Stígandi - 01.01.1944, Side 67

Stígandi - 01.01.1944, Side 67
STÍGANDI HEFÐI EKKI • • 65 Þetta var í síðasta sinn, sem nafn Jóhanns Kovacs hljómaði af vörum manna. Tíunda dag nóvembermánaðar 1899 var kona, sem þjáðist af hjartasjúkdómi, flutt frá tóbaksverksmiðju í Búdapest á Sankti Jóhannesar sjúkrahúsið þar í bænum. Hún var flutt upp á sjúkra- stofu númer 3 á annarri hæð. Þar lá hún í rúmi sínu, stillt en hrædd. Hún vissi, að ekkert var framundan nema dauðinn. Það var dimmt í sjúkrastofunni. Daufa birtu lagði um her- bergið frá litlum, bláum olíulampa. Augun störðu út í hálfrökkrið, en hugurinn hvarflaði til lið- inna ævidaga. Hún mundi eftir sumarkvöldi uppi í sveit og blíðeygðum pilti, sem leiddi liana við hönd sér yfir ilmandi engi. Það kvöld leiddi hinn ungi sveinn hana inn í ókunna ævintýraheima ástarinnar. Þessi ungi maður var Jóhann Kovacs. Andlit hans, rödd og augnatillit hafði nú birzt aftur í síðasta sinn. En í þetta skipti var nafn lians ekki nefnt. Það var aðeins í liuga hinnar deyjandi konu, sem lionum brá fyrir í nokkur augna- blik. Næsta ár eyddi eldur prestssetri Kalvínstrúarmanna og hinum rykföllnu kirkjubókum, Jrar sem fæðing og dánardægur Jóhanns Kovacs var skráð. í janúarmánuði 1901 gengu miklir kuldar. í rökkrinu eitt kvöldið klifraði flóttalegur maður, klæddur í tötra yfir girðinguna utan um kirkjugarðinn í þorpinu. Hann stal tveimur trékrossum til að hafa þá í eldinn. Annar krossinn var af leiði Jóhanns Kovacs. Aftur liðu tveir áratugir. Árið 1920 sat ungur lögfræðingur í Kecskemet við skrifborð sitt og samdi skrá yfir eftirlátnar eignir föður síns. Hann dró frarn allar skrifborðsskúffurnar og rannsakaði vand- lega hvern einasta pappírsmiða. A einurn Jjeirra stóð skrifað: „Fyrir fágun á 2 stólum, 4 flór- ínur 60 kracíur. Greitt. Jóhann Kovacs.“ Lögfræðingurinn leit sem snöggvast á miðann, vöðlaði honum saman og henti honum í pappírskörfuna. Næsta dag tók vinnukonan pappírskörfuna og hellti úr henni út á öskuhaug í portinu. Þremur dögum seinna kom rigning. 5

x

Stígandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.