Stígandi - 01.10.1944, Page 33

Stígandi - 01.10.1944, Page 33
STÍGANDI HINN ÓÞEKKTI HERMAÐUR 271 bölvun, sem þeim fylgir. Á meðan öll áróðurstæki þjóðanna kepp- ast við að gera þá menn að mestum hetjum, sem flestum manns- lífum granda, er kynt undir glóð ófriðar og blóðsúthellinga. Á meðan við íslendingar hugsum í stéttum og flokkum, og viður- kennum það eitt vel gert, senr flokksmaður okkar gerir, ræktum \ ið ekki trúmennsku og þegnskap. Á meðan við kunnum ekki að meta það, sem vel er gert, hvorki í orði eða verki, ölum við okkur aðeins upp duglitla miðlungsmenn. Við þurfum að lirista af okkur þennan smáborgaraskap, að þora ekki, eða vilja ekki viður- kenna neitt, sem vel er gert hjá náunganum. Það er menningu okkar fjötur um fót, og í slíku andrúmslofti eru engin vaxtarskil- yrði fyrir áliuga, þegnskap og skyldurækni. Mannkyn allt er nú statt á Heljardalsheiði ískaldrar járn- og stálmenningar. Spekingar og spámenn deila um, hvað gangi að heiminum, deila um áttirnar. Hver vill lialda sína götu, en á með- an týnast menn úr hópnum og farast. Sumir lirópa á nýtt skipu- lag, sent muni bjarga heiminum og menningu lians, og sá hópur er fjöhnennur. Aðrir láta sér detta í hug, að gott skipulag komi því aðeins að gagni, að til séu góðir og þroskaðir menn, sem geta framkvæmt jtað. En það, sem spekingum er hulið, er smælingjum stundum opin- berað. Hinn fyrirlitni Hólabiskup, sem alþýðan sæmdi Jtó hinu mesta tignarheiti, sem tungan á, gefur hér skýrt svar. Fordæmi hans á Heljardalsheiði, hetjulund og fórnarþel, er lexían, sem okkar hjartakalda menning jtarf að nema. Það er fórnar- og hetju- lund hans og ósvikin skyldutilfinning, sem bjargaði litlu stúlk- unum, og það er slíkt hugarfar og ekkert annað, sem getur bjarg- að okkar áttavilltu menningu ofan af þeirri Heljardalsheiði, sem hún er nú stödd á: Það verða ekki peningar, ekki skipulagið eitt, ekki einvaldsherrarnir, sem drottna nú yfir hálfum heiminum, sem koma menningu okkar aftur á réttan kjöl, Jrað verða miklu fremur menn með hugarþeli Guðmundar góða. Það verða hetjur hversdagslífsins. Á gröf [>ess ójíekkta hermanns eiga kynslóðir framtíðarinnar að leggja heiðurskrans sinn.

x

Stígandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.