Stígandi - 01.10.1944, Blaðsíða 60
298 BALDVINA BALDVINSDÓTTIR STÍGANDI
í Eyjafirði hefðu fullyrt, að Baldvin hefði kveðið til sín. Fannst
þó þeim, sem til þekktu, að vísan ætti ekki að öllu leyti við neina
þeirra. — Vísan er svona:
Neytir svara hýr með hrós
hryggðir hvar á stríða,
skreytir rara, dýra drós
dygð, alvara og blíða.
Baldvin var hneigður til víns og ásta. Um það kvað hann:
Hófs eg vart á stefni stig
— stundum kvarta verður —
flaskan svarta sigrar mig
seims- og bjarta gerður.
Baldvin var sagður fríður maður og skemmtilegur og mörgum
konum vel að skapi.
Það mun hafa verið á sjöunda tugi nítjándu aldar, að Baldvin
dvaldist nokkuð á mannmörgu heimili í Eyjafirði. Þar var vinnu-
kona, sem var mjög hrifin af honum og sótti ákaft eftir honum,
einkum þegar Iiann var við öl, sem oft kom fyrir, en hann sagði
jafnan, ef á það var minnzt, að hann vildi hvorki heyra hana né
sjá. Áður en ár var liðið ól stúlka þessi meybarn, sem hún lýsti
Baldvin föður að. Þrætti hann fyrir í fyrstu og kvaðst ekki vita
til þess, að hann væri faðir barnsins. Bárust þó böndin að honum
fyrir vitnisburð heimilisfólks, sem vissi, að þau höfðu verið saman
eitt sinn, er Baldvin var mjög ölvaður. Enginn vissi ti! þess, að
stúlka þessi hefði verið með öðrum, enda þóttust menn sjá ættar-
bragð föðurins í andliti litlu stúlkunnar.
Hætti Baldvin þá að þræta fyrir faðernið, en skipti sér hvorki
af barni né móður. Stúlkan litla var skírð Baldvina Baldvins-
dóttir. Það vildi móðir hennar, sem nú var orðin vonlaus um að
vinna ástir Baldvins.
Skömmu síðar flutti hún með barn sitt til foreldra sinna, sem
heima áttu í annarri sveit. Fréttir bárust fáar af þeim síðar annað
en það, að Baldvina litla væri óvenjulega þroskað og námfúst
barn fyrstu árin, en þegar liún var fjögurra ára, varð hún floga-
veik, og dró mjög úr þroska hennar upp frá því.
Árin liðu og Baldvina var flestum gleymd í fæðingarsveit sinni.
Þá var hún send þangað 16 ára gömul til þess að hafa þar lífsupp-
eldi sitt samkvæmt þágildandi lögum.
Þá var henni varpað á náðir vandalausra í ókunnri sveit, þar