Stígandi - 01.10.1944, Side 37

Stígandi - 01.10.1944, Side 37
STÍGANDI FJÖL ÚR AUÐUNARSTOFU 275 stokka, hvar af hann lét srníða timburstofuna á Hólum.“ „Lét hann gjöra steinofn í timburstofuna, sem gjört er í Noregi og bera út reykinn, þó að liann sæti sjálfur inni.“ Árni Magnússon lýsti Auðunarstofu á Jressa leið á árunum 1720—25: „Timbur- stofuna á Hólum segja menn Auðunn biskup rauði hafi látið höggva í Noregi og út flytja á Eyrum og þaðan norður og liafi viðirnir um veturinn legið við Grettisskála á miðjum Kjöl. Hún er af heildigrum stokkum saman sett.“ Þó að þessar lýsingar greini á um útkomustað timburstokkanna, Itera Jjær báðar glöggt vitni Jress, að Auðunarstofa hefir verið stokkahús í norsk- um stíl, gerð úr láréttum bjálkum. Þetta kemur einnig skýrt fram í prýðisgóðri úttekt frá 1685: „Hún er með tveimur greni- bitum og Joriðja járnbita gömlum, sperrum, skammbitum átta með súð og bjálka, veggjum umhverfis á allar síður eftir norskri byggingu; langbekkir og krókbekkir að sunnan fóðraðir, 4 rúm og fyrir biskupssæng tvennar skarir fóðraðar og fyrir miðsæng- inni við gaflinn tvísett skör, ein við þá þriðju, Jrar með bekkjar- fjöl, bakdyr og framdyr með hurð á járnum, skrá og hespa fyrir framdyrum, og með 2 glergluggum." Sést af Jjessari lýsingu, hversu vandað hús Auðunarstofa hefir verið, enda var hún stundum notuð sem kirkja, þegar mikið lá við, t. d. á árunum 1759—63, meðan dómkirkja sú, er enn stend- ur, var í smíðum. Um þetta segir í Ævisögu Jóns Þorkelssonar: „Meðan þessi nýja kirkja var í byggingu, Jiá var embættisgerð framin í hinni fornu timburstofu niður í staðnum, hver nú er Jrað elzta hús á íslandi og staðið hefir að allri umgrindinni í ferskeyttu formi síðan 1317 með timburbjálkum bakflettum og höggnum saman á hornunum allt um kring, hingað fluttir af norskum grenivið, hverjar menjar hér sjást víða í gömlum kirkj- um og bænhúsum, ótrúlega liarður og varanlegur. Hingað var nú flutt altarið og prédikunarstóllinn, Jjegar kirkjan sjálf var rofin.“ Þessar lýsingar gefa svo góða hugmynd um Auðunarstofu, að ekki er unnt við að bæta, og hin síðasta sýnir einnig og sannar, að stofan hefir verið stæðilegt og gott hús fram á seinni hluta 18. aldar, er hún var notuð sem kirkja árum saman. En árið 1801 var Hólastóll niður lagður og eignir hans seldar. Hófst þá brátt mikil eyðing á húsum staðarins, því að venjulegur ábúandi, bóndi eða prestur, hafði vitanlega ekki not fyrir allan húsakost biskups, en hins vegar voru sum húsin viðamikil og hægðarleikur að koma þeirn í verð með niðurrifi. 18*

x

Stígandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.