Stígandi - 01.10.1944, Side 61

Stígandi - 01.10.1944, Side 61
STÍGANDI BALDVINA BALDVINSDÓTTIR 299 sem hún var enginn aufúsugestur, 1 (i ára barn, vanþroskaðá marg- an hátt, en með fullri vitund um munaðarleysi sitt og sjúkdóminn hræðilega, sem tofði ylir henni á hverju augnabliki. Margir kenndu í brjósti um hana, og fáir vildu angra þetta ógæfubarn, en fæstir vildu taka hana inn á heimili sín. Víðast hagaði þá svo til, að allt heimafólk svaf í baðstolu, og þar tarð hún að sofa, en mörgum var það ofraun að vakna um miðjar nætur við kvalaóp iiennar og umbrotin, sem þeim fylgdu. Var því hrakningur lienn- ar oft ár frá ári úr einum stað í annan. Nærri má geta, hvernig henni hefir fallið það, s\o \ iðkvæm sem hún var. Þó möglaði hún ekki á móti því, þegar henni \ar sagt, að nú ætti að flytja hana í annan stað. Mundi hún þó vel eftir móður sinni og æskuheimili. Oft þegar hún Iieyrði Guðrúnar nafn, sagði hún: „Eins og blessuð móðir mín.“ — Mörgum árum eftir að hún kom í sveitina, kom öldruð kona að lieimsækja dóttur sína, sem átti heima á sama bæ og Raldvina átti þá heimili. Sagði hún þá með tárin í augunum og Jreim tilfinningahita, sem hún bjó yfir og jafnan kom fram í hverju orði hennar: „Gott átt þú, mamma Jjíii kemur að finna Jjig. Aldrei kemur mamma mín að finna mig.“ Enginn ættingi hennar kom til hennar né spurði eftir henni öll árin, sem hún var í Eyjafirði. Fullyrt var, að Baldvin Baldvinsson, sem á þeim árum var vesturfaraagent og síðar ritstjóri í Winnipeg, hefði verið hálfbróðir hennar, en líklega hefir liann ekki \ itað um þessa um- komulausu systur sína hér heima. Framan af ævinni vann Baldvina eitthvað útivinnu með öðrum. Hún vildi vinna og harmaði það mjög, að hún gæti ekki unnið fyrir sér. Handavinnu gat hún lítið lært, undi ekki að staðaldri við neitt. Mesta ánægja iiennar var að fægja eirpeninga og aðra málmhluti, sem hún gat gert glófagra. Margir gáfu henni smá- peninga og linappa. Varð hún þá svo glöð og þakklát, að augu hennar ljómuðu af fögnuði. Ekki mat liún peninga til verðs eða kom til liugar að kaupa sér neitt, þótt fáanlegt væri. Og heldur \ ildi hún tvíeyring en tíeyring vegna þess, að henni þótti hann fallegri, þegar Iiann glóði eins og gull margfægður í lófa hennar. Húsmæður hennar kvörtuðu yfir því, að hún neri göt á ermarnar á grófu vaðmálstreyjunum sínum og að hendurnar á henni væru alltaf biksvartar af málmlit. Samt mun enginn hafa bannað henni Jjessa dægradvöl. Margir peningarnir voru orðnir þunnir og sléttir fyrir löngu, en alltaf voru þeir fægðir. Líklega hefir enginn auð- jöfur jarðar litið með meiri velþóknun yfir dýrgripi sína en Bald-

x

Stígandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.