Frúin - 01.06.1963, Qupperneq 57
GÓÐIR VINIR
Við sjáum hér dálítið óvenjulegar myndir. Það
er ekki venjulegt að kettir séu vinir smáfuglanna.
Þessi páfagaukur hefur sannað að engin regla er
án undantekningar og að í náttúrunnar ríki gerast
hinir ótrúlegustu hlutir.
BLÁIR safírar af bAðum
KYNJUM.
í ýmsum erlendum tungum eru
safírsteinar ýmist karlkyns eða
kvenkyns. Það eru leifar frá fornum
tímum, þegar dökkbláir safírar töld-
ust karlkyns en ljósbláir kvenkyns.
Sagnir herma hins vegar ekki, hvaða
kynferði hafi verið á grænum, fjólu-
bláum, gulum og hvítum safírum, en
þó má geta þess um þá tvo síðast
töldu, að þeir eru mjög sjaldgæfir,
enda sjást þeir naumast öðruvísi en
tilbúnir af manna höndum.
Safírinn hefur mikið verið notað-
ur sem verndargripur, af því að
hann getur að sögn varðveitt gleði
og æsku líkamans, varið hann fyrir
sjúkdómum, svikum og illu umtali,
jafnframt því sem hann hefur aukið
vizku eigendans, göfgi og hreinleika.
Það var einkum síðast taldi eiginleik-
inn, sem gerði að verkum, að safírar
voru mjög eftirsóttir í biskupshringi.
Einhver fegursti litlausi safír,
sem menn þekkja, er í Hope-safninu
í London, en í kórónu Danakonungs
eru einnig tveir stórir og fallegir,
bláir safírar. Sá safír, sem á sér-
kennilegasta sögu að baki, er hins
vegar geymdur í South KensinSton-
safninu í London. Hann var á 18, öld
eign pólsks greifa, de Walicki að
nafni, og var notaður, þegar menn
vildu ganga úr skugga um tryggð
kvenna eða ótryggð. Steinninn hefur
nefnilega þann sjaldgæfa eiginleika,
að djúpblár litur hans, sem greinir
sig frá öðrum litum fagurra safíra í
dagsbirtu, breytist í gerviljósi, svo
að hann verður amethyst-fjólublár.
Eigandi steinsins, sem vissi mæta-
vel um þenna eiginleika hans, kunni
til hlítar að nota hann við „dyggða-
próf“. Vildi hann færa sönnur á, að
ástmey hans væri honum trú, leyfði
hann henni að bera safírinn nokkr-
ar stundir við dagsbirtu, en óskaði
hann hins vegar eftir sönnun fyrir
ótryggð hennar, var hún látin bera
steininn, þegar degi tók að halla og
kvöldið gekk í garð, en á þeim tíma
varð litarbreytingin. Maðurinn sá
var þess vegna alltaf öruggur um, að
prófið mundi fara eins og hann ósk-
aði.
Annars er alltaf hægt að finna
safíra, sem fá á sig fjólubláan blæ í
rafmagnsljósi. Það á einkum við um
safíra frá Ceylon, sem sýna þessa
tilhneigingu, en þeir eru ekki síður
fagrir fyrir það.
FRÚIN
57