Stígandi - 01.01.1944, Síða 27

Stígandi - 01.01.1944, Síða 27
STÍGANDI HÁSKÓLANÁM í ENGLANDI 25 velja þeir öll verkefni og prófa stúdentana. Prófdómendur við þetta próf voru prófessor Lascelles Abercrombie frá Lundúnahá- skóla, frægur ritskýrandi og skáld, prófessor Tolkien frá Oxford og Mr. Wrenn, dósent frá Oxford. Þá kom munnlega prófið. Voru stúdentar, einn og einn, látnir mæta fyrir prófdómendum og háskólakennurum, er sátu í fullum skrúða við langt borð, en hinum megin við borðið voru jafnmargir stólar og prófdómarar og kennarar voru margir. Settist stúdentinn á þann stól, er næstur stóð dyrunum, og hófst þá yfirheyrslan. Er sá fyrsti hafði lok- ið að kryfja hann sagna, færði hann sig innar. — Stóð yfir- heyrslan mismunandi lengi, en greinarhöfundur var uppi í 1V2 klukkutíma. Spurðu prófessorar og prófdómarar á víxl. Síðastur prófaði prófessor Abercrombie og var hann liinn ljúfmannlegasti. Hann hafði áð.ur kennt við Leeds og var alls staðar að góðu kunnur. Eftir nokkra daga voru svo úrslitin birt og þá lesin upp samtímis því, sem þau voru birt á prenti í hátíðasal háskólanS. Um kvöldið var mikið um dýrðir hjá stúdentum í tilefni dags- ins, en allt fór fram með spekt, og velsæmis var gætt í hvívetna, því að menn kunnu vel að virða sóma háskóla síns. Honours stúdentum var skipt í flokka eftir úrslitum, og þeini gefnar þessar einkunnir: I. einkunn, II. einkunn betri (a top second), II. einkunn lakari og III. einkunn, og var I. einkunn mjög sjaldgæf og fengu liana ekki nerna afburða námsmenn. II. einkunn betri þótti góð einkunn eins og sjá má af því, að þeim, er kennslu stunda, er veitt laun eftir svokölluðum „Burnham Scale“, og fá þeir þar hæst laun, er I. einkunn og II. einkunn betri hafa, og jafnhá, en svo fara launin lækkandi úr því. Þegar rnenn falla á fullnaðarprófi í Honours School, kemur fyrir, að mönnum er veitt Pass Degree senr sárabót. Sá er fallinn á þessu prófi, er ekki fær nægan stigafjölda í einhverri einni grein, og þeir, sem einu sinni hafa fallið í slíku prófi, fá ekki að taka Honours próf aftur. Eru þau ekki fyrir taugaóstyrkt fólk, eins og oft sýndi sig. Erfitt er fyrir útlendingana að ná nægilegum hraða til þess að geta leyst úr skriflegum verkefnunr á viðunandi hátt, enda fátt af þeim. Margir Indverjar voru þarna sanrt, en þeir höfðu vanizt enskunni frá blautu barnsbeini. Þeir lásu einkum lragfræði og uppeldisfræði. Nokkrir Arabar eða Egyptar tóku próf í ýmsunr fræðigreinum og voru taldir góðir námsmenn. Voru Egyptar og Indverjar þeir einu, sem voru nógu mannmargir til að stofna
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Stígandi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.