Stígandi - 01.10.1944, Qupperneq 36
STÍGANDI
KRISTIÁN ELDIÁRN:
FJÖL ÚR AUÐUNARSTOFU
Það er ekki ofmælt, að Hólar í Hjaltadal hafi um langt skeið
verið höfuðstaður Norðlendingafjórðungs. Þar var miðstöð liins
andlega lífs með biskupsstól og skóla, þangað safnaðist mikill
fjöldi fólks og þangað streymdi mikill auður, enda voru margir
biskuparnir frekir til gjaldsins. Hvergi á Norðurlandi var annað
eins samankomið jarðneskra gæða, enda var þar allt stærra og
viðameira en á óbreyttum bændabýlum. Húsakostur var þar með
afbrigðum mikill og reisulegur, og nefna sumar úttektir Hóla-
staðar meira en 60 hús, að meðtöldum útihúsum. Sum þessara
húsa voru hin vönduðustu, enda virðist húsum Hólastaðar hafa
verið sæmilega við haldið fram á 18. öld. Hólastóll var lagður
niður 1801 og voru Hólar upp frá því ekki nema eins og hver
annar kirkjustaður. Hófst þá þegar mikil eyðilegging og niður-
níðsla á staðarhúsunum, og þegar Henderson kom að Hólum á
árunum 1714—15, fannst honum staðurinn minna mest á þorp,
sem komið er í eyði.
Sá, sem kemur að Hólum nú í dag, mun sjá þar eitt myndar-
legasta sveitasetur þessa lands. Nýr Hólastaður er risinn þar upp,
og er það góðra gjalda vert. En þar er ekkert, sem minnir á forna
frægð staðarins, ekkert annað en dómkirkjan, sem er eitt af yngstu
húsum hins forna biskupsseturs. Þar vottar ekki fyrir hinum
rambyggðu húsurn biskupanna, og þó hefðu þau vel mátt standa
enn, ef þeim hefði verið sýnd ræktarsemi.
Eitt þessara liúsa var Auðunarstofa eða „timburstofan gamla“,
eins og hún var oft kölluð til aðgreiningar frá „nýja húsinu",
sem Guðbrandur biskup lét reisa á Hólum síðar. Auðunarstofa
var kennd við Auðun rauða Þorbergsson, sem var Hólabiskup
1313—22, en kom til stólsins 1315. Þykir hann hafa verið atkvæða-
mestur allra útlendra biskupa á íslandi, enda var hann umsvifa-
rnikill bæði heima á Hólastað og í stjórn biskupsdæmisins. í
Lárentíus sögu er þannig sagt frá uphafi Auðunarstofu: „Lét
liann (þ. e. Auðunn biskup) flytja sunnan af Seleyri timbnr-