Stígandi - 01.01.1944, Blaðsíða 53

Stígandi - 01.01.1944, Blaðsíða 53
STÍGANDI HURÐ SKELLIR NÆRRI HÆLUM 51 þolgóður og óhvikull listamaður, sem enga listnautn fann í öðru en því sanna og raunverulega. Hvar sem við komum og hvern sem hann hitti, var hann síspyrjandi. Hann ritaði ótal athuga- semda í vasabók sína. Loks tók hann ákvörðun. Hann hafði kom- izt að því, að Malikula, önnur stærsta eyjan af Nýju-Hebrideseyj- um, var umdeild eign Breta og Frakka. í»ar hlaut því að vera lítið um stjórn og aga. Væri mannkindin enn til í sinni frumstæðustu og siðlausustu mynd, þá var það þar. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós, að sumir hlutar Malikulu höfðu aldrei verið kannaðir af hvítum mönnum, og orðrómur lá á, að þar væri mannát og höfðasöfnun enn í siðvenju. Við snerum aftur til Sidney, og Jrar leitaði Martin uppi skip- stjóra á litlu skipi, sem leggja skyldi af stað innan fárra daga til hinna norðlægari Nýju-Hebrideseyja. Við liöfðum ekki fyrr stig- ið þar á skipsfjöl og kunngert fyrirætlun okkar en andmælum og viðvörunum rigndi yfir okkur. Skipstjórinn kom sjálfur til okkar og hafði í höndum eintak af „Hafnvísi um Kyrrahafseyjar". „Hlustið Jrér á mig, ungi maður," sagði hann, „ég hefi enga löngun til að hræða litlu konuna yðar, en hér stendur skýrum stöfum í „Hafnvísinum", að íbúar Malikulu séu grimmur og blóðþyrstur kynflokkur, að þeir séu sviksamir og Jrað sé vitað mál, að mannát sé þar enn um hönd haft!“ Martin brosti. Mánuðum saman liafði liann ekki verið jafn hamingjusamur. „F.g hefi talsvert umgengist villimenn," sagði hann, „og við munum ekkert Jjurfa að óttast, ef við höfum gnægðir tóbaks og annars varnings, sem {Deim fellur." Þeldökkur maður, sem smala skyldi nýliðum meðal blökku- manna, þrekinn, öróttur og óheflaður náungi — mig grunaði, að eitthvað af svertingjablóði rynni í æðum hans — greip fram í samtal okkar. „Skipstjórinn hefir rétt fyrir sér, herra,“ sagði hann við Martin. „Þótt mér væru boðin þúsund sterlingspund, mundi ég ekki vilja fara Jrangað, a. m. k. ekki án verndar fallbyssubáts." „Ég ér smeykur um, að enginn fallbyssubátur verði í fylgd með okkur,“ sagði Martin brosleitur. „Ef þér leggið út í þetta, munuð þér komast að raun um, að hér er ekkert spaug á ferðum,“ sagði skipstjórinn þungbrýnn. „En hví skyldu íbúarnir gera okkur mein?“ skaut ég inn í. „Maðurinn minn ætlar einungis að mynda þá.“ 4*
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Stígandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.