Stígandi - 01.10.1944, Síða 5
STIOANDI
Október—desember 1944 -II. ár, 4. hefti
BRAGI SIGURJÓNSSON:
MILLI HRAUNS OG HLÍÐA
Ný stjórn ^ sl®asta Stíganda stóðu þessi orð meðal annars:
„Ætli það \erði „hljóðir og hógværir menn, sem
halda ti! Reykjavíkur," og hræddir menn og ráðlausir? F.ða
djarfir menn og stórhuga, sem þakka guði fyrir þá sæmd, sem
þeim hefir verið sýnd með því að fela Jreim eftirfarandi verkefni
til úrlausnar:
Að mynda sterka þingræðisstjórn,
að leggja grunninn að einbeittri og viturlegri utanríkispólitík,
að vinna bug á dýrtíðinni,
að vinna að nýsköpun atvinnumálanna,
að jafna kjaramismun — og korna á betra samræmi — í stéttum
innbyrðis, milli stétta og milli karla og kvenna, svo að nokkur
atriði séu nefnd.“
I>etta var ritað og birt áður en þing Jrað, er nú situr, kom
saman. Og nú er Jringræðisstjórnin mynduð. Að henni standa
32 þingmenn af 52 alþingismönnum alls, svo að ekki hefir um
langt skeið verið mynduð stjórn hér á landi með jafnsterkum
Jringmeirihluta. Verkefni Jrau, sem hin nýja stjórn ætlar að taka
sér fyrir hendur, samkvæmt yfirlýstum málefnasamningi, eru
meðal annars:
Að leggja grunninn að einbeittri og viturlegri utanríkispólitík,
svo að sjálfstæði og öryggi íslands verði sem bezt tryggt;
að vinna að skipulagningu og nýsköpun atvinnumála þjóðar-
innar og hafa í Jrví máli hliðsjón af atvinnuþörfum landsmanna,
]fi*