Frúin - 01.06.1963, Page 2
Kynþokki ei* ekki einhlítui*
Þótt svertingi sé svartur, þurfa
hugsanir hans ekki að vera það. Þær
geta verið hvítari en hugsanir hvíts
manns. Og Kinverji getur vel litið
lífið réttum augum, þótt hann sé með
skásett augu. Það sést greinilega á
hinni ágætu bók Lin Yutangs, „Jarð-
nesk sæla“, sem orðið hefur mjög vin-
sæl víða um lönd.
Hugsunarháttur hvítra manna og
Kínverja er líkur að því leyti, að þeg-
ar þeir ræðu um fjölskylduna, tala
þeir um „fjölskyldumeiðinn“. Hver
einstaklingur er eins og grein á stór-
um meiði, og hver einstaklingur hef-
ur sinu hlutverki að gegna, gerir ætt-
inni, meiðnum, gagn eða smán. Og
áhrif konunnar standa á gömlum
merg; þau eru frá þeim tíma, þegar
hún var „þjónandi engill“ á heimil-
inu. Lin Yutang segist hafa séð marga
slíka engla, en aðeins á heimilinu,
þar sem konan ríkir og hefur helg-
að sig ástinni á fjölskyldu sinni.
Það er fögur mynd, sem þannig
er brugðið upp, en því miður ligg-
ur í augum uppi, að slíkir „þjónustu-
englar“ eru ekki á hverju heimili.
Þá á makinn verulegan hluta sakar-
innar, en samt er leitarljósinu fyrst
og fremst beint að konunni.
En Lin Yutang sér bæði kost og
löst á konunni. Hann dáir það þrek,
sem hún auðsýnir við að gera mann-
inum sem mest til hæfis, — hún
megrar sig, lætur nudda sig, rýður
sig allskonar smyrslum, og þar fram
eftir götunum. Og karlmanninum
finnst þetta harla gott, því að það
l'jörgar gráan dag. En Lin Yutang
finnst ekki rétt að farið, því að allt
miðar þetta að því að auka kynþokka
konunnar, sem nefntst á erlendu máli
„sex appeal“. Ekkert atriði líkama
konunnar má vera með eðlilegum
hætti. Hann hefur aldrei vitað um
aðra eins gernýtingu kvenlíkamans.
Austurlandabúi skilur þetta ekki.
Honum finnst of mikil áherzla lögð
á „kynið“, of lítið hugsað um „kon-
una“, og þessi kynþokkadýrkun hafi
sett mót sitt á ástir og hjúskap vorra
tíma. Honum finnst, að sumir telji,
að kynþokki sé eina ,,tækið“, sem
konan hefur til að krækja sér í mann.
Ætli það sé ekki eitthvað til í þessu?
Sjáið bara allar auglýsingarnar um
það, sem konan þarf að nota vegna
kynþokkans — eða nektarsýningar,
sem konur sækja, þótt erfitt sé að
tengja þær virðingu fyrir konunni. Og
fleira mætti telja.
Lin Yutang lítur á konuna sem
verndarengil heimilisins, og hygginn
maður á að velja sér konu í samræmi
við það hlutverk. Valið getur ráðið,
hvort heimilislífið verður blessun eða
böl.
Skartgripir
pi;
■
Steinhringir, hálsmen,
armbönd úr gullí og sílfri,
í góðu úrvalí.
Guðlaugur Magnússon
skartgripaverzlun
Laugavegi 22A
Hagkaup
Flestar konur þekkja nú af
eigin reynd að lang beztu
kaupin eru gerð í Hagkaup
og mörgum er óskiljanlegur
þessi mikli verðmismunur. A
hverjum degi eru teknar
fram nýjar vörur og verðin
— auglýsa sig sjálf-
Við gefum einmg út pöntun-
arlista til mikils hagræðis
fyrir konur utan Reykjavík-
ur. Þar sjá þær myndir af
vörunum, fá nákvæma lýs-
ingu og verð. Síðan geta þær
pantað og mega skila vör-
unum og fá þær endurgreidd-
ar ef ekki líkar. — Gerist
ásknfendur, sendið okkur
nafn, heimilisfang og áskrift-
argjaldið sem er aðeins kr.
10.00 á ári.
Húsmæður,
verzlið aðeins þar
sem hagkvæmast
er að verzla.
Póstverzlunm
Miklatorgi — Reykjavík.