Stígandi - 01.01.1944, Side 46

Stígandi - 01.01.1944, Side 46
44 INDRIÐI ÞÓRKELSSON Á FJALLI STÍGANDI Hamast, rammi kyngikraftur, kveddu dauðan geisla og blæ, gralinn skal vor Eden aftur undan þínum gaddi’ og snæ! Ég þykist þess fullviss, að ég hafi lært þessar vísur rétt eins og þær voru upphaflega. En þær eru nokkuð á annan veg í Bauga- brotum, mér finnst þær svalari þar, guðmóðurinn minni, en meira af þeirri rökvísi, er kemur með árum og reynslu. En með því að bera þær saman í upphaflegri mynd og þeirri, er síðar varð, verður það þó ef til vill ljósara en af öllu öðru, að sú lind, er spratt fram í brjósti skáldsins, er það var ungt, hélzt landahrein fram á síðustu stund, þó að öðru hvoru syrfi að löndum og sýldi að steinum. Enn var trúin á betri tírna, trúin á lífið sem eilífa sókn og ástin á landinu, þó að það væri svellagrund, og til þess fólks, er þar lifði og stríddi, fersk og tær. IJað var sú trú og sú ást, er í heiðríkju hins síðasta dags lagði honum þessa kveðju á tungu: Ég bið að heilsa, heilsa öllum. Næst man ég eftir því, er ég fór með föður mínum og mörgu fólki að vorlagi á skemmtifund á Ytrafjalli. Ég minnist enn fram- anvatnanna, er ólguðu allt kringum túnið. Ég man eftir fjöri og kæti, er fólkið dró höpp og óhöpp á hlutaveltu, er haldin var í sambandi við fundinn. Ég man enn hljóminn í rödd Jóns blinda á Mýlaugsstöðum, mælskuna, orðavalið og hvernig öldungshöf- uð lians tinaði. Ég man eftir því, er Guðmundur á Sandi steig upp á vegg norður af bænum og talaði rniklum rómi, ég man, að faðir minn las kvæði, er hann hafði lagt sig fram að laða við rödd vorsins, er vakið hafði framanvötnin. En lang minnisstæðast alls er mér, þegar Indriði á Fjalli las kvæði, er mér fannst þá vera mesta kvæði og snjallasta, er ég hafði heyrt. En svo hratt leið kvæðið hjá, að ég gat ekkert fest í minni nema þetta: Með raunir og baráttu, rústir og flög — þú sveit ert mér kær eins og barninu jól. Hvernig sem ég reyndi, gat ég ekki rifjað upp meira. Það var fyrst, er Baugabrot komu mér í hendur, að ég fann aftur þetta kvæði og þekkti og lærði þá litlu meira: Með raunir og baráttu, rústir og flög, með rangsnúin afguðs og menningar lög, með handvísar nætur og svipula sól, þú, sveit, ert mér kær eins og barninu jól.

x

Stígandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.