Vesturland - 13.03.2014, Blaðsíða 1

Vesturland - 13.03.2014, Blaðsíða 1
Glæsilegur undirfatnaður frá Vanity Fair og Lauma. HAMRABORG 20A • KÓPAVOGI 544-4088 • YNJA.IS Útsalan er hafin Erum á Facebook Vinsælu læknahal ararnir frá komnir í hvítu & svörtu. B Í LDS H Ö FÐA 1 2 - 110 RE YK JAVÍK - SÍMI: 577 1515 - WWW.SKORRI.IS 13. mars 2014 4. tölublað 3. árgangur UMHVERFISVOTTUÐ PRENTUN Vinir Snæfellsjökuls: Staða og framtíð Þjóð­ garðsins rædd á Hellissandi Hollvinasamtök Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls í samstarfi við Þróunarfélag Snæfellinga og Umhverfisstofnun, boða til fundar um stöðu og framtíðarhorfur í starfsemi Þjóð- garðsins. Fundurinn fer fram í Hótel Hell- issandi á morgun, föstudaginn 14. mars og hefst kl.15:00. Aðal umræðuefni frummælenda verða Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull, umhverfis- mál, rannsóknir innan marka Þjóðgarðsins og á Snæfellsnesi, horfur í ferðaþjónustu árið 2014 og framlag Þjóðgarðsins í þágu landkynningar og ferðaþjónustu á Snæ- fellsnesi. Formaður stjórnar hollvinasam- takanna Vinir Snæfellsjökuls er Sturla Böðvarsson. Meðal þeirra sem taka til máls eru Kristín Linda Árnadóttir forstjóri Um- hverfisstofnunar; Guðbjörg Gunnarsdóttir þjóðgarðsvörður; Elías Bj. Gíslason settur ferðamálastjóri; Helga Árnadóttir fram- kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar; Róbert A. Stefánsson forstöðumaður Nátt- úrustofu Vesturlands; Magnús A. Sigurðs- son minjavörður; Lilja Björk Pálsdóttir fornleikafræðingur og Þór Magnússon hellaleiðsögumaður og rekstraraðili Vatns- hellis. Full ástæða er til að hvetja áhugafólk til að renna vestur á Hellissand og hlusta á umræður og fræðast enn frekar um Snæ- fellsjökul, og kannski í leiðinni svolítið um dulúð hans. snæfellsjökull, dulúðugasta fjall landsins.

x

Vesturland

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturland
https://timarit.is/publication/989

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.