Stígandi - 01.01.1944, Side 31

Stígandi - 01.01.1944, Side 31
STÍGANDI HÁSKÓLANÁM í ENGLANDI 29 En kaffihús eru góð í Leeds, t. d. Field’s Café, þar sem fæst betra kaffi en nokkurs staðar hér á landi, en dýrt var það, 6 pence bollinn á venjulegum tímum. Þangað vöndu íslendingar komur sínar og kölluðu staðinn Blómsturvelli. Á vorin söfnuðu stúdentar fé til sjúkrahússins, sem stóð í sam- bandi við læknadeild háskólans. Var dagurinn kallaður „Rag Day“, og mátti lieita, að bærinn væri þá í hers höndum, því að stúdentarnir settu allt á annan endann. Klæddust Jreir Jrá annar- legum búningum, sem sjóræningjar eða aðrir ránsmenn, stöðv- uðu bifreiðar, fóru upp í sporvagna og heimtuðu hvarvetna lausn- argjald af vegfarendum. Var ekki heiglum hent að verða á vegi þeirra, enda slapp enginn án þess að veita þeim nokkra úrlausn. Voru þeir illa séðir af lögreglunni vegna truflana Jreirra, er þeir ollu á umferð allri, en veitingamenn veittu Jreim ókeypis bjór til hressingar og uppörvunar. Vel varð stúdentum ágengt í fjársöfn- uninni og enga ónáðuðu Jreir tvisvar, því að merki voru afhent þeim, sem borgað höfðu. Blað gáfu Jreir út, er Tyke hét, og sjón- leik sýndu þeir við mikla aðsókn. Tókst Jreim með þessu að afla sjúkrahúsinu talsverðra tekna. Býst ég við, að Leedsbúar kærðu sig ekki um að rnissa af þessum degi, því að alltaf var mikil til- breyting í búningum stúdentanna, og ærsl Jreirra voru græsku- laus nreð öllu. Nú hygg ég, að ég hafi skýrt frá því helzta, er menn kynnu að vilja heyra um háskólavist í Leeds. Dálítið hefi ég minnzt á kostn- aðarhliðina, en ef til vill ekki nægilega. Peningar eru fljótir að fara í Englandi, og iivergi mun vera óþægilegra að vera illa fjáður. Námsstyrkur sá, er íslenzka ríkið veitti þá, 1200 krónur, var tæpur Jrriðji hluti kostnaðar við námsdvöl í Englandi, og ekki rauk Alþingi upp til handa og fóta Jrá til að hækka hann. Kenn- aralaun eru ekki heldur það há, að auðvelt sé að borga miklar námsskuldir af þeim. En með núverandi styrk er vel gerlegt að stunda nám í Englandi, og væri vel, ef menn gerðu Jrað. Gaman þætti mér seinna að minnast á viðkynningu Jrá, er ég hafði af Englendingum, sem var eins góð og frekast verður á kosið, og J^ó sérstaklega á prófessor Gordon í Leeds, sem nú er látinn. Get ég sagt um hann, að hans minnist ég ávallt, er ég heyri góðs manns getið.

x

Stígandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.