Vesturland - 11.09.2014, Side 14
14 11. SEPTEMBER 2014
hluti af Bygma
Allt frá grunni Að góðu heimili
síðAn 1956
Umsóknir berist fyrir 18. september n.k.
til Birnu Sæmundsdóttur, birnas@husa.is
Húsasmiðjan Holtagörðum, 104 Reykjavík
Öllum umsóknum verður svarað.
Leitum að sterkum leiðtoga í
krefjandi stjórnunarstörf
Ábyrgðarsvið
• Rekstur og stjórnun verslunar
• Að framfylgja stefnu fyrirtækisins
• Ráðgjöf, þjónusta og sala til viðskiptavina
• Tilboðsgerð
Hæfniskröfur
• Þjónustulund, áhugi og metnaður
• Reynsla af rekstri og stjórnun
• Reynsla af verslun og þjónustu æskileg
• Frumkvæði í starfi og skipulögð vinnubrögð
• Menntun sem nýtist í starfi
Í boði er
• Krefjandi stjórnunarstarf hjá góðu fyrirtæki
• Gott og öruggt vinnuumhverfi
• Góður starfsandi
• Rekstrarstjóri tilheyrir hópi lykilstjórnenda fyrirtækisins
Metnaður
Þjónustulund
Sérþekking
Áreiðanleiki
Liðsheild
Húsasmiðjan leggur metnað sinn í að
veita fyrsta flokks þjónustu og hafa gott
aðgengi að vörum sínum og starfsfólki.
Það sem einkennir starfsmenn
Húsasmiðjunnar eru eftirfarandi gildi:
LEITUM AÐ ÖFLUGUM
REKSTRARSTJÓRUM
Í BoRGARnES oG Á ÍSAFJÖRÐ
Auglýsingasíminn er 578 1190
ÍA í efstu deild karla
ÍA vann KV 2:0 í 1. deild karla á Þróttaravelli í síðustu viku og tryggði sér þar með sæti í efstu
deild karla leiktímabilið 2015. ÍA féll
á síðasta ári úr efstu deild karla og
viðdvölin var því eins stutt og nokkurs
er kostur, eða aðeins eitt ár. Á sama
tíma vann Leiknir í Breiðholti Þrótt
2:1 og tryggði sér sæti í efstu deild
karla, í fyrsta skipti í sögu þess félags.
ÍA er með 42 stig og Garðar Gunn-
laugsson er markahæsti leikmaður
deildarinnar eftir leikinn við KV með
18 mörk. ÍA er með tveimur stigum
minna en Leiknir, og á eftir að leika
við Hauka og KA, en Leiknir á eftir að
leika við HK og Tindastóll. Sigurinn
í deildinni gæti því fallið ÍA í skaut
ef Leiknir tapar stigum og ÍA vinnur
sína leiki.
Úr 1. deild falla líklega KV og
Tindastóll en í 2. deild eru í tveimur
efstu sætunum Fjarðabyggð og Grótta,
og fátt bendir til þess að önnur lið
nái þeim að stigum og þar með sæti
í 1. deild.
Hjörtur Hjartarson er öflugur í liði
ÍA þótt sé hartnær fertugur, en ÍA
er uppeldisfélag hans.
Sigurreifir Skagamenn að leikslokum.
Þessi öflugi hópur hefur fært Skagamönnum aftur sæti meðal þeirra bestu
í knattspyrnunni á Íslandi.
Listsýn
ingar í
Kirkju
hvoli á
Akranesi
Listasetrið Kirkjuhvoll á Akranesi vekur við fyrstu sýn athygli fyrir hversu fallegt húsið er. Bæjar-
stjórn Akraness hefur gegnum tíð-
ina notað húsið oft til að taka á móti
gestum sem og önnur félög á Akranesi
þegar mikið liggur við. Í húsinu eru
einnig listsýningar og um síðustu helgi
lauk þar sýningu Veru Líndal Guðna-
dóttur þar sem hún sýndi teikningar
og málverk.
Á Vökudögum á Akranesi í lok
októbermánaðar nk. opnar Elín Ólöf
Eiríksdóttir sýningu á verkum sínum.
Það verður eflaust engin svikinn af því
að bera þá sýningu augum. Kirkjuhvoll.
Listaverk eftir Elínu Ólöfu Eiríksdóttur.
Nemendur FVA
hlaupa í hverri viku
Nemendur í Fjölbrautarskóla Vesturlands gera margt annað en sitja yfir skræðum
eða læra handtökin í iðnnáminu. Þau
hlaupa m.a. í hverri viku undir stjórn
íþróttakennara, sem auðvitað er bæði
hollt og gott. Þessi hópur var staddur
á Vesturgötunni fyrir skömmu, tilbú-
inn að taka til fótanna undir vökulum
augum kennarans.