Stígandi - 01.01.1944, Page 79

Stígandi - 01.01.1944, Page 79
STÍGANDI UM BÆKUR 77 ekki eggja menn til að lesa það tor- tryggnislaust. Höfundinum er mikið áhugamál að sanna rétt Islendinga til yfirráða á Grænlandi. Þó að sá réttur sé ekki beinlínis ræddur, svo að teljandi sé í þessari bók, hefir skoðun og áhugi höfundarins á því máli víða ráðið sjónarmiðum hans um þau efni, sem hann hefir tekið hér til rannsóknar. Það hefir meðal annars brýnt hvöt hans til þess að gera hlut Islendinga um landkönn- un og landnám í Vesturheimi svo mikinn sem mestan mætti ætla eft- ir heimildum, og þegar heimildir þrýtur, hefir það vakið tilgátur hans og drauma um enn meiri hlut þeirra en beinar heimildir eru um. Hann færir öll þau rök, sem honum geta í hug komið, fyrir því, að hverjar þær minjar í Ameríku frá fornum tíma, sem hann hefir séð eða heyrt getið, og sem hugsanlegt er að væru eftir Islendinga, séu vissulega eftir þá, en honum detta ekki auðveld- lega í hug rök gegn því, og hann er lítt hlustnæmur á rök annarra manna fyrir öðrum skoðunum. Með þessum hætti rökstyður hann það, að Islendingar hafi kannað og num- ið — að vísu aðeins lauslega — all- ar norður- og austurstrandir Norð- ur-Ameríku, og að jafnvel megi finna líkur fyrir því, að þeir komi við sögu menningarríkja Indíéna í Mexicó, Mið-Ameríku og Perú. En þó að höfundurinn virðist helzti djarfur í sumum ályktunum sínum, er það vafalaust, að hann leiðréttir margar hugmyndir, sem ráðandi hafa verið um nýlendu Is- lendinga í Vesturheimi og um örlög þeirra þar. Meðal annars má geta þess, að hann virðist hrekja með óyggjandi rökum þau „vísindi“, sem um hríð voru trúanleg tekin, um úr- kynjun Islendinga á Grænlandi, og sem helzt voru studd með rannsókn á jarðneskum leifum þeirra í kirkju- garðinum í Herjólfsnesi. Eins má telja víst, að hann hafi kveðið að fullu niður þá kenningu, að íslend- ingar á Grænlandi hafi fallið til síð- asta manns fyrir örvum, eldi og eggjum Skrælingja. En fyrir því færir hann hins vegar mikil rök og skýrir það margvíslega, að rétt sé það, sem segir í annál Gísla biskups Oddssonar, að Islendingar á Græn- landi hafi árið 1342 og þar á eftir snúizt að háttum Vesturálfu þjóða, þ. e. tekið upp viðskipti við þær, dreifzt innan um þær og blandað blóði við þær. Lifi því niðjar þeirra enn víðs vegar. Það er hvort tveggja, að þrátt fyrir það að höfundur vinn- ur nokkuð einhliða úr heimildum sínum, hefir hann fleira satt og rétt að segja um sögu íslenzka land- námsins í Vesturheimi en áður hef- ir verið sagt, og hann leggur lesend- unum miklu meira í hendur til þess að þeir geti sjálfir gert sér nokkra hugmynd um þetta efni en aðrir hafa gert á undan honum. Minningar frá Möðruvöllum. Brynjólfur Sveinsson sá um útgáfuna. Þetta eru minningar 15 skóla- sveina frá Möðruvöllum um skóla- vist þeirra. — Þessir eru skóla- sveiriarnir: Ólafur Thorlacius, fyrr- verandi héraðslæknir, Guðmundur Guðmundsson á Þúfnavöllum, Þor- leifur Jónsson, fyrrv. alþm. Austur- Skaftfellinga, Arni Hólm, kennari í Eyjafirði, Steingrímur Sigurðsson frá Víðum, Kristján H. Benjamíns- son á Ytri-Tjörnum, Einar Árnason, fyrrv. ráðherra, Guðmundur á Sandi, Ingimar Eydal, Halldór Stef- ánsson, forstjóri Brunabótafélags ís- lands, Björn á Rangá, Jón Þ. Björns- son, kennari á Sauðárkróki, Sigurð- ur á Arnarvatni, Þorlákur Marteins-

x

Stígandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.