Frúin - 01.06.1963, Qupperneq 61
krukku og sjóðandi sykurleginum
hellt yfir. Ef vill, til öryggis, þá hell-
ið betamon upplausn í. Bindið yfir.
Eiga að geymast vel.
Ofnsteiktar kartöflur.
12 stórar ofnsteiktar kartöflur.
Þvegnar vel og burstaðar. Bakaðar í
heitum ofni. Þá eru þær skornar eft-
ir endilöngu eða þversum. Þá er
maukið losað þannig, að hýðið sjálft
sé heilt. — í maukið sjálft er brætt
60 gr. af smjöri, 100 gr. af rifnum
osti, eggi, osti, salti og múskati ef
vill og ef það er of þykkt þá mjólk
eða rjóma. Hrært vel saman og fyllt
í hýðið aftur. Setjið smjörlíki á og
bakið aftur í ofni þar til það er orð-
ið ljósbrúnt. Ágætur sérréttur.
Grænmetisfat.
Blómkál, hvítkál, gulrætur, as-
parges, baunir, tómatar, blaðsalat,
söxuð pétursselja, agúrkusneiðar.
Blómkálið soðið í léttsöltu vatni,
ekki of lengi, síðan sneitt, einnig gul-
ræturnar. Hvítkálshöfuð skorið í 4—
8 hluta, eftir stærð. Baunir og as-
parges hitað.
Fallegt er að nota kringlótt, stórt
fat, með hvítum pentudúk. Raðið
grænmetinu smekklega á fatið og
skreytið með tómötunum, salati og
agúrkum. Ágætt er að láta nokkra
smábita af smjöri hér og þar og strá
síðan pétursseljunni yfir.
Grænmeti með lirís-
grjónum og tómatsósu.
Púrrur, rósenkál, gulrætur, hvít-
kál, baunir. Soðið létt.
Púrrurnar eru skornar í ca. 10 cm
hluta. Sé maður með stórar gulrætur
er skemmtilegt að útbúa úr þeim gul-
rótarskálar. Gulræturnar eru þá
skornar í ca 5 cm hluta, soðnar að-
eins meirar. Bitarnir holaðir innan
og riflaðir að utan. Fylltir með baun-
um t. d. Stórt fat með pentudúk.
Púrrurnar reistar upp á miðju fat-
inu og studdar með káli og öðru græn-
meti raðað með tómötum og péturs-
selju. Látið nokkra smjörbita á.
Ljós og mild tómatsósa borin með.
Blómkál með eggjum
og tómötum.
Blómkálið soðið heilt og rétt meirt.
Eggin harðsoðin og skorin í 4 báta.
Tómatarnir einnig skornir í báta. Á
fatið eru lögð salatblöð í hring, egg-
in og tómatarnir ofan á og blómkálið
í miðjuna. Smjörbitar yfir blómkálið
og saxað persille yfir.
Hvítkál, hrátt með rjómasósu.
V2 kg hvítkál, 1 dl rjómi, ca 70 g
sykur, 2 msk sítrónusafi, 14 tsk salt,
örl. pipar.
Rjóminn þeyttur, kálið skorið mjög
smátt og blandað saman í skál. Bor-
ið með fisk- eða kjötréttum.
Grænmetisgratín.
V4 kg blómkál, V\ kg gulrætur,
Vt kg rófur, 40 g smjörlíki, 40 g
hveiti, 2 dl grænmetissoð, 2 dl mjólk,
2 egg, salt, st. múskat, brauðmylsna.
Sósan er bökuð upp, aðeins kæld.
Eggjarauðurnar hrærðar vel ásamt
kryddinu. Grænmetinu blandað sam-
an við og að lokum stífþeyttum eggja-
hvítunum. Sett í gratinskál. Brauð-
mylsnu stráð yfir. Bakað í ofni ca
V2 klst. Borið strax á borð með
smjöri.
Kalt grænmetisfat.
Hvítkál og rauðkál (bezt úr kæli)
er skorið mjög smátt. Gulrætur rifn-
ar, blómkál í litlum búkettum eða
skorið. Sveskjur skornar í lengjur. —
Öllu raðað þversum á fat eftir litum
og sítrónusafa hellt yfir. Borið fram
með kjötréttum.
Fiskur og grænmeti í formi.
900 g lúða, (IV2 kg ef annar fisk-
ur er notaður), salt, V2 kg gulrætur,
250 g blómkál, 60 m smjörlíki, 60 g
hveiti, lítill laukur, V2 1 fisk- og
grænmetissoð, 1 dl í'jómi, st. pipar,
1 msk sítrónusafi.
Fiskurinn er hreinsaður og skorinn
í sneiðar, salti stráð yfir. Gulræturn-
ar látnar soðna og skornar í ca V2
cm þykkar sneiðar. Þetta hvoru-
tveggja brúnað létt á pönnu. Blóm-
kálið soðið aðeins meirt. Sósan á að
vera létt brúnuð, laukurinn settur
í og þynnt út með soði og rjóma.
Kryddað eftir smekk. Síðan er fisk-
inum og grænmetinu raðað í form og
sósunni hellt yfir. Brauðmylsnu stráð
á. Bakað í ofni í co V2 klst.
Kálfanýru með makkarónum.
200 gr. makkarónur, 2 kálfsnýru,
2 dl. matarolía, 2 hakkaðir laukar 1
hakkaður hvítlaukur, 2 matskeiðar
söxuð steinselja, 200 gr. reykt svína-
fleks, 2 tómatar, seljusólarsalt, pip-
ar og paprika.
Sjóðið makkarónurnar í 12—14
mínútui' í söltuðu vatni. Sigtið þær
og veltið upp úr smjöri í potti. Nýrun
eru hreinsuð, himnur teknar af og
þau skorin í smáteninga sem brún-
aðir eru í olíunni. Takið kjötið af
og brúnið laukinn og hvítlaukinn í
olíunni, síðustu tvær mínúturnar er
steinseljan látin brúnast með. Kjötið
látið í pottinn aftur. Reykta fleskið
er steikt og síðan tómatsneiðarnar í
fleskfeitinni. Leggið nýrnabitana á
botninn áfati og makkarónurnar í
eitt lag yfir. Skreytið með tómat-
sneiðunum og reykta fleskinu. Berið
FRÚIN
61