Stígandi - 01.01.1944, Síða 78

Stígandi - 01.01.1944, Síða 78
STÍGANDI UM BÆKUR Steingrímur J. Þorsteinsson: Jón Thoroddsen og skáldsögur hans. Þetta er mjög vandvirknislega gerð rannsókn á því, hverjir eru kveykirnir í skáldsögum Jóns Thor- oddsens og hverjar hafi verið fyrir- myndir hans, bæði í þeim bók- menntum, er hann hafði aðgang að, og því mannlífi, sem var umhverfis hann. Bókin er líka á allan hátt þóknanlega rituð og mestur hluti hennar skemmtilegur lestur. — Skemmtilegastir eru þeir þættir hennar, þar sem það er tekið til rannsóknar, hveinig Jón hefir tekið samtíðarmenn sína og umskapað þá í þær persónur sagna sinna, sem minnisstæðastar eru lesendunum. Sumar af niðurstöðum Steingríms um þessi efni geta ef til vill orkað tvímælis, en litlar líkur eru þó til, að nær verði komizt um þetta hér eftir, og allar eru niðurstöðurnar byggðar á mjög vandlega gerðri könnun og allar ályktanir bæði var- Iega og skynsamlega dregnar. Það veiður ljóst af þessari rannsókn Steingríms, að skáldsögur Jóns eru í heild sinni trúlega gerð þjóðlífs- lýsing frá þeim tíma, er höfundur þeirra var og hét, mjög lítið menguð áhrifum frá erlendum skáldskap, en að vísu dálítið öfgum slungin til þess að gera drættina skýrari. Rit þetta er höfundi sínum til sæmdar og Jón skáld Thoroddsen er líka mjög vel sæmdur af því. Jón Dúason: Landkönnun og landnám íslendinga í Vesturheimi, I, 1—8 og II, 1—5. Mér þykir rétt að vekja athygli manna á riti þessu, og það því frem- ur, að ég hefi fáa hitt, sem hafa les- ið það og hvergi séð þess getið í blöðum eða tímaritum, svo að ég muni. Gera má ráð fyrir, að menn lesi það síður af því, að það hefir komið út í fremur litlum heftum, 3 arka, og menn búizt við því, sem rétt er, að erfitt sé að lesa það sér til skemmtunar eða fróðleiks í smá bútum. Eg hefi líka þá sögu að segja, að ég hóf ekki lestur þess fyrr en ég hafði fengið það allt í hendur, sem nú er út komið. En sá lestur varð mér þá einhver mesti skemmtilestur um langt skeið. Þó fer því fjarri, að bókin sé að öllu leyti vel rituð. Bæði er að margt má að málfarinu á henni finna og sums staðar er efnisskipun talsvert ruglingsleg. En það, sem gerir bók- ina að skemmtilestri, er hvort tveggja í senn málfærslukapp höf- undarins og áhugi á því efni, sem hann hefir tekið til rannsóknar. Þessu hvoru tveggja má og þakka það, að bókin hefir orðið stórfróð- leg, og er ekki á öðrum stað hægt að finna jafnmikinn fróðleik um þenna ævintýralegasta þátt sögu þjóðar okkar. Þó að ég vilji gjarna eggja menn til að kaupa og lesa þetta rit, vil ég
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Stígandi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.