Stígandi - 01.10.1944, Blaðsíða 17
STÍGANDI
BENEDIKT JÓNSSON Á AUÐNUM
255
áthugull, sannsýnn og góðviljaður; fíngerður í lund, viðkvæmur
og gerðist nokkuð vanstilltur í skapi, er á ævina leið, en var jafnan
traustur í raun. Á fyrstu kynningarárum okkar áttum við einu
sinni tal saman um traust á mönnum og liélt Pétur því þá fram,
að heppilegast væri að fulltreysta hverjum manni, meðan ekkert
viðsjált væri af honum reynt, ])ví að svo reyndist hver maður bezt,
að honum væri treyst til góðs. Þá sögu heyrði ég einu sinni í
Reykjavík, að Pétur myndi leysa jtar vandræði hvers manns úr
Þingeyjarsýslu, er til hans leitaði, og mun mikið hafa verið hæft
í því. En var varð ég þess á síðari árum lians, að ekki var traust
hans á mönnum jafn-öruggt og áður hafði verið — og mun það
ekki hafa stafað sízt af hinni svonefndu „pólitík". — Sjálfur taldi
Pétur sig „sósíalista" í skoðunum, en „aristókrat" í tilfinningum.
Þeir Pétur Jónsson, Benedikt á Auðnum og Jón í Múla voru