Vesturland - 20.11.2014, Blaðsíða 14
14 20. Nóvember 2014
Sviðsstjóri velferðar- og
mannréttindasviðs
Við leitum að metnaðarfullum leiðtoga til að
stýra nýju velferðar- og mannréttindasviði.
Undir sviðið heyrir félagsleg ráðgjöf og
árhagsaðstoð, húsnæðismál, barnavernd,
málefni aldraðra, málefni fatlaðra, atvinnumál,
jafnréttis- og mannréttindamál. Meðal brýnna
verkefna á næstu árum er að móta stefnu í
þjónustu við aldraða og fatlaða einstaklinga,
fylgja eftir framkvæmdaáætlun í mannréttinda-
málum og þróa samráð við fulltrúa helstu
hagsmunahópa. Ennfremur að móta verkferla
og undirbúa stefnu sviðsins í þjónustu- og
gæðamálum.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
• Fagleg forysta í málaflokkum sem heyra
undir sviðið
• Undirbúningur mála og eftirlit með að
ákvörðunum velferðar- og mannréttindaráðs
sé framfylgt
• Yfirstjórn stofnana sem heyra undir sviðið
• Yfirumsjón með gerð starfs- og fjárhags-
áætlunar sviðsins og eftirfylgni
• Mótun gæða- og þjónustustefnu sviðsins
Menntunar- og hæfnikröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi,
framhaldsnám á sviði stjórnunar æskilegt
• Reynsla af stefnumótun og breytingastjórnun
• Stjórnunarreynsla og reynsla af opinberri
stjórnsýslu
• Mikil samskipta- og samstarfshæfni
• Hæfni í framsetningu á efni í ræðu og riti
• Góð þekking og reynsla af fjárhagsáætlanagerð
Ráðið er í stöður sviðsstjóra hjá
Akraneskaupstað í 5 ár í senn með
möguleika á endurráðningu.
Nánari upplýsingar um starfið veitir
Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri í síma
4331000.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir
um að sækja um starfið á heimasíðu
Akraneskaupstaðar, www.akranes.is
Með umsókn þarf að fylgja ítarleg
starfsferilsskrá og kynningarbréf þar
sem umsækjandi gerir grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðning fyrir
hæfni í starfið.
Umsóknarfrestur er t.o.m.
14. desember næstkomandi.
Akraneskaupstaður
auglýsir eftir öugum leiðtoga
Lokahóf ÍA:
Garðar og Maren valin best
Á lokahófi ÍA eftir að Íslands-mótinu lauk voru valin þau bestu og efnilegustu í meist-
araflokkum karla og kvenna. Meist-
araflokkur karla vann sér sæti í efstu
deild karla á næsta keppnisári en meist-
araflokkur kvenna féll ír efstu deild
kvenna. Meðfylgjandi mynd er af þeim
bestu og efnilegustu í meistaraflokki
karla og kvenna. Gunnlaugur Jónsson
þjálfari meistaraflokks karla tók við
verðlaunum fyrir Garðar B. Gunn-
laugsson sem var valinn bestur karl-
anna, Maren Leósdóttir best kvenna og
Arnór Snær Guðmundsson og Bryndís
Rún Þórólfsdóttir efnilegust.
verðlaunahafar á lokahófinu. Gunnlaugur Jónsson tók við viðurkenningu
Garðars. F.v.; Gunnlaugur Jónsson, maren Leósdóttir, Arnór Snær Guðmunds-
son og bryndís rún Þórólfsdóttir.
ÍA/Þróttur bikarmeist-
ari í 2. flokki kvenna
Stelpurnar í 2. flokki kvenna í knattspyrnu hjá sameiginlegu liði ÍA og Þrótti urðu bikarmeistarar
í 2. flokki í haust með sigri á Breiðabliki
en þá skömmu áður höfðu Kópavogs-
stelpurnar orðið Íslandsmeistarar. Sig-
urinn var kannski enn sætari af þeim
ástæðum.
Leið ÍA/Þróttar í úrslitaleikinn var
þannig að fyrst unnu þær Tindastól
3: 2, þá Vestmannaeyjapæjur 4: 2 og
Stjörnuna 3: 1. Í bikarúrslitaleiknum
gegn Breiðabliki var staðan í hálfleik
0: 0 en ÍA/Þróttur komst í 1: 0 í síðari
hálfeik með marki Guðrúnar Karítas
Sigurðardóttur en Breiðablik jafn-
aði með marki Andreu Rán Snæfeld
Hauksdóttur en Þróttur/ÍA skoraði
svo sigurmarkið þegar langt var liðið
á seinni hálfleik. Það gerði Ásdís Ylfa
Heimisdóttir. Til hamingju, stelpur!
ekkert gefið eftir í leiknum, enda bikar í húfi!
Sigurgleðin var fölskvalaus þegar bikarnum var lyft á loft.
ÍM25 í sundi:
Keppendur Sundfélags
ÍA ánægðir með þátttökuna
Sundfélag ÍA tók þátt í Íslands-mótinu í 25 metra laug sem fram fór í Ásvallalaug í Hafnarfirði
um síðustu helgi. Nokkrir keppenda
ÍA komust í úrslitasund í nokkrum
greinum, en þangað komust 8 bestu
í hverri grein eftir undanrásir fyrr
um daginn. Aðspurður sögðust
keppendur ÍA vera býsna ánægðir
með helgina, synt hefði verið í bestu
laug landsins að þeirra mati og þó
ekki hefðu verið tekið mörg skref að
verðlaunaapalli að þessu sinni væri
gaman að taka þátt í mótinu og hitta
aðra keppendur af höfuðborgarsvæð-
inu, Keflavík og Akureyri. Keppendur
ÍA voru þeir einu sem komu af Vest-
urlandi.
Að kvöldi síðasta keppnisdags,
sunnudeginum, var uppskeruhátíð
Sundsambandsins sem fram fór á
neðri hæð Ásvallalaugar þar borðaður
verður góður matur frá Grillvagn-
inum, viðurkenningar veittar fyrir
þátttöku í verkefnum SSÍ síðastliðið
árið og einnig voru veitt verðlaun fyrir
bestu afrek mótsins.
birna Sjöfn Pétursdóttir.
Þeir Atli viðar Ingimundarson og Patrekur björgvinsson kepptu í 100 metra
baksundi.