Stígandi - 01.07.1944, Blaðsíða 51
STÍGANDI
SÉRA SIGURGEIR Á GRUND
209
séra Sigurgeirs var fáum boðið nema þeim, sem þurftu að þjóna,
en þangað kom margt af gömlu sóknarbörnunum hans og gladdi
það mjög aðstandendur hans.
Séra Jónas á Hrafnagili flutti þar eina af sínum ágætu ræðum,
sem opnaði mörgum nýjan skilning á skapgerð hins látna manns.
Lét liann þá svo ummælt, að liann efaðist um, að margir prestar
á landinu hefðu verið lærðari en séra Sigurgeir var á síðustu ár-
um sínum.
Nokkru síðar dó Jakob umboðsmaður Pétursson á Breiðu-
mýri og eftirlét sonarbörnum sínurn á Grund arf, sem í þá daga
þótti mikill. Brá fjölskyldan búi fljótt eftir það og flutti til Ame-
ríku. Mikilhæf var liún, en hamingjulítil í Eyjafirði.
HAGSÖM GÓÐGERÐASTARFSEMI
1784 ritaði Benjamín Franklin nafna sínum Webb eftirfarandi bréf:
Kæri herra!
Það hryggir mig, hve illa þér eruð staddur, og ég sendi yður því hér með banka-
ávísun á tíu gulldali. Það er þó ekki svo að skilja, að ég gefi yður þessa tíu dali,
heldur lána ég yður þá. Þegar þér komizt til landsins yðar, munuð þér eflaust
komast í eitthvert starf, svo að þér verðið fær um að greiða skuldir yðar. Fari svo,
sem ég vona, skuluð þér greiða þessa skuld yðar einhverjum þeim, sem á í erfið-
leikum, en biðja hann að greiða þá skuld enn öðrum, sem líkt er ástatt fyrir. Ég
vona, að tíu dalirnir mínir geti þannig farið um hendur margra, áður en þeir verða
stöðvaðir af einhverjum miður vönduðum manni. Þannig reyni ég að koma góðu til
leiðar af litlum efnum. Ég er ekki nógu ríkur til þess að láta mikið af mörkum við
aðra, svo að ég verð að beita brijgðum til að gera sem mest gagn með því, sem
lítið er.
Með beztu óskum um lieillaríka framtíð, yðar einlægur, B. Franklin.
14