Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 14.03.2002, Blaðsíða 10

Fréttir - Eyjafréttir - 14.03.2002, Blaðsíða 10
10 Fréttir Fimmtudagur 14. mars 2002 Arnór Hermannsson bakari og Helga Jónsdóttir: Af hippum, tónlist, trúarlífi og bakstri ARNÓR og Helga: Við sjáum mest eftir búðinni. Hún naut sívaxandi vinsælda og stóð undir sér. Það vakti athygli þegar Arnór bakari ehf. sagði upp öllu starfsfólki og tilkynnti að rekstrinum væri hætt. Það var von að fólki brygði þegar eitt af þremur bakaríum bæjarins hætti og 13 manns stóðu allt í einu uppi atvinnulausir. Það munar um minna í ekki stærra bæjarfélagi. Eigendurnir eru hjónin Helga Jónsdóttir og Arnór Hermannsson bakarameistari. Fyrirtækið ó ekki langa sögu að baki, það var stofnað 1996 og hafði verið að vaxa ór fró óri. En svo verður það fórn- arlamb breyttra að- stæðna í þjóðfélaginu, grundvöllur undir rekstr- inum er ekki lengur til staðar og þó er ekki um annað að ræða en hætta. Það er víðar komið við í þessu viðtali við þau sæmdarhjón því þau hafa lótið til sín taka ó ýmsum sviðum. Alla tíð hefur tónlist skipt þau miklu móli og og hafa þau starfað ýmist saman eða í sitt hvoru lagi að þessu hugðarefni sínu. Það nýjsta er hippahótíð í Höllinni 4. maí sem þau eru að undirbúa með félögum sínum í Tón- smíðafélaginu. Trúin hefur líka haft sterk óhrif ó líf þeirra og hafa þau komið víða við í þeirri leit sinni. Sú ganga hófst í Þjóðkirkjunni og endar þar líka. Þó kemur fram að Veislu- þjónusta Arnórs starfar ófram en þar verður hann undir verndarvæng Hallarbænda sem ætla að bæta þessu við þó þjónustu sem þeir hafa boðið upp ó. Ólust upp við sömu götu Bæði eru Helga og Amór Vestmanna- eyingar og alin upp við sömu götuna, Vestmannabrautina, en þó ótrúlegt megi virðast vissu þau ekki hvort af öðm fyrr en leiðir lágu saman í undir- búningi á fyrsta des í Gagnfræða- skólanum en svo nefndust árshátíð- imar þar. „Foreldrar mínir eru Jón Kjartans- son, sem lengi var formaður Verka- lýðsfélags Vestmannaeyja og Sigríður Angantýsdóttir sem dó langt fyrir aldur fram, aðeins 51 árs,“ segir Helga en þau vom sex systkinin og ólust upp á Vestmannabraut 69 sem í dag er heimili Helgu og Amórs. „Mamma dó 18. desember 1983 á sjúkrahúsi í London þar sem hún átti að ganga undir erfiða hjartaaðgerð. Ég spyr mig oft hvort hún væri lifandi í dag ef Irski lýðveldisherinn hefði ekki sprengt í Oxfordstræti daginn áður. Ahrifin vom þau að öllum aðgerðum á sjúkrahúsum í Mið-London var frest- að um einn sólarhring. Mamma sagði áður en hún fór; -Ef ég kem ekki til baka ætla ég að biðja ykkur um að taka hana Jóhönnu Ýr að ykkur. Þama átti hún við yngstu systur mína sem þá var níu ára. Bættist hún í bamahópinn. Böm okkar em Gyða hjúkmnar- fræðingur, Davíð bakarasveinn, Aron sjómaður og Orri og Örvar sem enn em í foreldrahúsum,“ segir Helga. Amór er sonur Hermanns Magn- ússonar, sem var bróðir Magnúsar H. símstöðvarstjóra, bæjarstjóra, þing- manns og ráðherra. Móðir hans er Gyða Amórsdóttir. Þeir vom fimm bræðumir og em Helgi og Hermann Ingi þekktastir, m.a. vom þeir í hljóm- sveitinni Logum sem gerði það gott á ámnum í kringum 1970. Hermann, faðir Amórs er látinn. Tónlistin hefur skipað stóran sess í lífi Amórs og Helgu sem byrjuðu ung að vera saman. „Það er ótrúlegt en satt að þó að við séum bæði alin upp við Vestmannabrautina, hann á 22 og ég á 69, gengjum saman í Bamaskólann og væmm á sama ganginum þegar kom í Gagnfræðaskólann, höfðum við enga hugmynd hvort um annað. Það var ekíci fyrr en Bjami Ólafsson á Fífil- götunni spurði mig hvort ég vildi ekki taka þátt í að skreyta skólann fyrir fyrsta des. Ég var þá í myndlist og spyr hverjir fleiri verði í hópnum. Hann segir þá að Amór, bróðir Helga og Inga í Logum verði þar. -Eiga þeir bróður? segi ég þá. Þegar ég sá hann í fyrsta skipti var það ást við fyrstu sýn,“ segir Helga brosandi. Áttu líka samleið í tónlistinni „Við teiknuðum skrípamyndir af kennurum og nemendum og skreytt- um skólann með þeim. Ég var 16 ára og hún 15 og formlega byrjuðum við að vera saman 1. desember 1970,“ segir Amór. Þau komust að því að hugir þeirra lágu saman á fleiri sviðum en mynd- listinni því tónlistarsmekkurinn var sá sami. „Það var alveg undar'-gt hvað þetta lá saman því við vomm að hlusta á nákvæmlega sömu tónlistina, þar sem Cat Stevens, Crosby, Stills, Nash og Young, Donovan og Bob Dylan vom ofarlega á listanum," segir Helga. A þessum ámm byrjar Helga að semja sín fyrstu lög, undir áhrifum þessarar tónlistarstefnu, ástar, ífiðar og blóma. Fmmflutti hún nokkur laga sinna á miklu þjóðlagakvöldi sem haldið var í Bæjarleikhúsinu. Var hún þá í stelputríói með Stínu Run og Boggu, dóttur Villa og Mæju í Straum, en Amór spilaði með bræðr- um sínum og komu þeir fram sem Hermannson bræðumir. Það var mikil vakning í þjóðlögum á þessum tíma og vom haldin nokkur svona kvöld þar sem ótrúlega margt tónlistarfólk kom fram, mjög svo frambærilegt og fmmlegt, má þar nefna þjóðlagasveit- ina Brynjólfsbúð með Áma Sig- fússyni, Jóhannesi Johnsen, Kristni R Ólafssyni og fleiri stórhippum. Ekki má gleyma lokaatriði sýningarinnar þar sem Óli Back og Bjössi míla settu saman stórsveit með öllu sem gat spilað eða sungið. Ætlaði allt um koll að keyra þegar Óli söng danskan slagara, var mikið hlegið því dreng- urinn hafði aldrei verið mjög sleipur í því máli. Hveiju missti heimurinn af? Helga hafði metnað til að leggja fyrir sig söng og tónlist og er aldrei að vita hvað gerst hefði. hefðu örlögin ekki gripið inn í aðfaranótt 23. janúar 1973. „Klukkan 11.15 þann 23. janúar 1973 átti ég að mæta í minn fyrsta söngtíma hjá frú Nönnu Egilsson Bjömsson en á þessum tíma var ég í Samkómum. Hún kenndi söng héma á þessum ámm og hafði einhverja trú á mér. En þá kom eldgosið og við vitum ekki hvers heimurinn fór á mis við,“ segir Helga sem nú er í söngnámi og lýkur fjórða stigi í vor. Hún byijaði hjá Ingveldi Ýr, sér til gamans og ánægju en er nú hjá Önnu Cwalinsku. Segir hún þær ólíkar en báðar góðar. Þessa örlagaríku nótt komst líka upp um strákinn Tuma því í ljós kom að Amór var enn í sæng heima- sætunnar þegar bytjaði að gjósa. „Þama vomm við hringtrúlofuð en mamma og pabbi vom greinilega ekkert ánægð með þetta. Vandamál næturinnar var þó stærra og meira en þetta,“ segir Helga. Tónlist og myndlist Þau bjuggu í Reykjavík þangað til í febrúar 1975 og em þau sammála um að það hafi verið erfiður tími þar sem þau fluttu úr einu húsnæðinu í annað á þessu tímabili. „Við vissum ekkert hvað framtíðin bar í skauti sér og öll aðstoð miðaðist við eldra fólkið. Þá var engin áfallahjálp til og við unga fólkið gleymdist svolítið í öllu umrótinu,“ segir Helga. Þó gafst tími til tónlistariðkunar en þegar þama er komið segir Amór að myndlistin hafi alla tíð skipað stóran sess í lífi hans. „Já, hún hefur alla tíð skipt mig miklu. Þegar ég ákvað að fara að læra bakstur átti ég orðið í eina sýningu. Stóð valið á rnilli þess hvora leiðina ég ætti að fara. Ég hef alltaf haft trönumar uppi og mig langar alltaf til að gefa myndlistinni meiri

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.