Stígandi - 01.07.1944, Blaðsíða 82
240
UM BÆKUR
STÍGANDI
Kaj Munk: Við Babylonsfljót.
Bók þessi, sem gefin er út a£ bóka-
gerðinni Liljn í Reykjavík, inniheldur
24 stólræður skáldprestsins séra Kaj
Munk, auk ritgerðar um höfundinn
eftir dr. theol. séra Bjarna Jónsson
vígslulriskup. Flestar ræðurnar eru
fluttar á árinu 1941, hin síðasta þó á
nýársdag 1943, en eins og kunnugt er,
var höfundur þeirra myrtur skömmu
eftir s. 1. nýár.
Eftir að hafa lesið allar þessar ræður
oflar en einu sinni, hefir mér þrásinnis
dottið í hug, hvort ekki kynni að líta
öðruvisi út í veröldinni nú, ef hin eilífu
sannindi hefðu hoðuð verið hinum svo
kallaða menntaða heimi s. 1. þrjátíu ár
með slíkri djörfung og einlægni og af
slíkum einfaldleik sem gert er í þessari
I)ók.
Um hana hefir fremur liljótt verið í
blöðum og tímaritum hér á landi, og
mun fáa á því furða, slíkt heiðmyrkur
varfærni og sinnuleysis sem hvílir yfir
andlegum málum á landi hér. Einn af
hérlcndum stéttarhræðrum höfundarins
hefir þó, svo ég viti, um hana getið í
daghlaði, en fremur stutt og smálega.
Ég fæ þó ekki annað séð, en hver mað-
ur, hvort sem liann er trúmaður eða
trúlaus, flokksleysingi eða flokksmaður,
hefði gott af að kynna sér, hvernig hö£-
undur hennar umgengst sína sannfær-
ingu. Sumum kann máske að virðast
svo, sem slík umgengni við sannfæringu
sína kunni að verða dýrkeyptur „luxus",
þar sem Kaj Munk þurfti þar fyrir lífið
að láta, og verða píslarvottur þeirrar
ástríðu. En hollt mundi okkur vera ein-
mitt nú að geta sem flestir komizt að
raun um, að það er sigur sannleikans,
sem einn fær jafnað vegina, eins og Þor-
steinn segir, og djarfmannlegt áræði —
sá eini guð, sem getur gefið okkur land-
ið. -
Bókin er rúmar tvö hundruð blaðsíð-
ur, vönduð að frágangi. I henni eru
nokkrar myndir af höfundi og heimili
hans. Þýðinguna hefir gert séra Sigur-
hjörn Einarsson, að undanskildri einni
prédikun, sem þýdd er af Þorsteini Ö.
Stephensen. Hafi þeir góða þökk fyrir.
S. B.
Stíganda hafa borizt eftirtaldar
bækur:
Leyndardómar Snæfellsjökuls, eftir
Jules Verne, skáldsaga með 20 myndum.
Þýðandi Bjarni Guðmundsson. Útgef-
andi: Bókfellsútgáfan h.f., Reykjavík.
Njósnarinn, skáldsaga frá sama for-
lagi, höf. J. F. Cooper. Þýðandi Ólafur
Einarsson.
Don Quixote, eftir Miguel De Cer-
vautes, þýðandi Maja Baldvins. Útgef-
andi Pálmi H. Jónsson, Akureyri.
Bóka þessara mun getið nánar í næsta
hefti.