Fréttir - Eyjafréttir - 09.08.2001, Blaðsíða 8
8
Fréttir
Fimmtudagur 9. ágúst 2001
Þjóðhátíðin 2001 einkenndist af góðu veðri alla hátíðardagana og var einnig mjög gott veður dagana fyi
Svona
eiga
þjóð-
hátíðir
að vera
Þjóðhátíðin 2001 einkenndist
af góðu veðri alla hátíðar-
dagana, einnig var mjög gott
veður dagana fyrir og eftir
þjóðhátíð þannig að flutningar
á fólki til og frá Eyjum gengu
vel. Aætlað er að gestir á þjóð-
hátíð hafi verið um 7500 til
8000, heldur minna en t.d. í
fyrra en þá var aðsókn með því
mesta sem verið hefur. Vest-
mannaeyingar hafa lagt mikið
upp úr því að þjóðhátíðin sé
fjölskylduskemmtun þar sem
allir eiga að finna eitthvað við
sitt hæfi. Með þetta að leiðar-
Ijósi hefur þjóðhátíðarnefnd
lagt meiri áherslu á barnaefni
sem að þessu sinni var mjög
gott. Sennilega var hlutur Arna
Johnsens, fyrrum alþingis-
manns, það sem athygli flestra
beindist að í Ijósi viðburða
siðustu vikna. Hann tók þá
ákvörðun í samráði við þjóðhá-
tíðarnefnd að halda sínu striki
sem kynnir hátíðarinnar og að
hann sæi um brekkusönginn
eins og hann hefur gert síðan
árið 1977. Hvorttveggja gekk
með ágætum og örugglega
hefur Arni aldrei fengið aðrar
eins viðtökur og þegar hann
hóf upp raust sína á brekku-
sviðinu á sunnudagskvöldið.
Var engu líkara en þar væri
komið nafn úr poppheiminum
sem náð hefði að skapa sér
nafn á heimsvísu.
Föstudagur í þjóðhátíð heilsaði bjartur
og fagur og setti það skemmtilegan
svip á setningu þjóðhátíðar sem var
óvenjulega vel sótt. Heimafólk mætti
prúðbúið til setningar eins og verið
hefur undanfarnar hátíðir. Setti það
ásamt góða veðrinu skemmtilegan
svip á athöfnina. Reyndar mátti sjá á
sumum að þeir voru farnir að heilsa
upp á Bakkus meira en góðu hófi
gegnir en þeir voru í miklum minni-
hluta. Setningin var hefðbundin með
lúðrablæstri, kórsöng og hugvekju
Kristjáns Björnssonar sóknarprests,
Þór Vilhjálmsson, formaður IBV-
íþróttafélags, setti hátíðina og
Gunnlaugur Ástgeirsson flutti
hátíðarræðuna. Gunnlaugur, sem er
borinn og barnfæddur í Eyjum, sonur
Ása í Bæ, hældi bæði sjálfum sér og
öðrunt Eyjamönnum sem skara fram
úr öðrum á flestum sviðum. Eitthvað
sem Vestmannaeyingum leiðist ekki
að heyra. Þessu stjómaði Ámi Johnsen
eins og ekkert hefði í skorist.
Næst var á dagskránni barnaefni,
íþróttir, galdrakarl, og söngvakeppni.
Á kvöldvökunni á brekkusviði, sem
hófst klukkan 21.00, var þjóðhá-
tíðarlagið, Lífið er yndislegt, frumfiutt.
reyndar hefur það heyrst í útvarpi í
a.m.k. hálfan mánuð, Olafur Kjartan
Sigurðarson óperusöngvari fiutti
nokkur lög. Setti það leiðindasvip á
skemmtunina þegar flösku var hent í
hann. Hann lét það ekki á sig fá og
kom aftur fram og lauk við sitt
prógram.
Gott framlag Eyjamanna
Kvöldvökur voru öll kvöldin og
meðal atriða sem náðu eyrum fólksins
var söngur Eyjamannanna og feðg-
anna Guðmundar Þ.B. Olafssonar,
Kristleifs og Ólafs. Þóttu þeir standa
sig með ágætum, ekki síst í Liverpool-
laginu You never walk alone þar sent
m 1 i
Ker - jW
dl
JpPJiyj g>jt Wj
GESTIR á þjóðhátíð voru til mikillar fyrirmyndar.
brekkan söng með þeim einum rómi.
Aðrir sem kornu fram á kvöld-
vökum voru leikhópur í Versló með
atriði úr söngleiknum Wake me up,
spm var ágætlega flutt, gnnaramir Örn
Árnason og Karl Ágúst Ulfsson stóðu
fyrir sínu en Laddi stóð ekki undir
væntingum á brekkusviðinu þó krakk-
arnir kynnu vel að meta framlag hans
til bamadagskrárinnar.
Góð bamadagskrá
Fréttir fylgdust með bamadagskránni
á sunnudaginn sem var undir stjórn
hljómsveitarinnar Dans á rósum. Þeir
mættu íklæddir trúðsbúningum og
stjómuðu af röggsemi og náðu vel til
krakkanna. Var ánægjulegt að sjá
hljómsveitarmeðlimi leggja metnað í
starf sitt því það hefur ekki alltaf þótt
par fínt að þjóna blessuðunt börn-
unum sem sýndu þama að þau kunnu
að ntela framtakið.
Barnadagskráin var á Tjarnarsviði
en á rneðan voru hljómsveitir að þenja
strengi og raddbönd á Brekkusviði
fyrir unga fólkið sem er skynsamlegt
því börnin fengu fyrir vikið frið með
sína dagskrá.
Hljómsveitir þjóðhátíðar að þessu
sinni voru Land og synir, Sóldögg og
í tjöldunum er trallað og sungið.