Stígandi - 01.10.1944, Blaðsíða 53
STÍGANDI HÁSKÓLANÁM í BANDARÍKJUNUM 291
skyldunámsgrein við háskólann, en þar eru mikil íþróttahús og
sundlaugar til afnota handa þeim, er vilja, og kennsla á taktein-
um. Vellir til útileikja eru þar víðlendir.
Háskólinn á sitt eigið sjúkrahús. Er það vandað vel og hefir
á að skipa úrvalslæknum. Allir stúdentar eiga þar vísa læknishjálp,
ef út af her. Vissum hluta skólagjaldanna er varið til spítalans, svo
að læknisaðstoðin er að öðru leyti ókeypis og stúdentum tryggð
í upphafi hvers missiris.
Félagslíf við háskólann er töluvert, en mest ber þó á Félagi Jiá-
skólastúdenta, sem gengst fyrir flestu, sem gerist í stúdentamál-
um. Það stendur fyrir íþróttakappleikjum við aðra skóla og ver
ágóðanum af þeim til að styðja þarflega starfsemi með stúdentum,
svo sem málfundafélög, leiklist, íþróttir, blaðaútgáfu o. fl. Enn
fremur rekur Stúdentafélasrið matsölu 0? bókabúð á háskólalóð-
inni. Hafa stúdentar til sinna afnota tvær stórar byggingar með
góðum salarkynnum. Ólíkt því sem gerist í Háskóla íslands, þá
gætir pólitískrar flokkabaráttu lítt í kosningum amerískra stúd
enta, heldur ræður afstaða frambjóðanda til ýmissa framkvæmda
í stúdentamálum, sem á döfinni eru, miklu um úrslitin. Kosn-
ingahríðin getur þó orðið mjög hörð.
Bústaðir stúdenta við Kaliforníuháskóla eru mjög breytilegir.
í grennd við háskólahverfið er margt staða, þar sem hægt er að
fá fæði og húsnæði, auk heimavistarhúsa, sem eru í nánu sam-
bandi við háskólann sjálfan. I þremur borgum í Bandaríkjun-
um, New York City, Chicago og Berkeley eru svonefnd Alþjóða-
hús (International Houses). Eru þau rekin í sambandi við há-
skóla í borgum þessum og ætluð stúdentum frá ýmsum löndum.
Hittast þar fulltrúar ólíkustu þjóða, og félagslíf þeirra er jafnan
fjölskrúðugt. íslenzkir námsmenn vestra hafa margir búið í Al-
þjóðahúsunum og unað sér vel. Aðbúnaður er þar góður, og auk
þess er útlendingum oft veittar ívilnanir um húsaleigu o. fl.
Kostnaður við nám í Ameríku er ærinn. Eins og áður er sagt,
eru skólagjöldin allverulegur útgjaldaliður, hvert sem farið er.
Ríkisháskólarnir munu þó vera einna ódýrastir og jafnframt vel
úr garði gerðir. Önnur útgjöld er erfitt að áætla, enda harla mis-
jafnt, hverjar kröfur menn gera til lífsins. Þó hygg ég, að 120 doll-
arar (kr. 780.00) á mánuði mundi eigi of hátt reiknað.
Þó að eg hafi nú aðeins stiklað hér á því helzta, þá er það yon
mín, að línur þessar megi verða að liði þeim, sem kunna að leita
til náms vestur um haf í náinni framtíð.
19»