Stígandi - 01.10.1944, Side 29
STÍGANDI
HINN OÞEKKTI HERMAÐUR
267
mæta viðurkenningu fyrir það, sem '\ el er gert. Það hefir hjálpað
mörgum nemanda til að komast yfir þröskuld, sem honum áður
fanns t óyfirstíganlegur.
Ég veit ekki, hvort hin harðvítuga, pólitíska flokkabarátta eða
einhver stirðbusaskapur í skapgerð okkar veldur því, að við ís-
lendingar eigurn ákaflega erfitt með að viðurkenna nokkuð það,
sem vel er gert. Þegar \ ið höfum ekki ástæðu til að finna að, þá
þegjum við. Það er okkar viðurkenning. Þessi þumbaraháttur er
búinn að drepa áhugann lijá mörgum nýtum starfsmanni í æðri
sem lægri stöðum þjóðfélagsins, og liann á eftir að orka seigdrep-
andi á margan áhugamanninn, hvort heldur J>að er maður, sem
vinnur andleg störf, eða verkamaður við hin daglegu störf þjóð-
félagsins. A heimili, ]>ar sem lnisbóndinn |>akkar aldrei starf hjúa
sinna, verður aldrei vel unnið. í kennslustofu, J>ar sem sjaldan
eða aldrei er lofuð frammistaða nemendanna, skapast aldrei
\ innugleði eða skólahugur og Jrjóðfélag, sem lætur lof eða last
\era bundið \ið pólitíska flokksþjónustu, eignast fáa þegnskap-
armenn. Slíkt er skipulögð skoðanakúgun og hættulegri viður-
kenning en sjálf J>ögnin. Þar verður allt starf bundið við peninga,
metorð og alls konar hlunnindi. Það er undarlegt, h\að við erum
sparir á réttmætt J>akklæti og \ iðurkenningu, og J>ó kostar það
ekki neitt. Stundum J>ó ef til vill ]>að að brjóta af okkur viðjar
einhterra hleypidóma og J>urrka ofurlítið af pólitískum gleraug-
um okkar. En vanjrakklætið og þögnin eru miklu dýrari, því að
J>au draga úr afköstunum á öllum sviðum J>jóðfélagsins og ala
upp eintóma miðlungsmenn, eða minna en það.
En ég var að tala um hetjurnar.
Ég ]>ekkti eitt sinn mann, sem árum saman þjáðist af sjúkdómi,
er hann vissi, að var ólæknandi. Ég dáðist að sálarró hans og
æðruleysi. Jafnvel ]>eir, sem voru heilbrigðir og áttu við meðlæti
að búa, gátu sótt til hans styrk og ]>or. Hann gat brosað í sínum
líkamlega vanmætti, þegar aðrir æðruðust út af smámunum. Sál
lians var hert í deiglu erfiðleika og þjáninga. Þennan mann set
ég á bekk með Þormóði Kolbrúnarskáldi, senr dró örina glott-
andi út úr brjósti sínu. Eáir þekkja sögu |>essara nafnlausu hetja,
sem berjast á vígstöðvum sjúkdómanna. Sjúkdómarnir eru heims-
böl, en jafnvel í skjóli þeirra skapast hetjur, sem geta fyllt börn
meðlætisins aðdáun. Söguöld vor íslendinga er rík af hetjudáðum.
Yfir Jreirri öld hvílir glæsilegur frægðar- og hetjuljómi. En það
er mikið vafamál, að fleiri hetjur hafi verið uppi á söguöld en