum áratugalöng störf hans hjá
ísfélagi Vestmannaeyja hf.
„Þegar við fluttum í Birkihlíðina
fengum við Tryggva og Sirrý konu
hans sem nágranna og var það upp-
hafið að mikilli vináttu rnilli fjöl-
skyldna,“ sagði Guðbjörg í upphafi
ávarps síns. „Á þessa vináttu brá
aldrei skugga og því er mér ljúft að fá
þetta tækifæri til að ávarpa Tryggva."
Guðbjörg sagði að Tryggvi ætti sér
langan og farsælan starfsferil hjá
Isfélaginu og hefur hann ekki verið á
launaskrá hjá öðm fyrirtæki. „Hann
byrjaði hjá ís .aginu 1947 og var á
launaskrá hjá élaginu í 53 ár. Hann
ÞÓRARINN Sigurðsson, Sigurður Georgsson og Fríða Einarsdóttir eiginkona hans.