Stígandi - 01.10.1944, Page 52

Stígandi - 01.10.1944, Page 52
290 HÁSKÓLANÁM í BANDARÍKJUNUM STÍGANDI sinni. Þykir það hin harðasta raun og er í eðli sínu frábrugðið doktorsvörn hérlendis. Meirihluti þeirra tveggja til þriggja ára, sem fer í undirbúning til doktorsprófs, þarf kandidatinn að sækja fyrirlestra í fagi sínu og stunda verklegar æfingar við háskólann, — og áður en til átaka kemur um doktorsritgerðina, verður hann að taka ýmis próf, skrif- leg og munnleg, sem sanni, að hann hafi víðtæka og nákvæma þekkingu á sínu sviði og sé álitshæfur. Námsskilyrði við alla stærri háskóla í Bandaríkjunum eru yfir- leitt liin ákjósanlegustu. Húsakynni eru einatt vegleg og lítt spar- að til kennslutækja. Tilraunastofur eru margar. Stúdentar hafa þar góðan aðbúnað og færi á að gera verklegar æfingar undir eftirliti prófessora sinna. Auk þess eiga háskólar alla jafna hin sæmilegustu lista- og náttúrugripasöfn, sem geta verið til liins mesta menningarauka. Þó má fullyrða, að bókasöfnin séu brennideplar amerískra há- skólahverfa, og er miklu fé og tíma varið til þess að gera þau sem bezt úr garði. Bókasafnið í Kaliforníuháskóla hefir til dæmis að geyma töluvert á aðra milljón binda, og yfir 18 þús. blöð og tíma- rit streyma stöðugt að. Bókasafn þetta sér stúdentum og prófessor- um fyrir mestöllum heimildum og gögnurn, er þeir þurfa, og get- ur, ef rétt er haldið á, sparað fátækum stúdentum gríðarleg bóka- kaup, enda á fárra meðfæri að kaupa allar þær bækur, er til náms- ins þarf. Auk aðalbókasafnsins hafa stundum einstakar háskóla- deildir söfn, sem hafa á boðstólum bækur og heimildarrit í sér- stökurn greinum. í bókasafninu eru stórir lestrarsalir fyrir stúdenta. Eru þeir rnikið notaðir og koma í góðar þarfir, þar sem veggirnir eru þétt- skipaðir handbókum og alfræðiorðabókum, sem ómissandi eru við allt nám. Einn salur bókasafnsins hefir sérstöðu. Þar eru um 18 þús. bindi, sem ætluð eru mestmegnis til tómstundalesturs. Er þar gott úrval bókmennta, og er hlutverk þeirra að veita stúdent- unum færi á að afla sér almennrar menntunar, sem oft vill verða út undan við sérfræðinám. Allir, sem skráðir eru í háskólann, hafa ókeypis afnot af söfnunum. Bandarískir háskólar gefa stúdentunum góðan kost á að efla lieilsu sína. Við Kaliforníuháskóla fer fram afar rækileg læknis- skoðun á öllum nýjum háskólaborgurum, og um leið er rann- sökuð hæfni þeirra til ýmissa íjrróttaiðkana og þeim bent á færin, sem þeim bjóðast í þeim efnum við skólann. Ekki eru íþróttir

x

Stígandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.