Vesturland - 11.09.2014, Blaðsíða 6
Ertu að taka til …
… í bílskúrnum
… á vinnustaðnum
Komdu spilliefnunum og raftækjunum
á söfnunarstöðina næst þér …
… við sjáum um framhaldið!
Gufunesi · 112 Reykjavík · Sími 559 2200 · efnamottakan.is
6 11. SEPTEMBER 2014
Eftirminnanleg Hallgríms
hátíð í Hvalfjarðarsveit
- 400 ár liðin frá fæðingu sálmaskáldsins Hallgríms Péturssonar
Hallgrímshátíð fór fram 10. agúst sl. en í ár eru liðin 400 ár frá fæðingu höfundar Passíu-
sálmanna, Hallgríms Péturssonar. Há-
tíðin tókst vel,var vel sótt en á annað
hundrað manna sótti bæði messuna og
hátíðardagskrána. Í hátíðarmessunni
í Hallgrímskirkju í Saurbæ messaði
sóknarpresturinn sr. Kristinn Jens Sig-
urþórsson en prófasturinn, sr. Þorbjörn
Hlynur Árnason, þjónaði fyrir altari.
Í prédikuninni vitnaði sr. Kristinn
Jens í dr. Jakob heitinn Jónsson, sem
var sóknarprestur í Hallgrímskirkju
í Reykjavík en hann komst svo að
orði þegar minnst var 350 ára afmælis
Hallgríms Péturssonar árið 1964: „Þó
ævi prestsins og sálmaskáldsins ást-
sæla hér á jörð hafi einungis verið 60
ár að þá mun henni ekki ljúka fyrr
en þjóðin verður ólæs á bundið mál.
Sr. Hallgrímur er maður vorrar eigin
tíðar, og verður maður framtíðarinnar
nema eitthvert stórslys hendi íslenzka
menningu“Dagskráin var í aðalatriðum
þannig að messað var kl. 13:30 og Kór
Saurbæjarprestakalls söng undir stjórn
Zsuzsönnu Budai. Að messu lokinni
var kirkjukaffi í boði sóknarnefndar
á Hótel Glym en hátíðardagskrá hófst
kl. 16:15 í kirkjunni. Þar flutti dr. Einar
Sigurbjörnsson erindi um sr. Hall-
grím í Saurbæ; Steindór Andersen,
kvæðamaður, fór með kveðskap eftir
Hallgrím og fjallaði um hann; Kór
Saurbæjarprestakalls söng; Alexandra
Chernyshova og Ásgeir Páll Ágústs-
son fluttu dúett og aríur úr óperu Al-
exöndru „Skáldið og biskupsdóttirin“
sem frumflutt var í vor. Undirleikari
var Zsuzsanna Budai.
Skáldið og biskupsdóttirin
„Skáldið og biskupsdóttirin“ fjallar
um vináttu sr. Hallgríms við Brynjólf
biskup í Skálholti, en þó einkum vin-
áttu hans við Ragnheiði dóttur hans,
sem hann færði að gjöf eitt fyrsta passa-
íusálmahandritið árið 1661 er Ragn-
heiður var einungis 19 ára að aldri. Í
verkinu kom fram liðlega 20 manna
kór undir stjórn Zsuzsönnu Budai,
10 manna hljómsveit, sem Magnús
Ragnarsson stjórnaði og 8 einsöngv-
arar.
„Skáldið og Biskupsdóttirin“ er
frumraun Alexöndru á sviði tónsmíða
og miðað við þeir raddir, sem heyrst
hafa um óperuna er ekki annað að
heyra en að afar vel hafi tekist til. Hér
var um merkilegan menningarviðburð
að ræða á Vesturlandi sem fleiri hefðu
mátt njóta.
Fyrr á árinu var m.a. búið að fara
í pílagrímagöngu frá Leirárkirkju að
Hallgrímskirkju í Saurbæ, og Passíu-
sálmarnir voru lesnir á föstudaginn
langa. Fjöldi manns sótti hátíðina.
Alexandra Chernyshova og Ásgeir Páll Ágústsson fluttu dúett og aríur úr
óperu Alexöndru ,,Skáldið og biskupsdóttirin.”
Kór Saurbæjarprestakalls.
Evrópusambandið veitti 337 millj
ónum til menntamála á Íslandi
Erasmus+ menntaáætlun Evrópusambandsins á Íslandi hefur nú úthlutað fjármagni
ársins 2014 til náms og þjálfunar, 337
milljónum króna, en styrkirnir munu
gefa 780 Íslendingum tækifæri til að
taka hluta af námi eða starfsþjálfun
erlendis á næstunni. Íslenskir skólar
og fyrirtæki hafa tekið virkan þátt í
menntaáætlunum ESB allt frá árinu
1994, en nú var úthlutað í fyrsta sinn
úr nýrri áætlun sem nefnist Erasmus+.
Styrkupphæðin að þessu sinni er €
2,2 milljónum evra eða um 337 millj-
ónir króna, sem var úthlutað til 46
skóla, fyrirtækja og stofnana fyrir um
780 einstaklinga. Að þessu sinni var
hæstum styrkjum úthlutað til Háskóla
Íslands, Listaháskólans, Háskólans í
Reykjavík og Tækniskólans, skóla at-
vinnulífsins fyrir verkefni sem gefur
nemendum og starfsfólki skólanna
tækifæri til að taka hluta af námi sínu
og endurmenntun eða starfsþjálfun í
Evrópu. Alls bárust 79 umsóknir þar
sem sótt var um rúmlega 3,4 millj-
ónir evra. Styrkirnir voru afhentir við
athöfn sem fram fór í Norræna húsinu.
Síðar í haust verða samningar um sam-
starfsverkefni undirritaðir og munu
þá 360 milljónir króna bætast við. Í
hópi þeirra stofnana og fyrirtækja sem
hljóta styrk til náms og þjálfunar á
fyrsta starfsári Erasmus+ á Íslandi má
finna ótrúlega breidd stofnanna um
allt land og er fjárveitingin mikilvæg
innspýting í íslenskt menntakerfi á
öllum skólastigum.
Stofnanir á Vesturlandi fóru ekki
varhluta af því að hljóta styrki, en
þeirra á meðal er Háskólinn á Bifröst,
Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri,
Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akra-
nesi, Grundaskóli á Akranesi, Sí-
menntunarmiðstöðin á Vesturlandi
og Brekkubæjarskóli á Akranesi.
Það var myndarlegur hópur sem hlaut ESB-styrki, staddur í blíðunni á tröppum
Norræna hússins í Reykjavík.
Símenntun Vesturlands í Borgar-
nesi hlaut styrk sem Inga Dóra
Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri
Símenntunarinnar tók við.
Menntastofnanir á Vesturlandi hlutu
styrki. Hér eru Magnús Benediktsson
skólastjóri Brekkubæjarskóla á Akra-
nesi, Helena Valtýsdóttir kennari
við Fjölbrautaskóla Vesturlands og
Hrönn Ríkharðsdóttir skólastjóri
Grundaskóla á Akranesi.