Stígandi - 01.07.1944, Blaðsíða 92
STIGANDI
kemur út fjórum sinnum á ári, alls 400 síður af lesmáli og myndum,
prentað á óvenjulega vandaðan pappír. Prentverkið annast Prent-
verk Odds Björnssonar, sem alkunnugt er fyrir vandvirkni og smekk-
vísi, myndamót öll gerð hjá h.f. Leiftur, Reykjavík, myndir flestar
teknar af Edvard Sigurgeirssyni ljósmyndara.
Ritið flytur margs konar efni til fróðleiks og skemmtunar, svo sem
um atvinnumál, fræðslumál, ferðalög, bókmenntir og listir, auk þess
iðulega þýddar greinar.
í ritið hafa ritað meðal annarra: Sigurður Guðmundsson, skóla-
meistari, Kristín Sigfúsdóttir, skáldkona, Björn Sigfússon, magister,
Arnór Sigurjónsson, Halldór Halldórsson og Sigurður L. Pálson
menntaskólakennarar, Helgi Valtýsson, Sveinn Bjarman, Þormóður
Sveinsson og Þóroddur Guðmundsson. Sögur og kvæði hafa birzt
eftir Sigurjón Friðjónsson, Guðmund Frímann og Jóhann Frímann,
Heiðrek Guðmundsson, Guðfinnu frá Hömrum, Guðmund Friðjóns-
son, Friðgeir H. Berg, Kristján Einarsson, Bjartmar Guðmundsson,
Sverri Áskelsson og ýmsa fleiri. Nöín þessara manna eru lesend-
unum næg trygging þess, að vel er til efnis vandað, enda mun
Stígandi leggja kapp á vandað efni. Árgangurinn kostar aðeins
24 kr. og er það ekki mikið verð miðað við bókaverð nú.
Hafið þér gerzt áskrifandi að Stíganda?
Sé svo ekki, viljum vér benda á, að upplag vort er takmarkað, en
ennþá er þó tími til að tryggja sér ritið, ef þér hringið í síma 274 —
eða skrifið í pósthólf 76, Akureyri.