Stígandi - 01.10.1944, Qupperneq 9

Stígandi - 01.10.1944, Qupperneq 9
STÍGANDI MILLI HRAUNS OG HLIÐA 247 útgerð annars staðar hlaupið undir bagga, lial’i þar aftur vel gengið, svo að síður þurfi til þrots að koma. Hins vegar munu margir segja, að þetta blessist aldrei, hjá svona fyrirtækjum sé alltaf illa unnið, alltaf svikizt um. Verkstjórn þ:l hvarflar í hug manns, hve íslendingar iiirða oft lítið um verkstjórn. Verkamönnum er oft brugðið um slæleg vinnubrögð, en ætli slælegri verkstjórn sé síður um að kenna? Það er ekki öllum gefið að kunna að stjórna mönnum við vinnu. Sumir eru þannig gerðir, að engum dettur annað í hug en að vinna vel hjá þeim, aðrir liafa þveröfug áhrif á undir- menn sína, og svo eru öll stig þarna á milli. Sumir taka að sér alltof mikla vinnu og sjá svo hvergi fram úr að stjórna öllu. Þannig baka þeir verkseljanda margs konar tjón. Sums staðar eru verkstjórastöður hafðar sem bitlingar, en í engu farið eftir hæfni. Er þetta auðvitað hin mesta óliæfa, því að framkvæmd verks, kostnaður þess og hve vel það er unnið, fer að mjög miklu leyti eftir verkstjórninni. Það munu ótrúlegar upphæðir, sem farið hafa í súginn hjá einstaklingum, bæjarfélögum og ríkinu sökum slælegrar verk- stjórnar, og mætti ahnenningur gjarnan rumskast til meiri um- Intgsunar og eftirtektar á Jiessu. ,, , . , . , , . , Rússar tóku upp vinnuverðlaun o<> „Vaskur jafnt ur bytum ber , , . , , ° , , . , „ bættu pannig vinnuafkost sm stor- busa þeim, sem latur er. , , i, ° , , .v. „ lega. Her er stundum talað um, að koma þurfi á vinnumati. Röskum verkmanni svíður það eðli- lega að bera í engu meira úr býtum en letinginn, sem styðst fram á skófluna meirihluta vinnutímans. Slíkt getur varla tal- izt hvatning til að vinna vel. En sennilega er víða erfitt að koma sanngjörnu vinnumati við. Mörgum þykir gaman að vinna í ákvæðisvinnu, en forráðamenn verklýðssamtakanna hafa frekar lagzt á móti henni, enda er margs að gæta við deilingu \ innunnar. Gamlir menn og aðrir miður vinnufærir þurfa oft að ganga á vinnumarkaðinn, en yrðu mjög fyrir borð bornir í ákvæðisvinnu eða þar, sem strangt vinnumat væri framkvæmt. Hins \egar ætti öllum að vera ljóst, að fyrir slíkum mönnum á þjóðfélagið að sjá á annan hátt en þann að láta verkkaupendur greiða vinnu þeirra jöfnu verði og fullvinnandi manna. Sama kaup fyrir sömu vinnu. En þá kemur okkur í hug annað, sem ekki virðist síður óréttlátt, en það er, hve konum er greitt miklu lægra kaup en körlum í flest-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Stígandi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.