Vesturland - 28.08.2014, Blaðsíða 14
14 28. ÁGÚST 2014
ÍA nálgast sæti
í efstu deild karla
Toppleikur var í 1. deild karla sl. laugardag er Leiknir tók á móti Skagamönnum á
Leiknisvellinum. Með sigri hefði
Leiknir tryggt sér sæti í efstu deild
karla, í fyrsta sinn í sögu félagsins með
sigri hefðu Skagamenn þokast nær
því að tryggja sér að nýju sæti í efstu
deild karla. ÍA vann leikinn 1:0 með
marki Garðars Gunnlaugssonar á 90.
mín. og þokuðust þar með nær settu
markmiði, en það er hins vegar ekki
tryggt. ÍA er með 36 stig, 4 stigum
á eftir Leikni, en næst á eftir þeim
kemur Víkingur Ólafsvík með 31 stig
og HK með 29 stig. Víkingur Ólafsvík
tekur á móti Leikni á Ólafsvíkurvelli
næsta föstudag, 29. ágúst en ÍA leikur
við KV á útivelli. 4 umferðir eru eftir.
ÍA í sókn í leiknum gegn Leikni.
Guðjón Þórðarson var mættur til leiks
á áhorfendapöllunum.
Víkingur Ólafsvík:
Lið félagsins í 1. deild
kvenna á siglingu
um miðja deild
Víkingur Ólafsvík í 1. deild kvenna gerði jafntefli við Grindavík í síðasta leik
liðsins, 1-1, og er með 18 stig og
siglir hægan byr um miðja deild
en Fjölnir og HK/Víkingur virðast
hafa tryggst sér sæti í 4ra liða úr-
slitakeppni, hafa 40 og 34 stig. Mark
Víkings Ólafsvík gerði Yekaterina
Mazareva Gohkman. Næsti leikur
Ólafsvíkurstúlkna er útileikur gegn
Haukum næsta laugardag.
Leikmaður Víkings Ólafsvík með boltann og leitar að samherja en Grinda-
víkurdaman sækir að.
Snæfell Stykkishólmi:
Endaði í 5. sæti af 8
liðum í 4. deildarriðli
Snæfell í Stykkishólmi leikur í 4. deild karla í sumar og er greini-lega að byggja upp lið til fram-
tíðar en nokkur lið hafa tekið þátt í
Íslandsmóti yngri flokka í sumar.
Snæfell lék síðasta leik sinn í 4. deild
í sumar sl. laugardag er þeir heimsóttu
Kóngana á Framvellinum í Úlfarsárdal.
Leiknum lauk með 5-2 sigri Kónganna
en mörk Snæfells gerðu þeir Mikael
Marínó Rivera og Stefán Þór Ingv-
arsson. Snæfell hlaut 8 stig í sumar,
vann tvo leiki, gerði tvö jafntefli en
tapaði 8 leikjum. Þeir enda í 5. sæti af
8 liðum sem léku í riðlinum. Vonandi
fáum við að sjá Snæfellinga eldhressa
á knattspyrnuvellinum næsta sumar.
Knattspyrna er oftast skemmtileg,
og hér virðast leikmenn Snæfells og
Kónganna vera að stiga dansspor
með boltann á milli sín.
Á Menningarnótt var margt um manninn, jafnvel friðsamir víkingar. En
þegar leið á kvöldið breyttist hátíðin úr menningu í bjórmenningu!